Síða 1 af 1

Sjónvarpsflakkari

Sent: Mið 10. Sep 2008 16:21
af arnar7
sælir.
nú er svo komið að manni langar í Sjónvarpsflakkara ég var að spá í svona hýsingu http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... Abigs_370S
og svona hörðum diski í hana http://www.computer.is/vorur/5775
hvernig lýst ykkur á þetta..

endilega commenta ef þið hafið reynslu af þessari hýsingu..

takk fyrir

Re: Sjónvarpsflakkari

Sent: Mið 10. Sep 2008 16:24
af Gúrú
ÉG myndi taka Seagate/Samsung disk, hef einfaldlega heyrt betri reynslusögur af þeim heldur en WD.

Það er aldrei gott að spara þegar kemur að hörðum diskum ef þú vilt ekki missa gögnin án fyrirvara :)

Re: Sjónvarpsflakkari

Sent: Mið 10. Sep 2008 18:13
af arnar7
ég hef það nú bara í hug að geima Bíómyndir og þætti og svoleiðis á honum þannig ég er spá í að fá mér bara þennan WD nema að þú eða einhver annar getu bent mér á Samsung/seagate á svipuðu verði 250+

Re: Sjónvarpsflakkari

Sent: Mið 10. Sep 2008 18:27
af arnar7
En einhver hérna sem á svona hýsingu? hvernig eru þær að skila sér? hljólátar,góð gæði,og góð kæling?

Re: Sjónvarpsflakkari

Sent: Mið 10. Sep 2008 18:38
af zedro
@arnar7: Notaðu breyta takkann í staðinnn fyrir at tvípósta.

Re: Sjónvarpsflakkari

Sent: Sun 14. Sep 2008 00:20
af arnar7
sorry með þetta Zedro ,
en er einhver sem hefur reynslu eða veit eitthvað um þessar hýsingar?

Re: Sjónvarpsflakkari

Sent: Sun 14. Sep 2008 01:05
af boot.ini
Þessar hýsingar eru frekar háværar. Samt er þetta besta tv hýsing sem ég hef prófað. Ég tók viftuna úr minni því það voru bara allt of mikil læti í henni.

Það þarf að hafa smá fyrir því að fá þetta í hljóðlátt en annars eru þetta góðar hýsingar

Re: Sjónvarpsflakkari

Sent: Sun 14. Sep 2008 01:37
af andribolla
ljótur flakkari og alllllllt of litill hd !

Re: Sjónvarpsflakkari

Sent: Sun 14. Sep 2008 10:08
af arnar7
takk fyrir svörin, ætli maður skelli sér ekki bara á þessa hýsingu bráðlega :P