Síða 1 af 1

Munur á örgjörvum, Turion, Athlon osfrv.

Sent: Mið 23. Jan 2008 14:01
af Birk
Ef mér stæði til boða að kaupa laptop (dualcore) sem væru með mismunandi örgjörvum, hver væri þá "bestur"? Er í rauninni einhver sérstaku munur á þessum örgjörvum?

AMD Turion 64 X2
Intel Pentium
Intel Celeron
AMD Athlon

Spyr nú sá sem ekki veit.

Sent: Mið 23. Jan 2008 14:21
af Halli25
Sæll,

ekki fá þér neina af eftirfarandi:

Intel Pentium
Intel Celeron
AMD Athlon

nema þú viljir slow(celeron) eða (pentium/Athlon)heita vél :)

AMD Turion 64 X2 er alltílagi sem ódýr vél, ef þú vilt það besta í dag þá viltu fá þér Intel core 2 duo örgjörva og þá sem eru merktir T7xxx, T2xxx er fyrsta kynslóð C2D og T5xxx er önnur.

Vona að þetta hafi hjálpað.

Sent: Fös 25. Jan 2008 17:27
af Birk
Kærar þakkir, þetta kom sér vel.

Held að núna standi valið einungis á milli Acer eða Lenovo, og þá með Intel core 2 duo T5xxx. Er reyndar í Danmörku og er talsverður munur á verði hér og þarna hjá ykkur, mér í hag.

Þakka enn og aftur fyrir góð og skjót svör við þeim græningjaspurningum sem ég hef borið upp.
Kv.