Síða 1 af 2
Hvaða móðurborð mæliði með fyrir P4 2.8 mhz (800fsb)
Sent: Mið 15. Okt 2003 19:34
af blaxdal
Móðurborð sem er undir 20þús. kalli og er gott fyrir oc.
Látið ljósið ykkar skína.
Asus P4P800 Deluxe
Sent: Mið 15. Okt 2003 19:54
af vedder
Mæli hiklaust með Asus P4P800 Deluxe.
Er með svona borð og það er algjör snild stöðugt, hraðvirkt og flott.
Reyndar mæli ég með því að bios sé uppfærður í nýjustu útgáfu. Nýjast biosinn lagar ýmsa bugga. Mér fannst Win XP ekki virka fullkomlega með gömlu bios útgáfunum.
Hey gleymdi að nefna að borðið verður ekki heitt, mjög kalt ef svo mætti að orði komast. Örgjörvinn hitnar heldur ekki mikið.
Sent: Mið 15. Okt 2003 19:59
af gumol
Ég veit ekkert um þetta borð, en þú baðst um hugmyndir og þetta lítur ágætlega út:
http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=233
Sent: Mið 15. Okt 2003 21:15
af blaxdal
Nice tillögur,
ætla skoða þetta. Komið endilega með meira.
Sent: Mið 15. Okt 2003 22:38
af gnarr
þrjú orð.. I C 7
http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=565
þetta er með bestu borðunum á markaðnum.
Sent: Mið 15. Okt 2003 23:19
af blaxdal
[quote="gnarr"]þrjú orð.. I C 7
hver er munurinn a því og ABIT IC7-MAX3 Annað en kælikerfið???
Sent: Fim 16. Okt 2003 00:07
af gnarr
13.000krónur bara.. held ég.
samkvæmt task.is þá er þetta sona
max3 hefur 6 sata tengi en hitt bara 2
non-max3 er með IrDA port (go knows what that is) en ekki hitt.
nenni ekki að finna meira.
Sent: Fim 16. Okt 2003 00:44
af blaxdal
cool. þá ætti þetta að vera helviti gott mál.
Annað, það er bara til ein teg. af 2800 800 fsb. örranum.
Meina ekki eins og með bartoninn. AQXDA og AQXEA??
Sent: Fim 16. Okt 2003 00:45
af gnarr
ég held að það sé enþá bara eitt stepping í umferð.
Sent: Fim 16. Okt 2003 03:08
af blaxdal
gott mál, fínt að hafa það á hreinu.
Sent: Fim 16. Okt 2003 12:57
af Daz
IrDA port=Infrared port.
Sent: Fim 16. Okt 2003 16:57
af blaxdal
Am.
Ég fann þessa grein á netinu.
Mjög góð fyrir þá sem eru að fara að uppfæra hjá sér P4 móbóið.
http://www.nordichardware.com/reviews/m ... .php?ez=24
Verður þetta að vera dýrt
Sent: Fim 16. Okt 2003 17:53
af vedder
Ég skil ekki alveg afhverju fólk verður alltaf að kaupa það dýrasta. Þú ert að borga rosalegan pening fyrir svo lítið. Intel 865 er ódýrara en 875 en það er ekki mikil munur á þeim, allavega hef ég lesið það á netinu.
Ég heyrði eitthversstaðar að megin munur á Intel 865 og 875 kubbasettinu væri að Intel 875 væri með Pat sem er í raun bara fyrir yfirklukkara (Intel 865 getur líka yfirklukkað).
Annað sem ég skil ekki er afhverju fólk kaupir hraðasta örrann sem er hlutfallslega ógeðslega dýr og enginn forrit eða leikir nýta sér þessa örgjörva á meðan aðeins ódýrari örgjörvar eru í raun hraðari en þú þarft. Svo er alltaf hægt að uppfæra seinna þegar dýrustu örrarnir í dag eru búnir að lækka mikið í verði.
Sent: Fim 16. Okt 2003 19:21
af gnarr
síðan hvenar er p4 2.8ghz dýrasti örgjörfinn á markaðnum? mér sýnast þetta bara vera mjög balanced kaup hjá honum.
þar að auki á maður alltaf að fá sér eins góð móðurborð og hægt er og með eins mikið af nýrri tækni og hægt er (þá er ég ekki að tala um innbyggða hluti, heldur frekar um dót sem að gerir það afkasta meira og endinga meira).
það gildir svipað um örgjörfa. maður á að tékka hvað besti örgjörfinn á markaðnum hefur, og taka svo örgjörfa með nákvæmlega sama features, en clockaðann hægar.
td. p4 3.2GHz er með hyperthreading og 800mhz fsb, þá fynur maður hægasta örgjörfann með þessu. þ.e. p4 2.4GHz HT og 800FSB. þá er maður að gera lang bestu kaupin.
Ok
Sent: Fim 16. Okt 2003 21:29
af vedder
Ég var ekki að meina þetta með örgjörvan í sambandi við hann bara fólk sem kaupir t.d. 3.2Ghz og borgar geðveikan pening fyrir það.
Intel 865 og Intel 875 er nánast eins. Ég var ekki að meina að hann ætti að kaup Intel 845. Bara gefa honum tips með að kaupa Intel 865 og spara svolítið.
Re: Hvaða móðurborð mæliði með fyrir P4 2.8 mhz (800fsb)
Sent: Fim 16. Okt 2003 21:29
af Fox
blaxdal skrifaði:Móðurborð sem er undir 20þús. kalli og er gott fyrir oc.
Látið ljósið ykkar skína.
ASUS P4P800 Deluxe.
Sent: Fim 16. Okt 2003 21:51
af blaxdal
Málið var að ég fékk þennan örgjörva á 20þús. en ekki 27þús þar sem hann er ódýrastur. Þess vegna skellti ég mér í þetta dæmi.
Er líka í því að encoda myndir og því henntar pentium örrinn betur. svona til að koma í veg fyrir miskilning.
Sent: Fös 17. Okt 2003 00:02
af gumol
Pentium hentar alltaf betur
Einginn skal nota AMD nema fátæklingar og vitleysingar.
Úff, svefngalsi
Sent: Fös 17. Okt 2003 00:07
af Daz
gumol skrifaði:Einginn skal nota AMD nema fátæklingar og vitleysingar.
Úff, svefngalsi
Og þeir sem styðja samkeppni við "monopoly". Og GuðjónR.
Sent: Fös 17. Okt 2003 00:12
af gumol
monopoly?
Sent: Fös 17. Okt 2003 09:33
af Daz
gumol skrifaði:monopoly?
Bleh, fákeppni
Sent: Fös 17. Okt 2003 14:29
af Fletch
gnarr skrifaði:þrjú orð.. I C 7
hver er munurinn a því og ABIT IC7-MAX3 Annað en kælikerfið???
MAX borðið er með fleiri SATA tengjum líka og BIOS'in í því er betri til að yfirklukka, meira hægt að stilla, leyfir hærra VCORE t.d.
plús náttla eins og þú segir OTES kælingin og betri kæling á Northbridgeinu
Fletch
Sent: Fös 17. Okt 2003 14:34
af Fletch
gnarr skrifaði:ég held að það sé enþá bara eitt stepping í umferð.
Neinei, það eru líka stepping í gangi á P4, og nokkrar verksmiðju, Costa Rica, Malasía t.d.
En hinsvegar eru ekki nein ákveðin stepping betri en hin, virðist vera voða happa glappa hvað maður fær...
Hef heyrt líka að örgjörva wafferarnir eru framleiddir á sama stað og svo sendir í þessar verksmiðjur þar sem stepping númerið fer á þá, því ekki hægt að treysta því þar sem merkingin segir bara til um hvar örgjörvanum var pakkað niður og hvenær...
Fletch
Sent: Fös 17. Okt 2003 15:08
af gnarr
Fletch skrifaði:P4 2.8c@3.7GHz * Abit IC7-MAX3 * Kingston HyperX PC3500 * AIW 9700Pro @ 390/350
Watercooled * Eheim 1048 * Swiftech MCW5000 * BlackIce Xtreme
Fletch: testaðu að fara með músina yfir örgjörfann... mailto:2.8c@3.7GHz
Sent: Fös 17. Okt 2003 15:11
af Fletch
gnarr skrifaði:Fletch: testaðu að fara með músina yfir örgjörfann... mailto:2.8c@3.7GHz
lol
is fixed!
Fletch