Síða 1 af 1
Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Mán 18. Ágú 2008 13:39
af bjornvil
Sælir félagar
Hvaða skjákort er svona mesta bang-for-buck sem er í boði í dag???
Ég er með Geforce 8600GTS og vill fara að uppfæra, en er ekki tilbúinn að fara í mjög dýrt kort.
Mér lýst svakalega vel á 8800GT kortin, hægt að fá þau alveg niður í 15,860 Kr. (Sparkle kort í Tölvuvirkni). Þau fengu allavega MEGA dóma á sínum tíma og þóttu bestu kortin fyrir peningin þegar þau komu út. Voru að nálgast 8800 GTX performance á brot af verðinu.
En nú eru nokkuð mörg kort búin að koma í kjölfarið og ég var að vona að þið gætuð komið með einhverjar ráðleggingar með kort.
Ég vill helst kaupa kort sem er á bilinu 15-20 þúsund kall.
Takk takk!
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Mán 18. Ágú 2008 13:53
af KermitTheFrog
HD 4850
20.000 í Tölvuvirkni
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Mán 18. Ágú 2008 14:14
af bjornvil
KermitTheFrog skrifaði:HD 4850
20.000 í Tölvuvirkni
OK, hef lítið skoðað ATI kortin... við hvaða Geforce kort má miða þetta kort við???
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Mán 18. Ágú 2008 14:29
af GGG
Sammála, HD4850, þarft ekkert að hugsa þetta meira ef þú ert að spá í kort í kringum 15-20 þús.
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Mán 18. Ágú 2008 14:31
af beatmaster
bjornvil skrifaði:KermitTheFrog skrifaði:HD 4850
20.000 í Tölvuvirkni
OK, hef lítið skoðað ATI kortin... við hvaða Geforce kort má miða þetta kort við???
9800 GTX+
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Mán 18. Ágú 2008 15:26
af mind
Amm HD4850 fær mitt atkvæði
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Mán 18. Ágú 2008 15:50
af LillGuy
HD4850!!!!!! ATI er í toppin núna eiginlega!
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Mán 18. Ágú 2008 16:46
af bjornvil
Takk fyrir svörin félagar.
Það má kannski taka það fram að ég nota 19" skjá í 1440x900 upplausn, býst ekki við að fara í stærra á næstunni.
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Mán 18. Ágú 2008 17:10
af Matti21
Nýtt út úr búð er HD4850 klárlega best fyrir peninginn í dag.
Aftur á móti er ég með 8800GT Superclocked frá eVGA með thermaltake DuOrb kælingu til sölu á 10.000kr ef þú hefur áhuga.
Hitinn á kortinu hefur ekki farið yfir 45°C hjá mér með DuOrb kælingunni meðan hann fór upp í 86°C á stock kælingunni og þá var farið að heyrast duglega í henni.
Kortið hefur aldrei failað hjá mér, var keypt hjá tölvutækni í október-nóvember í fyrra og ætti að ráða nokkuð vel við allt á 1440x900.
Sendu mér skilaboð ef þú hefur áhuga.
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Þri 19. Ágú 2008 12:01
af bjornvil
Hmmm, er ennþá á báðum áttum...
Skiptir einhverju máli hvernig móðurborð ég er með, þ.e.a.s. ef ég fer í ATI kortið?
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Þri 19. Ágú 2008 12:30
af KermitTheFrog
bara ef þú ætlar að fara í CrossFire í framtíðinni þarftu að vera með CrossFire compatible móðurborð
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Þri 19. Ágú 2008 12:52
af ÓmarSmith
Þetta 8800GT kort eru pottþétt góð kaup. getur þá notað restina af peningnum í e-ð annað
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Þri 19. Ágú 2008 13:48
af bjornvil
ÓmarSmith skrifaði:Þetta 8800GT kort eru pottþétt góð kaup. getur þá notað restina af peningnum í e-ð annað
Jú, það er alveg rétt hjá þér. Er reyndar aðallega að hugsa aðeins út í framtíðina með að kaupa HD4850, en þá verður væntanlega hægt að fá það á 10.000 kall notað
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Þri 19. Ágú 2008 14:18
af MuGGz
Ég myndi segja að 8800GT kortið séu flott kaup
uppá framtíðina þá myndi ég segja að HD4850 væri ekki það besta, 4870 væri nær uppá framtíðina að gera
þannig persónulega myndi ég kaupa þetta 8800GT kort núna og uppfæra þá jafnvel í notað HD4870 seinna meir ef að 8800GT kortið dugar þér ekki lengur
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Þri 19. Ágú 2008 18:25
af DaRKSTaR
mikið rétt.. ef þú ætlar að tryggja þig eitthvað upp á framtíðina að gera þá hiklaust 4870.
myndi hiklaust segja að 10 þús fyrir þetta 8800 kort væri fínn díll.
ati eru virkilega að sækja í sig verðið núna og með 4800 línunni eru þeir bókstaflega búnir að valta yfir nvidia í performance vs verð.
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Þri 19. Ágú 2008 20:15
af CendenZ
...notað skjákort.
til þess er m.a. vaktin
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Þri 19. Ágú 2008 21:22
af sigurbrjann
hd 4850 er frábært og verður ekkert úrelt fyrr en eftir í fyrstalagi 4-5 ár og kostar ekki nema 200 þús
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Þri 19. Ágú 2008 21:28
af MuGGz
sigurbrjann skrifaði:hd 4850 er frábært og verður ekkert úrelt fyrr en eftir í fyrstalagi 4-5 ár og kostar ekki nema 200 þús
Hef það á tilfinningunni að þú hefur stundum ekki hugmynd um hvað þú ert að tala..
4850 er ekki high end kort og þar að leiðandi mun það ekki vera nóg næstu 4-5 árin tala nú ekki um ef þú ætlar að spilar leiki sem koma út næstu árin í 1920x1680 upplausn ...
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Þri 19. Ágú 2008 22:02
af sigurbrjann
átti að vera 20 þús
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Þri 19. Ágú 2008 23:17
af Gúrú
sigurbrjann skrifaði:átti að vera 20 þús
Samt sem áður rangt...
5 ár? Fáránleg tala.
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Mið 20. Ágú 2008 00:57
af DaRKSTaR
sigurbrjann skrifaði:hd 4850 er frábært og verður ekkert úrelt fyrr en eftir í fyrstalagi 4-5 ár og kostar ekki nema 200 þús
hehe.. sjáðu 8800gtx það dugði í 2 ár, verð að vísu að viðurkenna að það er mjög lángur líftími.
4850 verður kannski ok í 1 ár max. engin trygging, þetta er lowbudget kort og er að performa mjög vel í dag, engin trygging fyrir því að það verði að performa vel í leikjum sem koma um jólin eða eftir áramót.
þegar ég uppfærði mína vél var mitt limir þannig, ef ég get keyrt crysis í hámarksupplausn með allt í botni án þess að hann hiksti þá mundi þessi vél duga vel í alla leiki í 1 ár allavega, til að tryggja mig ennfrekar fékk ég mér crossfire móðurborð þannig að ég ætti alltaf möguleika á að troða öðru 4870 korti í hana seinna, þar með lengt líftímann á henni eitthvað.. máski 2 ár.
4-5 ár er algjörlega óraunhæft sama hvaða tölvu þú kaupir í dag.
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Mið 20. Ágú 2008 09:15
af Daz
Gúrú skrifaði:sigurbrjann skrifaði:átti að vera 20 þús
Samt sem áður rangt...
5 ár? Fáránleg tala.
Eru ekki allir enþá að nota ATI Radeon 9600 ??
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Mið 20. Ágú 2008 11:37
af bjornvil
Ég þakka fyrir góð svör og umræðu drengir.
Ég skellti mér á 8800GT kortið sem Matti bauð mér.
Þrátt fyrir smá byrjunarörðugleika
þá gekk þetta allt upp og allt virkar.
Kortið er að performa ágætlega sýnist mér, þótt ég sé nú ekki búinn að spila neitt af ráði, en ég prufaði Crysis í Windows XP með Very High Settings moddi á 1440x900 upplausn og hann var að keyra á 30-40 römmum í byrjun leiksins sem er þokkalegt held ég
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Mið 20. Ágú 2008 16:14
af littel-jake
ég fékk mér 8800GT fyrir svona mánuði og er bara mjög sáttur með það.
Re: Besta skjákortið fyrir aurinn
Sent: Mið 20. Ágú 2008 17:09
af Gúrú
Daz skrifaði:Gúrú skrifaði:sigurbrjann skrifaði:átti að vera 20 þús
Samt sem áður rangt...
5 ár? Fáránleg tala.
Eru ekki allir enþá að nota ATI Radeon 9600 ??
Frekar úrelt sko... (Þá er ég að tala um kortin í línunni sem eru ca. 5 ára gömul...)