Síða 1 af 1

9800gx2..HJÁLP.

Sent: Mán 14. Apr 2008 07:32
af sjonneh
Ókei í dag er ég að fara að panta mér nýja tölvu loksins..þegar ég kem æur skólanum.
Ætlaði nú að fá mér Q6600 örran og e-h með 9800gx2 kortinu.
En svo var mér sagt að gx2 kortið væri tæknilega bara tvö skjákort föst saman?
Þannig er þetta gx2 kort semsagt að notast við þessa SLI tækni?
Og þar að leiðandi virkar bara eitt kortið í css?

Er þá ekki mun hagstæðara fyrir mig að fá mér 2x8800 gts kortin?

Eða er þetta kannski bara eintómt bull sem ég var að heyra?

Þakka fyrir mig og vonast eftir góðum svörum.
Sjonneh.

Re: 9800gx2..HJÁLP.

Sent: Mán 14. Apr 2008 08:53
af Pandemic
Notast ekki við SLI tæknina, þetta er eitt kort með tveim kjörnum.

Re: 9800gx2..HJÁLP.

Sent: Mán 14. Apr 2008 09:37
af sjonneh
Ókei takk fyrir það=) Þannig þú myndir mæla með þessu korti?

Re: 9800gx2..HJÁLP.

Sent: Mán 14. Apr 2008 14:25
af Sydney
sjonneh skrifaði:Ókei takk fyrir það=) Þannig þú myndir mæla með þessu korti?

Aldrei, 9000 serían er bara rusl.
Fáðu þér 8800GTS 512mb (G92), það er eitt besta kortið á markaðnum í dag og er á hagstæðu verði.

Eitt 8800GTS 512mb á auðveldlega að geta spilað CSS með grafík í botni í 1680x1050 með yfir 100 fps.

Re: 9800gx2..HJÁLP.

Sent: Mán 14. Apr 2008 15:24
af Gúrú
Mæli hiklaust með 8800 GTS 512MB.

Mitt 8800 GT(sem er mun verra) Spilar css í allt high, 1650x1080 og fps er ALLTAF í 100+.

SS. þá mun 8800 GTS 512mb rúlla þessu upp fyrir þig, hef líka góða trú á því að þetta taki crysis mjög vel.

Og eins og er mæli ég alls ekki með því að kaupa 9x kortin, hvað þá 9800.

Re: 9800gx2..HJÁLP.

Sent: Mán 14. Apr 2008 16:09
af Pandemic
Sydney skrifaði:
sjonneh skrifaði:Ókei takk fyrir það=) Þannig þú myndir mæla með þessu korti?

Aldrei, 9000 serían er bara rusl.
Fáðu þér 8800GTS 512mb (G92), það er eitt besta kortið á markaðnum í dag og er á hagstæðu verði.

Eitt 8800GTS 512mb á auðveldlega að geta spilað CSS með grafík í botni í 1680x1050 með yfir 100 fps.


Alls ekki fara með mál sem þú veist ekkert um, 9000 serían er fín en ekki jafn góð og menn bjuggust við, samt þrusu kort.

Re: 9800gx2..HJÁLP.

Sent: Mán 14. Apr 2008 16:58
af Sydney
Pandemic skrifaði:
Sydney skrifaði:
sjonneh skrifaði:Ókei takk fyrir það=) Þannig þú myndir mæla með þessu korti?

Aldrei, 9000 serían er bara rusl.
Fáðu þér 8800GTS 512mb (G92), það er eitt besta kortið á markaðnum í dag og er á hagstæðu verði.

Eitt 8800GTS 512mb á auðveldlega að geta spilað CSS með grafík í botni í 1680x1050 með yfir 100 fps.


Alls ekki fara með mál sem þú veist ekkert um, 9000 serían er fín en ekki jafn góð og menn bjuggust við, samt þrusu kort.

http://forums.techpowerup.com/showthread.php?t=56124

Ég endurtek: Rusl. Þetta ætti frekar að heita 8900GTX og 8900GX2, varla neitt nýtt eða byltingerkennt á ferð þarna.

Re: 9800gx2..HJÁLP.

Sent: Mán 14. Apr 2008 20:40
af beatmaster
Þetta er sjálfsagt í fyrsta sinn í sögu Vaktarinnar sem að öflugasta skjákortið á markaðnum er kallað rusl, ég er líklega bara orðinn svona gamall.... :roll:

Re: 9800gx2..HJÁLP.

Sent: Mán 14. Apr 2008 21:09
af Cikster
Án efa öflugasta sem þú getur fengið ef þú ert bara með eina rauf fyrir skjákort en .....

Miðað við reynsluna sem kom af fyrri gx2 kortunum þá held ég að maður geti gleymt að quad sli fari eitthvað almennilega í gang. 3-4 mánuðir sem 7950 gx2 kortin voru nefnd í driverunum og eftir það var maður farinn að halda að þeir hefðu aldrey gefið þau út því nýlegu driverarnir gerðu ekkert gott fyrir þau. Ef ég man rétt voru 3 driverar sem virkuðu nokkuð vel með þeim.

Re: 9800gx2..HJÁLP.

Sent: Mán 14. Apr 2008 22:13
af GuðjónR
Ég er með gforce 7950 GX2 1GB og það svínvirkar!!!

Re: 9800gx2..HJÁLP.

Sent: Mán 14. Apr 2008 23:20
af e-r
Fáðu þér 8800 GTS, nóg í allt so far

Re: 9800gx2..HJÁLP.

Sent: Mið 16. Apr 2008 22:16
af ÓmarSmith
kallar ekki 9800GX2 rusl og þykist hafa e-ð vit á tölvum og búnaði ;)

Þetta er lang öflugasta kortið í dag EN .... það er ekkert að gera sig fyrir það sem það kostar.

8800GTS 512MB kort er alveg dúndur í dag.

eða notað 8800GTX, það er sama afl, kannski öörlítið meira.

Re: 9800gx2..HJÁLP.

Sent: Mið 16. Apr 2008 22:46
af Sydney
ÓmarSmith skrifaði:kallar ekki 9800GX2 rusl og þykist hafa e-ð vit á tölvum og búnaði ;)

Þetta er lang öflugasta kortið í dag EN .... það er ekkert að gera sig fyrir það sem það kostar.

8800GTS 512MB kort er alveg dúndur í dag.

eða notað 8800GTX, það er sama afl, kannski öörlítið meira.

Rök mín eru byggð á þeim forsendum að það eigi að vera munur í performance þegar þeir breyta um fremstu tölu.

7000 serían var MIKIÐ skref frá 6000 seríunni, eins með 8000 seríuna, 9000 serían er ekkert betri en 8000.

Re: 9800gx2..HJÁLP.

Sent: Fim 17. Apr 2008 12:55
af Selurinn
7000 var nú aldrei neitt stórt skref frá 6000
Það eina sem þeir náðu að gera var að 7000 kortin voru ekki eins power hungry

Re: 9800gx2..HJÁLP.

Sent: Fim 17. Apr 2008 15:47
af Pandemic
Sydney skrifaði:7000 serían var MIKIÐ skref frá 6000 seríunni, eins með 8000 seríuna, 9000 serían er ekkert betri en 8000.


Það eina sem 7000 serían gerði var að bæta rafmagnshungruðu 6000 línuna gerðist lítið annað.