Síða 1 af 1

Hvaða kort er best miða við kannski 35.000 MAX?

Sent: Þri 22. Júl 2008 20:50
af FannarS
Hef heyrt marga benda mér á ATi HD4870, en það er víst að rúlla yfir GTX260 frá Nvidia, og er mun odýrara. Nú spyr ég ykkur, "nördana", hvað er best í dag. Ég mun nota það helst fyrir leikjaspilun.

Ég er currently með
500" aflgjafa
4600+ x2 dual core
2gb ram
MSI k9n 570 móðurborð

Re: Hvaða kort er best miða við kannski 35.000 MAX?

Sent: Þri 22. Júl 2008 21:49
af TechHead
ATI 4870 kortið mun endast þér lengi og er eins og er það kort sem gefur þér langmesta aflið fyrir peninginn.

Re: Hvaða kort er best miða við kannski 35.000 MAX?

Sent: Þri 22. Júl 2008 22:05
af halldorjonz
TechHead skrifaði:ATI 4870 kortið mun endast þér lengi og er eins og er það kort sem gefur þér langmesta aflið fyrir peninginn.


jaaaaa sæll Minnishraði : 3600 MHz stenst þetta eða :shock:

Re: Hvaða kort er best miða við kannski 35.000 MAX?

Sent: Þri 22. Júl 2008 22:25
af FannarS
TechHead skrifaði:ATI 4870 kortið mun endast þér lengi og er eins og er það kort sem gefur þér langmesta aflið fyrir peninginn.



Heyrðu já. Þetta hef ég heyrt. Ætli maður skelli sér ekki bara á það. Skellið þið í Tölvuvirkni ekki saman í flakkara ? HDD inn í hysingarbox. Held ég panti þetta bara hjá ykkur :) Einnig skemmir ekki fyrir að þið eruð með besta verðið á kortinu.

Re: Hvaða kort er best miða við kannski 35.000 MAX?

Sent: Fim 24. Júl 2008 00:14
af stjanij
halldorjonz skrifaði:
TechHead skrifaði:ATI 4870 kortið mun endast þér lengi og er eins og er það kort sem gefur þér langmesta aflið fyrir peninginn.


jaaaaa sæll Minnishraði : 3600 MHz stenst þetta eða :shock:


já, þetta er rétt þetta er DDR5 minni.

enn ekki spurning um að fá sér HD 4870 =D>

Re: Hvaða kort er best miða við kannski 35.000 MAX?

Sent: Fös 25. Júl 2008 11:47
af Runar
Passaðu bara að þú ert með nógu góðan spennugjafa fyrir þetta.. ekki bara nóg að hafa helling af wöttum.. heldur þarftu hágæða spennugjafa sem eru með næg amper á 12v rail'inu.. veit ekki hvað 4870 kortið þarf.. en flest öflugari kort eru svona 24-28amper á 12v.

Re: Hvaða kort er best miða við kannski 35.000 MAX?

Sent: Fös 25. Júl 2008 12:48
af Halli25
Runar skrifaði:Passaðu bara að þú ert með nógu góðan spennugjafa fyrir þetta.. ekki bara nóg að hafa helling af wöttum.. heldur þarftu hágæða spennugjafa sem eru með næg amper á 12v rail'inu.. veit ekki hvað 4870 kortið þarf.. en flest öflugari kort eru svona 24-28amper á 12v.

Samanber þetta myndband :)

http://www.corsair.com/cinema/movie.aspx?id=622747

Re: Hvaða kort er best miða við kannski 35.000 MAX?

Sent: Fös 25. Júl 2008 13:40
af Runar
Haha.. snilldar tónlist í bakgrunninum á þessu.. catchy :P