Síða 1 af 1
Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fim 07. Ágú 2008 23:45
af GGG
Jæja, þá er komið að því, ég ætla að kaupa 22" skjá í næstu viku.
Ég er búinn að skoða ótal marga skjái og er alveg ringlaður, mig vantar hjálp.
Hvaða skjá á ég að fá mér og afhverju?Pengingar skipta máli, svo ekki mæla með 45-75 þús króna 22" skjá takk
Verðhugmynd er ca. 25-35 þús.
Skjárinn verður mest notaður í leiki, netið, og grafíkvinnslu.
Herbergið sem hann verður í er frekar bjart yfir daginn og inbyggða hátalara þarf ég ekki.
Hlakka til að heyra með hverju þið vaktmenn mælið með
.
.
.
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fim 07. Ágú 2008 23:55
af Gúrú
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fös 08. Ágú 2008 00:46
af Swooper
Hmm, hef einmitt heyrt að ViewSonic og Samsung kaupi skjái sem Acer framleiðir og geri að sínum, og þess vegna sé allt eins gott að kaupa ódýra Acer skjáinn (þó hann sé ekkert ótrúlega góður skjár, þá er hann mjög fínn fyrir 25k). Veit ekki með Benq samt.
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fös 08. Ágú 2008 00:57
af Snorrivk
Ég er með 22"Benq og er mjjjöööögggg sáttur með hann
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fös 08. Ágú 2008 00:59
af hsm
Swooper skrifaði:Hmm, hef einmitt heyrt að ViewSonic og Samsung kaupi skjái sem Acer framleiðir og geri að sínum, og þess vegna sé allt eins gott að kaupa ódýra Acer skjáinn (þó hann sé ekkert ótrúlega góður skjár, þá er hann mjög fínn fyrir 25k). Veit ekki með Benq samt.
Hmm, það finnst mér eitthvað skrítið þar sem að ég hélt að Samsung væri einn stærsti panel-maker á markaðinum í dag.
En endilega leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál.
Viðbót : Ég las einhverstaðar á netinu "hef ekki tíma til að leita" að Sony notar Samsung panels í sín LCD sjónvörp.
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fös 08. Ágú 2008 01:05
af GGG
Ég hef heyrt þetta með BenQ skjáina, að þeir séu bestir miðað við krónutöluna,
en hvað með merki eins og ViewSonic sem Gúrú benti á..?
Eru þeir bara of dýrir miðað við BenQ..?
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fös 08. Ágú 2008 01:21
af Swooper
hsm skrifaði:Swooper skrifaði:Hmm, hef einmitt heyrt að ViewSonic og Samsung kaupi skjái sem Acer framleiðir og geri að sínum, og þess vegna sé allt eins gott að kaupa ódýra Acer skjáinn (þó hann sé ekkert ótrúlega góður skjár, þá er hann mjög fínn fyrir 25k). Veit ekki með Benq samt.
Hmm, það finnst mér eitthvað skrítið þar sem að ég hélt að Samsung væri einn stærsti panel-maker á markaðinum í dag.
En endilega leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál.
Ég sá þetta bara í einhverju user reviewi um Acer skjáinn... Ætti að geta grafið það upp fyrir þig í vinnunni á morgun ef þú vilt. Ekki beint áreiðanlegar heimildir samt, ég viðurkenni það fúslega - sel það því ekki dýrar en ég keypti það.
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fös 08. Ágú 2008 01:39
af GGG
Ok, so far er þetta ViewSonic vs BenQ.....
Einhverjir aðrir skjáir sem ég ætti að skoða..?
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fös 08. Ágú 2008 03:09
af DaRKSTaR
synchmaster 2253bw snildar skjár. þarf að fara 3 þús kall yfir budget en þú sérð ekki eftir því.
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fös 08. Ágú 2008 09:55
af mind
Ég skal bara svara því svart á hvítu.
Samsung selur öðrum panelana sína en ekki öfugt!
Endilega farið bara á t.d.
http://www.flatpanels.dk/skaerme.phpSkrifið inn samsung og leitið.
Að öllu jöfnu eru flest allir 22" skjáir með svipaðan eða sama panel.
Þú ert að borga fyrir hönnun, tengi og virkni í flestum tilvikum. Svosem DVI , HDMI tengi hvernig standur, er hann hækkanlegur o.s.f.
Sjálfur nota ég Samsung.
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fös 08. Ágú 2008 10:12
af vanished
GGG skrifaði:Ok, so far er þetta ViewSonic vs BenQ.....
Einhverjir aðrir skjáir sem ég ætti að skoða..?
Þessi Viewsonic skjár hjá Kísildal er ekki til lengur, en þeir eiga þessa BenQ skjái einnig á 29.500,
Þannig það er ódýrara að taka þá hjá Tölvuvirkni á 26.500
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fös 08. Ágú 2008 10:25
af GGG
Já mér sýnist þetta stefna í BenQ skjáinn, nema einhver bendi mér á eitthvað betra eða ég rekist á einhvern sem er að selja notaðan skjá fyrir lítið.
Frábært að geta fengið ráð og umræður hérna til að hjálpa manni, var orðinn alveg riglaður með kaupin
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fös 08. Ágú 2008 10:54
af mind
GGG - Gott er að hafa í huga að þó allir skjáir noti sama panel þá er myndin ekki sú sama á þeim öllum.
Sumir skjáir eru litstilltir fyrir þig , sumir eru það ekki. Í sumum eru notaðir betri íhlutir en í öðrum sem getur gefið betri raun svartíma o.s.f.
Allir 22" skjáir eru TN 6-bita filmur og ná því EKKI raunlitum, ef þú hefur atvinnu af grafíkvinnslu skiptir það máli, annars voða litlu.
Besta leiðin mun líklega alltaf vera að fá að sjá skjáina hlið við hlið sem þú ert mest að pæla í. Því hvaða skjár hentar hverjum er jafn misjafnt og fólk.
Skjárinn er það tæki tölvunnar sem þú munt eyða öllum þínum stundum að horfa á og því er það svakalegur kostur að vera með réttan skjá sem hentar þér frekar en að reyna spara þúsundkalla.
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fös 08. Ágú 2008 11:07
af GGG
já mind, þetta er alveg rétt hjá þér, og mér sýnist miðað við þennann verðflokk sem ég er að spá í þá sé BenQ málið, rakst reyndar á þennann:
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1015getur einhver sagt mér hvort það sé þess virði að kaupa þennann frekar en BenQ og þá afhverju...
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fös 08. Ágú 2008 11:21
af Halli25
GGG skrifaði:já mind, þetta er alveg rétt hjá þér, og mér sýnist miðað við þennann verðflokk sem ég er að spá í þá sé BenQ málið, rakst reyndar á þennann:
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1015getur einhver sagt mér hvort það sé þess virði að kaupa þennann frekar en BenQ og þá afhverju...
eins og mind sagði þá er sjón sögu ríkari, aldrei kaupa þér skjá nema hafa séð hann í action
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fös 08. Ágú 2008 12:38
af mind
Þessi samsung skjár er mjög góður.
Ég man samt ekki hvort fóturinn er stillanlegur undan honum.
Mér persónulega finnst ókostur að það skuli glampa á ramma skjásins.
Þar sem ég veit ekki um neina verslun með bæði 2253bw og Benq skjáinn til sýnis þá dettur mér helst í hug kannski tölvulistinn sé með acer 22 og samsung skjáinn hlið við hlið til samanburðar.
Það er náttúrulega ekki eins góður nákvæmur samanburður og ef þú gætir tekið 2253BW og Benq en það ætti að sýna þér aðeins muninn á dýrum og ódýrum 22" skjá.
Re: Besti 22" skjárinn - miðað við verð.
Sent: Fös 08. Ágú 2008 14:56
af DaRKSTaR
mind skrifaði:Þessi samsung skjár er mjög góður.
Ég man samt ekki hvort fóturinn er stillanlegur undan honum.
Mér persónulega finnst ókostur að það skuli glampa á ramma skjásins.
Þar sem ég veit ekki um neina verslun með bæði 2253bw og Benq skjáinn til sýnis þá dettur mér helst í hug kannski tölvulistinn sé með acer 22 og samsung skjáinn hlið við hlið til samanburðar.
Það er náttúrulega ekki eins góður nákvæmur samanburður og ef þú gætir tekið 2253BW og Benq en það ætti að sýna þér aðeins muninn á dýrum og ódýrum 22" skjá.
glampinn á rammann venst ótrúlega fljótt, kannski ekki alveg að marka samanburð í búðum, þeir eru yfirleitt með þetta tengt í analog og þar af leiðandi sérðu ekki alveg 100% getu skjásins.
2253bw hefur 1000:1 í raun en 8000:1 dynamic og skulum við ekki gleyma 2ms responce time sem er svakalegur, ég er gífurlega sáttur við minn skjá, finnst lookið á honum flott, eina sem ég finn að honum er að takkanir eru undir honum og svo kemur þetta lítla plast niðurfyrir þannig að maður þarf virkilega að teyja sig eftir tökkunum en það venst eins og allt annað.
hann er hverrar krónu virði.