Síða 1 af 2

Q6600 VS Wolfdale 8400

Sent: Þri 05. Feb 2008 17:11
af Selurinn
Ef menn eru að pæla í tónlistarvinnslu og Photoshop, hvort mæliði með QUAD eða Wolfdaleinn?

Ég kem með til að yfirklukka báða hvort sem verður fyrir valinu.

Sent: Þri 05. Feb 2008 17:44
af ÓmarSmith
Quad, ekki spurning.

Það er til annar þráður um það sama hérna.



Flest tónlistarforrit og myndvinnsluforrit styðja 4 kjarna þannig að þetta er aldrei spurning.

Sent: Þri 05. Feb 2008 18:14
af Selurinn
En er ekki Wolfdaleinn öflugri í leiki?

En afþví ég treysti þér mjög vel Ómar.

Þá er 1.35 Volt fyrir Quadinn fínt ef þú ert með góða kælingu og 1.3 gott ef þú ert með stock retail viftu.

En með wolfdalinn? 1.25 með góða kælingu og 1.20 með retail viftu?

Sent: Þri 05. Feb 2008 18:53
af ÓmarSmith
Hvað koma volt stillingar þessu við ?

Þú spurðir hvor væri henntugri í tónlistar og myndvinnslu ;)

got your answer.

Wolfdale-inn ætti faktíst að vera betri í leiki = 45nm, er kaldari, yfirklukkast betur , leikir styðja við 2 kjarna margir, en enginn við 4 eins og er þannig að.

got your second answer ;9

Sent: Þri 05. Feb 2008 18:56
af Selurinn
Þetta var bara svona off-topic spurning til þín.

Hvað má ég bumpa voltinn hátt á E8400 með t.d. OCZ Vindicator, semsagt góð CPU kæling :)

Sent: Þri 05. Feb 2008 19:48
af TechHead
Ég setti E8400 í nýja riggið mitt með Gigabyte X38-DS5, 1200mhz DDR2 og
Thermalright 120 Ultra Extreme.

Varð vægast sagt vonsvikinn þegar ég var að klukka kvikindið.
Hann vildi bara ekki hærra en 3.7 ghz stable . Það gilti engu hvers miklum
voltum ég dældi í hann, fór með hann uppí 1.48v, breytti engu.

Plús það þá er frekar böggandi hita sensor Errata í gjörvanum sem skekkir
allar hitamælingar á örranum.

Fæ Asus Rampage X48 borðið mitt í næstu viku og ætla að smella mér á
E8500 þegar ég swappa borðum, kollegar mínir hafa verið að smella honum
í 4.6 ghz leikandi með Volt í 1.45 :P

Sent: Þri 05. Feb 2008 20:26
af Selurinn
Á lofti eða?

Sent: Þri 05. Feb 2008 20:28
af Klemmi
Thermalright Ultra Extreme er loftkæling já :)

Sent: Þri 05. Feb 2008 20:29
af Selurinn
Hversu mikla spennu myndirðu fara með Q6600 á lofti?

1.35?
1.375?

Sent: Þri 05. Feb 2008 20:37
af TechHead
Selurinn skrifaði:Hversu mikla spennu myndirðu fara með Q6600 á lofti?

1.35?
1.375?


Ert safe upp að 1.55v ef kælingin annar því.

Sent: Þri 05. Feb 2008 21:02
af Selurinn
Hvað má hitinn á þessum kvikindum aftur fara hátt?

Q6600 þ.e.a.s

Sent: Þri 05. Feb 2008 21:21
af TechHead
Reyndu að halda þig innan við 65°C

Sent: Þri 05. Feb 2008 21:22
af Selurinn
Ég held að 1.55 sé alltof mikið.

Á það ekki bara við Duo örgjöva.
Quad náttúrulega hitna helmingi meira heldur en Duo :S

Sent: Þri 05. Feb 2008 22:11
af ÓmarSmith
Eða bara sleppa því að OC svona mikið ;)

Sent: Þri 05. Feb 2008 23:09
af Dazy crazy
Ég held sá valkostur hafi aldrei verið til og muni aldrei vera til. Þegar möguleikarnir eru fyrir hendi að gera eitthvað öflugra "ókeypis" þá er ekkert annað sem kemur til greina :twisted: :roll:

Sent: Þri 05. Feb 2008 23:26
af Pepsi
Overclocking er ekkert nema hobby í mínum augum.

Hærra skor í benchmark forritum, ekkert annað.......


En hver og einn má hafa sitt hobby

Sent: Þri 05. Feb 2008 23:34
af Dazy crazy
Þú ert semsagt að segja að eini munurinn sem þú sérð á því að yfirklukka t.d. quad 6600 úr 2,4 í 3,4 eða 50% sé "bara" benchmark, enginn sjáanleg afkastaaukning í leikjum eða þungum forritum.

Þú mátt svosem hafa þína skoðun en ég tel þetta vera rangt.

Sent: Mið 06. Feb 2008 07:17
af stjanij
dagur90 skrifaði:Þú ert semsagt að segja að eini munurinn sem þú sérð á því að yfirklukka t.d. quad 6600 úr 2,4 í 3,4 eða 50% sé "bara" benchmark, enginn sjáanleg afkastaaukning í leikjum eða þungum forritum.

Þú mátt svosem hafa þína skoðun en ég tel þetta vera rangt.


..... Buuuha ha ha, :lol: þú ert greinilega ekki að fatta hvað er að vera OC fíkill :8)

og jú, þetta er sport......

Sent: Mið 06. Feb 2008 08:29
af ÓmarSmith
Dagur, þú sérð sjáldan sem aldrei þennan mun. Hann finnst og s ést í 3d Mark og PCmark en ekki í almennri leikjaspilun eða forritanotkun. Það væri einna helst í þuuungri forritavinnslu en þá þarftu líka að vera með draslið þitt Vatnskælt eða á Sudda Loftkælingu.

Þó þú farir með með Quad 2.4 í 3.4 þá færðu ekkert 10 fleiri FPS í Crysis t.d, bara ekki alveg að virka þannig .

O.C er meira hobby og fikt en e-ð sem er að skila þér " gríðarlegri " afkastaaukningu, þói það vissulega geti gert það á ákveðnum sviðum.

Sent: Mið 06. Feb 2008 13:07
af Dazy crazy
Þegar örgjörvinn er flöskuháls þá segir það örugglega eitthvað að yfirklukka hann.

Sent: Mið 06. Feb 2008 15:24
af ÓmarSmith
Í hvaða tilfelli er örrinn ( Quad 6600 ) Flöskuháls ?

Með hvaða vélbúnaði er hann að verða flöskuháls hjá þér ?


Það þætti mér gaman að vita.


( Eini sénsinn sem mér dettur í hug er Crysis í 1680 eða hærri upplausn, með 8800Ultra korti eða nýja Ati X2 kortinu )

En ég tel það samt afar ólíklegt.

Ég lennti í flöskuhálsi með minn örgjörva enda er hann stock 2.13 2 kjarna, en ég setti hann í 2.8 til að Crysis myndi njóta sín betur. Finn annars lítinn sem engan mun í daglegri vinnslu.

Sent: Mið 06. Feb 2008 15:27
af ManiO
Þegar já, en nýjustu örgjörvarnir eru ekki flöskuhálsar.

Sent: Mið 06. Feb 2008 18:30
af Dazy crazy
2x8800 gt og 2x2gb black dragon 800 og já allir leikir í 1680x1240 fullum gæðum.

Ef það er enginn sjáanlegur eða finnanlegur munur í vinnslu á 2,4 ghz og 3,4 ghz af hverju í ósköpunum ætti þá nokkur lifandi maður að kaupa sér q6700 sem er bara eins go q6600 nema 220Mhz öflugri, eru þá þeir sem selja þessa q6700 ekkert annað en "svikarar" að selja þá á 100% til 150% hærra verði?

Er Intel ekkert annað en ***** ******* **** **** mergsjúgandi glæpamenn.

Hvernig er staðan í þessum málum hjá AMD, það munar ekki nema 2000 krónum á 9500 og 9600, af hverju geta Intel "glæpamennirnir" ekki gert það?

:D :D

Sent: Fim 07. Feb 2008 12:20
af audiophile
Cakewalk Sonar 7 er eina tónlistarforritið sem styður quad core almennilega.

Fáðu þér E8400 eða hærra.

Sent: Fim 07. Feb 2008 13:23
af Selurinn
Já ég var einmitt að pæla það vegna þess að þetta er tölva handa föður mínum sem er í þessu.

Hann er að nota Logic sem styður örugglega bara einn core og ekkert fleira og ég veit ekki hvort hann hafi eitthvað með 4 cores að gera :S

Mér fyndist það mjög ólíklegt, og held ég að E8400 endist honum betur þar sem hann er ekki með mjög mikið í einu í gangi frekar bara eitt og eitt stórt.