Síða 1 af 1
Logitech G15 lyklaborð Review
Sent: Þri 19. Feb 2008 02:51
af Yank
Sælir
Mín 17. umfjöllun.
Að þessu sinni Logitech G15 lyklaborð nýja útgáfan.
Endilega komið með athugasemdir eða komment.
Kveðja Yank
Sent: Þri 19. Feb 2008 09:11
af halldorjonz
link
Sent: Þri 19. Feb 2008 10:27
af Halli25
halldorjonz skrifaði:link
LINKUR
Sent: Þri 19. Feb 2008 12:08
af Blasti
Flott umfjöllun eins og venjulega en eitt sem sló mig smá
.....það ætti því að uppfylla flest þau skilyrði sem uppfylla þarf ef nota á það til almennrar notkunar samfara leikjum.
Þú hefur örugglega ætlað að nota orðið samhliða
þar sem samfarir hafa sennilega lítið að gera með þetta lyklaborð
Sent: Þri 19. Feb 2008 21:00
af Dazy crazy
Blasti skrifaði:Flott umfjöllun eins og venjulega en eitt sem sló mig smá
.....það ætti því að uppfylla flest þau skilyrði sem uppfylla þarf ef nota á það til almennrar notkunar samfara leikjum.
Þú hefur örugglega ætlað að nota orðið samhliða
þar sem samfarir hafa sennilega lítið að gera með þetta lyklaborð
Yank hefur bara verið svolítið heitur þetta kvöld sem hann gerði þessa umfjöllun.
Logitech G15 er vandað lyklaborð sem fullnægja ætti þörfum kröfuharðasta notanda
LCD skjárinn er ekki einungis skraut, því hann er hægt að nota til að gefa ýmsar gagnlegar upplýsingar eins og upplýsingar um stöðu í leikjum, hvað er verið að spila í media player, hvort þú hafir fengið tölvupóst, hvað er mikið álag á minni og örgjörva, hversu marga ramma Fraps sé að mæla,og hvort konan sé til í tuskið svo eitthvað sé nefnt.
En er usb hubinn í þessu lyklaborði usb1 eins og í gamla?
Sent: Mið 20. Feb 2008 00:35
af egglumber
dagur90 skrifaði:En er usb hubinn í þessu lyklaborði usb1 eins og í gamla?
mér síndist þau vera tvö... eitt sithvorumegin við main kapalinn
sem maður tengir í tölfuna
Sent: Mið 20. Feb 2008 00:42
af Dazy crazy
egglumber skrifaði:dagur90 skrifaði:En er usb hubinn í þessu lyklaborði usb1 eins og í gamla?
mér
síndist þau vera tvö... eitt
sithvorumegin við main kapalinn sem maður tengir í
tölfuna
Mættir kíkja á stafsetninguna. (sýndist, sitt hvoru megin, tölvuna og stór stafur í upphafi málsgreinar og . í lok hennar).
Ég er ekki að meina fjölda usb tengjanna heldur hvort tæknin sé usb1 eða usb2.
Sent: Mið 20. Feb 2008 12:42
af Yank
Þetta er USB1.
Enda ekki ólíklegt að það myndi valda truflun á starfsemi lyklaborðsins ef sett væru tvö USB 2 tæki á græju sem tengist svo með einu USB 2 tengi í tölvuna.
Sent: Mið 20. Feb 2008 14:31
af Dazy crazy
Það var synd, myndi samt alveg vera sáttur við eitt usb2 enda nota ég þetta ekki neitt fyrst það er usb1.
En hvernig er það með usb hubba yfirleitt, eru þeir ekki bara tengdir með einu usb í tölvuna eða er þeim stungið í samband við rafmagn líka annarsstaðar.
Sent: Mið 20. Feb 2008 16:50
af Halli25
dagur90 skrifaði:Það var synd, myndi samt alveg vera sáttur við eitt usb2 enda nota ég þetta ekki neitt fyrst það er usb1.
En hvernig er það með usb hubba yfirleitt, eru þeir ekki bara tengdir með einu usb í tölvuna eða er þeim stungið í samband við rafmagn líka annarsstaðar.
Getur fengið hvort tveggja sem er stungið í samband við usb tengi og rafmagn og svo hubba sem eru bara tengdir við USB tengi í tölvunni.
Sent: Mið 20. Feb 2008 16:54
af Pandemic
Ég er að pondera hvort ég eigi að rífa mitt G15 í sundur og setja 4 porta usb2 powered hub ásamt kortalesara í það.. spurning hvort kortalesarinn komist en hubinn er lítið mál.
Sent: Mið 20. Feb 2008 16:57
af Halli25
Pandemic skrifaði:Ég er að pondera hvort ég eigi að rífa mitt G15 í sundur og setja 4 porta usb2 powered hub ásamt kortalesara í það.. spurning hvort kortalesarinn komist en hubinn er lítið mál.
þessi þráður fer að vera á röngum stað... endilega komdu með þráð um þetta á mod þráðinn... getur verið athyglisvert verkefni
jafnvel spurning að selja hugmyndina til Logitech
G17 lyklaborð á sterum
Sent: Mið 20. Feb 2008 16:59
af zedro
Pandemic skrifaði:Ég er að pondera hvort ég eigi að rífa mitt G15 í sundur og setja 4 porta usb2 powered hub ásamt kortalesara í það.. spurning hvort kortalesarinn komist en hubinn er lítið mál.
Já og ég vill fá myndir af öllu ferlinu
Sent: Mið 20. Feb 2008 22:35
af HaftorS
Yank skrifaði:Það er einungis einn galli á gjöf Njarðar en það vandamál sem ég hef lent í sem líklega má rekja til rekla Logitech eða Windows Vista. Ég sendi fyrirspurn varðandi vandamálið til Logitech og bíð svara. Vandamálið lýsir sér í því að einstaka sinnum þegar gera á kommu yfir séríslenska stafi eins og í eða á kemur (´´) eða tvíkomma, hef ekki áttað mig á því heldur hvað kallar þetta fram. Það hefur ekki tekist að losna við þennan kvilla nema með því að endurræsa vélina sem verður að teljast hvimleitt og minnir á windows 95 daga.
Endilega láttu vita hvað þeir segja um þetta. Þessi galli er alls ekki sniðugur.
En ein spurning annars. Er skjárinn með meiri skerpu heldur en á gamla borðinu? Því það er ekki hægt að stilla skjáinn á nýja borðinu og ef maður horfði "skakkt" á gamla skjáinn sá maður varla neitt. Hvernig eru þeir að koma í veg fyrir þetta?
Sent: Mið 20. Feb 2008 22:56
af Pandemic
Ég reif borðið í spað og ég sé smá séns að koma usb hub en það er frekar pakkað spurning hvort maður geti moddað aðra hliðina fyrir hubinn.