Síða 1 af 1

Spurningar varðandi kaup á nýrri tölvu

Sent: Þri 19. Ágú 2008 13:58
af Bréfaklemma
Gamla tölvan er hætt að standa sig sem skildi í tölvuleikjunum þannig að ég er farinn að huga að kaupum á nýrri vél. Ég vil halda mig við 100.000 kr helst og alls ekki meira en 115.000. Ég setti saman eftirfarandi tilboð á tolvutaekni.is

- Antec Three Hundred turnkassi með 3stk hraðastýrðar kæliviftur
- Thermaltake PurePower 500W aflgjafi með hljóðlátri 12cm viftu
- Gigabyte EP35-DS3L, s775, 4xDDR2, 4xSATA2, PCI-Express
- Intel Core 2 Duo E8400 3.0GHz, 1333MHz, 6MB cache, 45nm, OEM
- SuperTalent 4GB kit(2x2GB) DDR2 800MHz CL5, PC6400
- Gigabyte ATI Radeon HD4850 512MB GDDR3
- Microsoft Windows Vista Home Premium 32bit - OEM útgáfa

Þetta allt kostar mig 97.300 kr.

Ég ætla að nota geisladrifið og hörðudiskana úr gömlu tölvunni og ég á eftir að bæta við örgjörvakælingu.

Þannig að ég spyr:
Er það ógáfulegt að ætla sér að nota tveggja ára gamalt geisladrif og harðan disk?
Hvaða örgjörvakælingum mælið þið með?(frá Tölvutækni þá)
Er þetta skjákort að gera sig í nýlegum leikjum?
Ef ég hringi í þá/sendi þeim tölvupóst er líklegt að þeir geri mér enn betra tilboð í þennan búnað?
Vitið þið hvort Tölvutækni á von á að fá HD 4870 bráðum eða ætla þeir ekki að bjóða upp á það?

Re: Spurningar varðandi kaup á nýrri tölvu

Sent: Þri 19. Ágú 2008 14:58
af kallikukur
skipta 4850 út fyrir 4870 :)

og þá ertu nokkuð góður

Re: Spurningar varðandi kaup á nýrri tölvu

Sent: Þri 19. Ágú 2008 15:01
af Halli25
kallikukur skrifaði:skipta 4850 út fyrir 4870 :)

og þá ertu nokkuð góður

Myndi ætla að 4850 sé alveg nóg í nýja leiki en auðvitað 4870 er mun öflugra en það þarf auðvitað að punga út þó nokkru meira fyrir það :

Re: Spurningar varðandi kaup á nýrri tölvu

Sent: Þri 19. Ágú 2008 15:20
af Bréfaklemma
Er það 10.000 kr virði að færa sig uppí HD 4870 með það í huga að ég þarf ekki meira en tölvu sem nær góðu fps í COD 4 og getur keyrt þá leiki sem koma í haust í sæmilegum gæðum?
Svo get ég ekki séð betur en að Tölvutækni séu ekki með HD 4870 en það er svosem ekkert út úr myndinni að versla við aðra verslun.

Re: Spurningar varðandi kaup á nýrri tölvu

Sent: Þri 19. Ágú 2008 15:27
af mind
Að nota geisladrifið er ekki sem maður á að forðast nema það sé hávært eða álíka.
Harðir diskar hinvegar hafa hraðast ágætlega upp síðustu árin, held fyrir peninginn og öryggi að það sé ekki vitlaust að splæsa í nýjan , maður þarf alltaf meira pláss.

http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=966
Þessi er mjög fín að gefinni reynslu.

Skjákortið er gott, 4870 er betra.

Það munar ekki miklu en þú færð örugglega eitthvað , og það telur.

Re: Spurningar varðandi kaup á nýrri tölvu

Sent: Þri 19. Ágú 2008 18:26
af KermitTheFrog
vinur minn fékk sér HD 4850 um daginn og er að ná góðum gæðum í COD 4, Crysis og fleiri nýlegum leikjum

Re: Spurningar varðandi kaup á nýrri tölvu

Sent: Þri 19. Ágú 2008 20:14
af urban
KermitTheFrog skrifaði:vinur minn fékk sér HD 4850 um daginn og er að ná góðum gæðum í COD 4, Crysis og fleiri nýlegum leikjum


það sem að þarf að fylgja svona sögu er

A. hvernig vélbúnaður er annar í vélinni
B. hvað stór skjár
C. (langmikilvægast) upplausn !!!!

ekkert mál að ná þrusu gæðum á eldri skjákortum í hinum og þessum leikjum ef að ég spila í 800x600 það er að segja.

en þegar að menn eru með alvöru skjái og vilja nota native upplausn í þeim þá þarf yfirleitt betri skjákort.

Re: Spurningar varðandi kaup á nýrri tölvu

Sent: Þri 19. Ágú 2008 21:40
af KermitTheFrog
hann er að keyra þetta á 17" skjá í 1280x1024

Re: Spurningar varðandi kaup á nýrri tölvu

Sent: Mið 20. Ágú 2008 00:12
af kallikukur
þá er hd4850 alveg nóg fyrir þig :)

Re: Spurningar varðandi kaup á nýrri tölvu

Sent: Mið 20. Ágú 2008 09:40
af beatmaster
KermitTheFrog skrifaði:hann er að keyra þetta á 17" skjá í 1280x1024
Þá myndi ég segja að HD4850 væri algjört overkill...