Síða 1 af 1

Ódýrt skjákort sem krefst lítils afls(hljóðlátt)?

Sent: Lau 21. Jún 2008 07:21
af Valdegg
Ef ég er að leita að skjákorti fyrir chillaða media center internet tölvu, hvað ætti ég að fá mér?

http://computer.is/vorur/6625

http://computer.is/vorur/4449

Er eitthvað svona of langt gengið kannski?

Annars var ég bara að spá í intel dualcore örgjörva eða einhverju álíka. Einhver með ráðleggingar í sambandi við þessi kaup?

Re: Ódýrt skjákort sem krefst lítils afls(hljóðlátt)?

Sent: Lau 21. Jún 2008 11:28
af TechHead
Tæki hiklaust viftulaust kort í mediacenter vél

8600GT 512MB Viftulaust

Re: Ódýrt skjákort sem krefst lítils afls(hljóðlátt)?

Sent: Mið 25. Jún 2008 14:51
af CendenZ
TechHead skrifaði:Tæki hiklaust viftulaust kort í mediacenter vél

8600GT 512MB Viftulaust


Akkúrat.

Ég er með media center og skjákortið verður að vera viftulaust.

Ég er með 120 mm viftu festa við innréttinguna/skápinn sem tölvan er inn í, ss. tölvan er inn í lokuðum skáp þarsem hún sést ekki, bara með augun fyrir fjarstýringuna og annað auga fyrir músina hjá sjónvarpinu.

þessi vifta er svo bara tengd við tölvuna, dælir heita loftinu út og heldur kassanum miklu kaldari en hann var áður en ég setti þessa viftu.

munar alveg 15 gráðum að setja eina svona viftu.