Síða 1 af 1
Heyrnartól - pælingar
Sent: Fim 11. Sep 2008 21:40
af KermitTheFrog
jæja.. ætli maður fái sér ekki bara svona stór heyrnartól.. með hverju mæliði.. helst ekki mikið uppfyrir 5k
var búinn að pæla aðeins í þessum:
http://www.computer.is/vorur/5751http://www.computer.is/vorur/6606hvernig er þetta að standa sig??
Re: Heyrnartól - pælingar
Sent: Fim 11. Sep 2008 22:32
af Gúrú
HD 555 og HD 215 eru þau sem ég á og ég mæli hiklaust með báðum, þú tekur ekki eftir því að HD 555 séu á hausnum á þér og þvílík hljómgæði.
Baara svo þú vitir hverju þú ert að missa af
Fáðu þér samt opin heyrnatól, mun betra. [í skólanum]
Re: Heyrnartól - pælingar
Sent: Fim 11. Sep 2008 22:40
af KermitTheFrog
vá, ég er nýliði í þessu.. hver er munurinn á lokuðum og opnum??
ok held ég skilji þetta, en afhverju eru opin betri?? kem sennilega ekkert til með að nota þetta í skólanum, bara heima í leikina og svo þegar ég fer eitthvert í langferðir eða eitthvað.. kennarar eru eitthvað misgeðgóðir á þetta, þannig að maður kemur bara til með að nota svona lítil í skólanum
Re: Heyrnartól - pælingar
Sent: Fim 11. Sep 2008 22:48
af KermitTheFrog
er póstum hérna breytt af stjórnendum??
ég er 100% viss á að hafa skrifað nýliði í staðinn fyrir nýliði
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... cts_id=828hvað með þessi??
Re: Heyrnartól - pælingar
Sent: Fös 12. Sep 2008 10:08
af mind
Póstum á ekki að vera breytt af stjórnendum.... en britney ætlaði sennilega ekki að snoða sig og nota fíkniefni heldur.
Allavega með heyrnatól.
Það er töluvert erfiðara að smíða góð lokuð heyrnatól en opin, bara einfaldlega vegna þess hvernig hljóðbylgjur og einangrun virkar.
Því færðu betri heyrnatól að öllu jöfnu fyrir peninginn ef þú kaupir opin.
Reyndu að forðast heyrnatól sem eru ekki með innfelda púða nema þú sért viss um að þú getir lifað með þeim (sbr 437 & 457 & 465 eru ekki með innfelda púða)
Þá er samt í raun bara eftir 200 & 500 serían.
Áður en þú vilt ekki eyða meiru en 5k í heyrnatól myndi ég fara í Pfaff eða Tölvulistann sem báðir eru með Sennheisser stand og aðeins skoða og prufa muninn á þessum heyrnatólum, ég hef átt flest allar týpur af sennheisser og 595 eru langtum betri og þægilegri heldur en öll önnur sem ég hef prufað. Og ég hingað til prufað í lengri tíma 201(stútaði þeim á bara mánuð),202(stútaði),280(reyndar mjög lokuð heyrnatól), 457,465,515,555 og 595
Re: Heyrnartól - pælingar
Sent: Fös 12. Sep 2008 10:13
af CendenZ
mind skrifaði:Póstum á ekki að vera breytt af stjórnendum.... en britney ætlaði sennilega ekki að snoða sig og nota fíkniefni heldur.
Allavega með heyrnatól.
Það er töluvert erfiðara að smíða góð lokuð heyrnatól en opin, bara einfaldlega vegna þess hvernig hljóðbylgjur og einangrun virkar.
Því færðu betri heyrnatól að öllu jöfnu fyrir peninginn ef þú kaupir opin.
Reyndu að forðast heyrnatól sem eru ekki með innfelda púða nema þú sért viss um að þú getir lifað með þeim (sbr 437 & 457 & 465 eru ekki með innfelda púða)
Þá er samt í raun bara eftir 200 & 500 serían.
Áður en þú vilt ekki eyða meiru en 5k í heyrnatól myndi ég fara í Pfaff eða Tölvulistann sem báðir eru með Sennheisser stand og aðeins skoða og prufa muninn á þessum heyrnatólum, ég hef átt flest allar týpur af sennheisser og 595 eru langtum betri og þægilegri heldur en öll önnur sem ég hef prufað. Og ég hingað til prufað í lengri tíma 201(stútaði þeim á bara mánuð),202(stútaði),280(reyndar mjög lokuð heyrnatól), 457,465,515,555 og 595
Ég er með Hd 650 og þau eru tífalt betri en 595
þau kosta bara doldið mikið og þarf amp með
Re: Heyrnartól - pælingar
Sent: Fös 12. Sep 2008 10:18
af ManiO
KermitTheFrog skrifaði:er póstum hérna breytt af stjórnendum??
Stundum jú, þá aðalega titlum á þráðum þar sem hann hefur ekki verið nógu lýsandi (og þar af leiðandi stenst ekki kröfurnar sem settar eru á titlum í reglum spjallsins), sjá 2. gr. í
reglunum.
Re: Heyrnartól - pælingar
Sent: Fös 12. Sep 2008 11:53
af KermitTheFrog
nýliði
ef maður skrifar "n 0 0 b" (án bila) þá kemur sjálfkrafa "nýliði"
Re: Heyrnartól - pælingar
Sent: Sun 14. Sep 2008 01:34
af boot.ini
Gúrú skrifaði:Fáðu þér samt opin heyrnatól, mun betra. [í skólanum]
WHAT! Hvað áttu við? ertu ekki að snúa þessu algjörlega við?
Ef ég væri að fara að versla mér headphone fengi ég mér þessi:
http://www.sennheiser.com/sennheiser/ho ... uct=004974 Ég hef aldrei skilið fólk sem er tilbúið að kaupa sér svaka hljóðkort en fer svo að spara þegar að kemur að því að hlusta á e-h úr þeim.
Re: Heyrnartól - pælingar
Sent: Sun 14. Sep 2008 01:49
af Gúrú
boot.ini skrifaði:Gúrú skrifaði:Fáðu þér samt opin heyrnatól, mun betra. [í skólanum]
WHAT! Hvað áttu við? ertu ekki að snúa þessu algjörlega við?
Nei
Re: Heyrnartól - pælingar
Sent: Þri 25. Nóv 2008 12:12
af KermitTheFrog
http://www.computer.is/vorur/6606http://www.computer.is/vorur/5751Nú er ég svona aðallega að spá í þessum tveimur.. Hvort er betra að vera með opin eða lokuð?? Ekkert í skólanum eða neitt, bara heima í tölvunni og þegar ég er að fara eitthvert með iPodinn
Re: Heyrnartól - pælingar
Sent: Þri 25. Nóv 2008 12:43
af einarhr
Ég er sjálfur að nota HD435 sem eru opin, þau eru mjög þægileg en hleypa inn utanaðkomani hljóðum sem getur verið pirrandi fyrir suma. Lokuð hleypa minni af hljóðum inn.
Það sem ég myndi gera er að fá að prófa bæði tólin, þú finnur strax hvor þú fílar betur.
Re: Heyrnartól - pælingar
Sent: Þri 25. Nóv 2008 13:39
af mind
[quote="KermitTheFrog"]http://www.computer.is/vorur/6606
http://www.computer.is/vorur/5751Nú er ég svona aðallega að spá í þessum tveimur.. Hvort er betra að vera með opin eða lokuð?? Ekkert í skólanum eða neitt, bara heima í tölvunni og þegar ég er að fara eitthvert með iPodinn[/quote]
Sagði áður með gæði en ef þú ert að tala um þægindi þá finnst fólki almennt Opin heyrnatól þægilegri þegar kemur að því að vera með þau á sér í lengri tíma. (bara einfaldlega vegna hönnunar, þau þurfa ekki að vera eins þröng um hausinn til að stoppa hljóð, yfirleitt léttari, lofta betur uppá hita o.s.f.)
Ég myndi passa mig örlítið á HD 435 sökum þess að þau eru ekki með innfelda púða, prufaðu þau til að vera viss það henti þínum stíl.
HD202 eru frekar dýr þarna
http://www.pfaff.is/hljomtaeki/heyrnartol/lokud/http://www.tl.is/vara/9977
Re: Heyrnartól - pælingar
Sent: Þri 25. Nóv 2008 14:33
af KermitTheFrog
Ok, TL er líka nær mér
Takk fyrir þetta.. Skelli mér á þetta í næstu viku