Síða 1 af 1
Núna er minns grátandi
Sent: Þri 28. Okt 2003 02:27
af gnarr
Ég held að 81GB Maxtor diskurinn minn sé klikkaður! hann er núna búinn að bila 27.október 2 ár í röð
Ég hef aldrei vitað annað eins.. 27. okt í fyra, þá ruglaðist FS á disknum :p og ég varð að bjarga öllu af honum og re-formata hann og setja allt inna aftur. núna í gær komst ég alltíeinu ekki inní windows. svo að ég fór að tékka á disknum... hellingur af dauðum sectorum ;(
diskurinn er þá endanlega dauður, svo það er ekkert að gera nema að bjarga draslinu af honum og fara svo niðrí TB á morgun og fá nýjann.
Sent: Þri 28. Okt 2003 18:01
af Hlynzi
núnú. Maxtor hefur verið ofurmerki á markaðinum bara lengi vel. Þetta er fyrsti diskurinn sem ég heyri af með svona bilun.
Ertu kannski með hann á óhagstæðum stað. IBM heitin mín biluðu bara útaf of miklum hita, kæling hefði haldið honum gangandi enn í dag (60 GXP línan, 41gb diskur)
Sent: Þri 28. Okt 2003 23:48
af gnarr
OK!!! þetta er fokkin skrítið!! Núna var 160GB Maxtorinn minn að deyja líka ;( við erum að tala um 40GB af tónlist sem ég er búinn að vera að taka upp. 100GB af bíómyndum, öll forritin mín, ALLAR digital myndirnar mínar og allt sem ég var búinn að bjarga af 81GB disknum! Það sem er skrítið er að það hreinlega KVEIKNAR EKKI á disknum! hann snýst ekkert og það gerist ekki neitt
Hvernig geta 2 diskar bilað á 2 dögum !!! Þetta eru báðir MAxtor diskar.. sem ég, alveg eins og þú hlynur, hef aldrei heyrt um að bili!
diskarnir voru báðir í mjög góðri kælingu, fóru sjaldan yfir 30°c og á MJÖG góðu PSU (zalman 400APF).
þetta er SKRÍTIÐ!
;( ;( ;( ;( ;(
Sent: Mið 29. Okt 2003 01:05
af J0ssari
gnarr skrifaði:OK!!! þetta er fokkin skrítið!! Núna var 160GB Maxtorinn minn að deyja líka ;( við erum að tala um 40GB af tónlist sem ég er búinn að vera að taka upp. 100GB af bíómyndum, öll forritin mín, ALLAR digital myndirnar mínar og allt sem ég var búinn að bjarga af 81GB disknum! Það sem er skrítið er að það hreinlega KVEIKNAR EKKI á disknum! hann snýst ekkert og það gerist ekki neitt
Hvernig geta 2 diskar bilað á 2 dögum !!! Þetta eru báðir MAxtor diskar.. sem ég, alveg eins og þú hlynur, hef aldrei heyrt um að bili!
diskarnir voru báðir í mjög góðri kælingu, fóru sjaldan yfir 30°c og á MJÖG góðu PSU (zalman 400APF).
þetta er SKRÍTIÐ!
;( ;( ;( ;( ;(
Ertu viss um að lóðunar nördinn í Iðnskólanum hafi ekki skellt smá auka tini á réttan stað
Spooky að setja í nýtt, fyrrverandi *Damien skrúfjárnað* skjákort. Og svo fara HD's að hrynja hjá þér samdægurs.
Bara smá rugl pæling
Sent: Mið 29. Okt 2003 01:08
af gnarr
efast um að þetta tengist skjákortinu neitt.. en hörðudiskarnir mínir eru að hrinja eins og spilabort
Sent: Mið 29. Okt 2003 01:21
af J0ssari
gnarr skrifaði:efast um að þetta tengist skjákortinu neitt.. en hörðudiskarnir mínir eru að hrinja eins og spilabort
En var 160gb diskurinn á sömu 4pin snúru og þú tengdir í 9700pro, allt sem ég vill vita =)
Hef steykt harða diska á marga vegu
Sent: Mið 29. Okt 2003 01:23
af gnarr
nei. ég var með ati-inn á alveg sér power snúru. það er eins power inputið hafi hreinlega alveg disconnectast frá disknum. ;( kemur ekkert hljóð frá honum eða ljós á hann.
Sent: Mið 29. Okt 2003 01:26
af J0ssari
gnarr skrifaði:nei. ég var með ati-inn á alveg sér power snúru. það er eins power inputið hafi hreinlega alveg disconnectast frá disknum. ;( kemur ekkert hljóð frá honum eða ljós á hann.
Þarmeð er tilgátan mín gerð að eingu
, sammt ekki eðlilegt að þeir séu að hrynja svona hjá þér. Prófa 160gb diskinn eitthvað meira, ekki víst hann sé *dauður*.
Sent: Mið 29. Okt 2003 01:29
af gnarr
Ég er búinn að prófa að setja hann á annað 12v socket. það virkaði ekki á 160inn en það socket virkaði á 2 aðra diska, sama með ATA kapalinn. ég ætla samt að prófa hann aftur á morgun.. kanski er hann með eitthvað svona tímabundið ;( er ekkert sona að ganga? ekkert 28. október 2003 vandamál eins og 2000vandinn frægi?
Sent: Mið 29. Okt 2003 01:37
af J0ssari
BTW til hamingju með nýja skjákortið. Bara betra að það sé smá *moddað*, þótt að það hafi verið nauðsinlegt
. Ekki slæmur prís heldur.
Sent: Mið 29. Okt 2003 04:45
af DarkAngel
Afhverju prófar þú ekki diskinn í einhverri annarri tölvu og tjékkar hvort að hann sé að virka þar
Sent: Mið 29. Okt 2003 09:02
af Hlynzi
gnarr skrifaði:OK!!! þetta er fokkin skrítið!! Núna var 160GB Maxtorinn minn að deyja líka ;( við erum að tala um 40GB af tónlist sem ég er búinn að vera að taka upp. 100GB af bíómyndum, öll forritin mín, ALLAR digital myndirnar mínar og allt sem ég var búinn að bjarga af 81GB disknum! Það sem er skrítið er að það hreinlega KVEIKNAR EKKI á disknum! hann snýst ekkert og það gerist ekki neitt
Hvernig geta 2 diskar bilað á 2 dögum !!! Þetta eru báðir MAxtor diskar.. sem ég, alveg eins og þú hlynur, hef aldrei heyrt um að bili!
diskarnir voru báðir í mjög góðri kælingu, fóru sjaldan yfir 30°c og á MJÖG góðu PSU (zalman 400APF).
þetta er SKRÍTIÐ!
;( ;( ;( ;( ;(
Þetta er mjög skrítið. Eina sem mér dettur í hug er að PSU sé að gefa þeim shock.. það kemur fyrir einhverja yfir 12 og /eða 5 voltin sem þeir keyra á. Þú verður að fara með þetta í viðgerð. Þessvegna væri ég ekki hissa þótt að þú gætir fengið nýja stýringu og notað diskinn aftur ef þú ert heppinn. Þótt PSU sé mjög gott jú, þá getur allt bilað, sama hvað það heitir.
Sent: Mið 29. Okt 2003 12:28
af GuðjónR
Vírus?
Sent: Mið 29. Okt 2003 13:02
af Fox
Backup?
Ég skrifa allt á diska sem er inni á minni vél.
Þarf circa 22 diska til að brenna út af 100 GB harðadiski.
Og vitiði? Þessi gögn skemmast aldrei.
Svo er ég með lítið sætt catalog yfir þetta allt.
Ef ég vil installa forriti eða horfa á kvikmynd, opna ég catalog, browsa diskana eins og þeir væri í drifinu, klikka á fileinn, og þá kemur "please insert disk #86" :P
rokkar!
Sent: Mið 29. Okt 2003 14:40
af gnarr
þetta er pottþétt ekki vírus.. það sem mér fynnst samt skrítnast er að 5 ára gamli maxtor diskurinn minn er eini sem er enn lifandi. ég talaði annars við kallinn í tæknibæ áðan :p mér sýnist hann ætla að vera með eitthvað bögg útaf þessu. mér var einmit búið að detta í hug að það væri kanski hægt að skipta um controller á disknum.
Spurning:
Ég er með Radeon 9700pro sem að er náttla keyrt gegnum sama 12v system og diskarnir, ég hefði nú haldið að það væri "dauðlegra" en diskarnir hvað varðar rafshokk og þannig.
Sent: Mið 29. Okt 2003 17:11
af J0ssari
Spurning:
Ég er með Radeon 9700pro sem að er náttla keyrt gegnum sama 12v system og diskarnir, ég hefði nú haldið að það væri "dauðlegra" en diskarnir hvað varðar rafshokk og þannig.
Skjákort hefur ekkert við 12v/5v að gera og verður að spenna þau niður í 3.3v/1.5v/... sem það þarf. Þannig sú rás ætti að vera mun harðgerðari en stýring á hörðum disk, sem notar bara þessi 12v/5v beinnt frá PSU.
Sent: Mið 29. Okt 2003 23:22
af Zaphod
Þetta er nú svoldið spes ?????
PSU eða diskarnir ofhitna . það eru einu ástæðurnar sem mér detta í hug ...............
Ertu búinn að leita á netinu af einhverjum sem hefur lent í svipuðu ? Maxtor forums ef þau eru til ?
Sent: Mið 29. Okt 2003 23:28
af ICM
núna er minns hlæjandi
Sent: Fim 30. Okt 2003 00:25
af gnarr
Svona er þetta/og var þetta þegar diskarnir biluðu ;( ég sé ekkert athugavert. fínn hiti og voltin öll í lagi.
Sent: Fim 30. Okt 2003 01:14
af Arnar
Hérna.. hvaða diskar eru með hitamæli í sér?
IBM diskurinn minn er með svoleiðis.. en ekki Seagate B. 120GB SATA.
Eða þarf að stilla e-ð spes til að það sjáist í speedfan?
Og hvernir læt ég kassavifturnar koma´i þetta?
Er með 4x Papst viftur.
Svo er ég með Zalman heatpipe á þessum IBM disk, aðallega til að þagga almennilega í honum
Heyrist EKKERT í honum nú
Er það að kæla hann þarna e-ð eða? Pældi ekkert í því áður en ég setti hann í þetta.
Sent: Fim 30. Okt 2003 01:17
af gnarr
lestu readme og fiktaðu í configur
þetta er ekkert gífurlega flókið. speedfan sér ekki diska sem eru á raidi :p
Sent: Fös 07. Nóv 2003 20:57
af Lakio
tæknibæ=bögg
ég versla ekki við þá AFTUR!
Sent: Fös 07. Nóv 2003 21:41
af gumol
Eg er ekki sammála, ég keypti einusinni vinsluminni þaðan en það virkaði ekki með minninu sem var þegar í tölvuni svo ég fór þangað og það var ekkert mála að skipta, afgreiðslumaðurinn var mjög góður og ekkert pirraður á þessum þursaskap að kaupa vtlaust minni.
Sent: Lau 08. Nóv 2003 01:53
af Nemesis
Fox: er þetta forrit? hvaða forrit þá?