Síða 1 af 1

3 skjáir í einu

Sent: Lau 13. Sep 2008 14:44
af dagvaktin
Hvernig myndi maður setja þannig upp?

Re: 3 skjáir í einu

Sent: Lau 13. Sep 2008 14:51
af Gúrú
Tja í NVIDIA control panel geturðu sett upp allavegana 2 skjái er ég viss um ef þú ert með [nýlegt?] nvidia skjákort.
Væntanlega einhverju sambærilegu ef þú ert með ATI kort.
(Hægri klikkar á Desktoppið velur NVIDIA control panel ferð í Display>Set up multiple displays)
Skítlétt allavegana að setja upp 2, get valið á milli:
Only use one display (Single)
The same on both displays (Clone)
As one large horizontal desktop (Horizontal span)
As one large vertical desktop (Vertical span)
Configured independently from each other (Dualview)

Ég bara veit ekki hvort að það er hægt að vera með 3 í gegnum Nvidia control panel =/

Re: 3 skjáir í einu

Sent: Lau 13. Sep 2008 14:58
af KermitTheFrog
tja, þarft fyrst og fremst að vera með 3 skjátengi.. hugsanlega eitt innbyggt í móðurborð og kannski 2 á skjákorti orsom

ættir að geta stillt þetta með því að hægriklikka á desktop og fara í properties og svo settings flipannq

Re: 3 skjáir í einu

Sent: Lau 13. Sep 2008 15:00
af andribolla
eg hef nu oft séð tölvur með 3 skjai og fleirri tengda i eina tölvu ;)

hef samt ekki minnstu hugmynd um hvernig útbúnaður er a tölvuni til þess

Re: 3 skjáir í einu

Sent: Lau 13. Sep 2008 15:17
af Gúrú
KermitTheFrog skrifaði:tja, þarft fyrst og fremst að vera með 3 skjátengi.. hugsanlega eitt innbyggt í móðurborð og kannski 2 á skjákorti orsom

ættir að geta stillt þetta með því að hægriklikka á desktop og fara í properties og svo settings flipannq


Það ætti já að vera vesen o.O

Re: 3 skjáir í einu

Sent: Lau 13. Sep 2008 16:23
af Allinn
KermitTheFrog skrifaði:tja, þarft fyrst og fremst að vera með 3 skjátengi.. hugsanlega eitt innbyggt í móðurborð og kannski 2 á skjákorti orsom

ættir að geta stillt þetta með því að hægriklikka á desktop og fara í properties og svo settings flipannq


Nei er ekki tengi á móðurborðinu það er bara fyrir chipset. Það þarf helst að fá S-Video í DVI eða HD15

Re: 3 skjáir í einu

Sent: Lau 13. Sep 2008 16:56
af Zorba

Re: 3 skjáir í einu

Sent: Sun 14. Sep 2008 22:29
af Cikster
Ef ég man rétt getur 1 skjákort bara sett út mynd á 2 portum en hinsvegar ef þú ert með móðurborð sem getur tekið 2 skjákort eða jafnvel 3 sem sum geta þá er þetta ekkert mál og örugglega mun ódýrara en þessar multi skjá lausnir frá Matrox.

Meira að segja hægt að blanda saman ATI og Nvidia skjákortum í sömu tölvu (galdurinn er bara að láta windows setja inn driverinn fyrir lélegra kortið því ef maður setur upp catalyst/forceware forritapakkana báða fara þeir bara að rífast um hver fær að ráða(sá sem er settur inn síðast fær að ráða btw))

Ég hef verið með 2x gf 7950gx2 kort í sli og ati x700 kort í gangi á sama tíma án vandræða með því að setja ekki inn catalyst driverinn heldur láta bara windows finna hann.

Re: 3 skjáir í einu

Sent: Mán 15. Sep 2008 08:58
af ManiO
DMT skrifaði:http://www.matrox.com/graphics/en/products/gxm/



Nánar tiltekið: http://www.matrox.com/graphics/en/products/gxm/th2go/

Þetta er einfaldasta leiðin án efa.