Síða 1 af 1

Hugsanleg Uppfærsla

Sent: Þri 22. Jan 2008 10:07
af Windowsman
Sælir/ar


Núna finnst mér vera kominn tími á hugsanlega uppfærslu.

Budget er um 45.000kr.

Ég vil helst versla við Kísildal, Tölvutækni eða Tölvuvirkni ástæða er að ég vil fá fyrsta flokks þjónustu.

Á ég að hafa samband við þessa aðila í gegnum Tölvupóst til að fá tilboð frá þeim?

Ég hef ekki ákveðið hvort að þetta verði en ég gæti stokkið á eitthvað ef ég fæ rétta tilboðið.

Ég minni á að ég vil engin bull svör og Já ég er búinn að ákveða AMD.

Sent: Þri 22. Jan 2008 10:15
af Dazy crazy
Ég myndi frekar hringja, miklu persónulegra og færð að vita fyrr, svo er tölvupóstum ekki alltaf svarað af því að þeir geta farið framhjá mönnum.

Sent: Þri 22. Jan 2008 10:35
af Windowsman
Ég hef ekki tíma í að hringja

Sent: Þri 22. Jan 2008 10:42
af GuðjónR
Windowsman skrifaði:Ég hef ekki tíma í að hringja

Ekki tíma í að hringja? En hefur tíma í að spyrja hér og skrifa þeim email?

Sent: Þri 22. Jan 2008 10:53
af Windowsman
Haha já:D....Ég nenni beinlínis ekki að hringja.

En hvernig er þessi http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=viewpr ... =TUP/AMD/1

Re: Hugsanleg Uppfærsla

Sent: Þri 22. Jan 2008 11:17
af Dazy crazy
Windowsman skrifaði:Á ég að hafa samband við þessa aðila í gegnum Tölvupóst til að fá tilboð frá þeim?


Af hverju í ósköpunum ertu að spyrja þar sem þú nennir ekki að hringja og ef þú nennir ekki að hringja þá nennirðu örugglega ekki að keyra á milli og þá er lítið eftir nema senda tölvupóst.

Sendu þeim bara hugskeyti :?

Þessi turn sem þú ert að linka á er ekki með stýrikerfi og það kostar ef þú ætlar að versla við meistara microsoft en svo eru önnur stýrikerfi frí eins og linux.

þessi er ágæt líka held ég.

Sent: Þri 22. Jan 2008 11:40
af Windowsman
Ég þarf ekki stýrikerfi.

Ég á Windows XP 2 stykki og það er líka eitt Vista sem að ég veit ekki hvort að virki.


En finn ég mikin mun í myndum og hugsanlega gömlum tölvuleikjum á 8400GS og 8600GT?

Sent: Þri 22. Jan 2008 12:07
af Dazy crazy
það eru innbyggð skjákort í þessum móðurborðum og þau eiga aldrei eftir að eiga möguleika í skjákort sem eru sér. Held ég

Sent: Þri 22. Jan 2008 12:13
af Windowsman
ég er að spyrja um hvort að það sé mikill munur á 8400GS eða 8600GT skjákorti

Sent: Þri 22. Jan 2008 12:17
af ParaNoiD
Windowsman skrifaði:ég er að spyrja um hvort að það sé mikill munur á 8400GS eða 8600GT skjákorti


já það er mikill munur á þessum kortum.

hugsa að 8600GT sé sirka 3-4x hraðara kort.

Sent: Þri 22. Jan 2008 12:24
af Windowsman
Ok, en AMD +4200 er alveg fínn?

Sent: Þri 22. Jan 2008 12:58
af ParaNoiD
hann er í sjálfu sér alveg ágætur.

ég hugsa að ég sjálfur myndi bæta aðeins við og taka þennann

http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... AM2_5600X2

Sent: Þri 22. Jan 2008 13:41
af Windowsman
Budget er það lág að ég tek ef ég kaupi eitthvað +4200 eða +5000 black edision

Sent: Þri 22. Jan 2008 14:08
af ÓmarSmith
Fékkstu ekki skilaboðin frá mér . ?

kíktu á einkaskilaboðin þín

Sent: Þri 22. Jan 2008 14:15
af Windowsman
..Eyða

Sent: Þri 22. Jan 2008 14:21
af ÓmarSmith
Og afhverju í ósköpunum ertu búinn að ákveða AMD ?

Lakari örgjörvar en Intel fyrir það fyrsta. Intel eru ekki dýrari í annan stað svo hver er meiningin í 3 lagi ?

Sent: Þri 22. Jan 2008 14:30
af Windowsman
Svona sé ég þetta.

Intel fyrir tölvur ef þú ætlar yfir 70 þúsund krónur.

Amd fyrir ódýrari tölvur.

Ég er að reyna að halda þessu í botn verði ég er ekki með 100.000krónur í vasanum.

En ég ætla að stoppa þetta núna því að ég ætla ekki að láta þetta fara niður í annan AMD vs Intel.

En hvað er fólk að segja hvora ætti ég að taka

Sent: Þri 22. Jan 2008 14:31
af Windowsman
Þessari spurningu er ætlað til starfsmanna Tölvutækni

Getið þið boðið sambærilega vél á sviðuðu verði.

Sent: Þri 22. Jan 2008 16:06
af Klemmi
Windowsman skrifaði:Þessari spurningu er ætlað til starfsmanna Tölvutækni

Getið þið boðið sambærilega vél á sviðuðu verði.


Sæll,

það er að sjálfsögðu alltaf hægt að fara neðar og neðar með tilboðin, fer bara eftir því hversu lágt menn eru tilbúnir að fara/leggjast til þess að taka sölu af annarri verzlun.
Ég kem til með að senda þér tilboð í einkaskilaboðum og bið þig enn fremur að birta það ekki hérna á spjallinu. Við komum ekki til með að fara lægra en þetta jafn vel þó að aðrar verzlanir ákveði að toppa okkar tilboð, viljum ekki gefa slíkt fordæmi að fólk geti birt tilboð á opinberu spjallborði til að athuga hvað verzlunirnar séu tilbúnar að gera til að klára söluna. Það myndi að öllum líkindum enda í rugli.

Vona að þú og aðrir notendur Vaktarinnar skilji hvað ég sé að fara, að sjálfsögðu viljum við geta boðið viðskiptavinum okkar beztu verðin og gerum það í flestum tilfellum en tilboð eru að mínu mati einkamál milli viðskiptavinar og verzlunar og á ekki að vera gert opinbert aðeins í þeirri von um að fá verðið einhverjum krónum lægra. Að mínu mati er í lagi að fara á milli verzlana með tilboð og biðja um betra, en þegar þú ert farinn að gera þetta opinbert þá er það komið á grátt svæði. Sveigjanleikinn í verðunum er ekki endalaus, en búðir líklega tilbúnar til að lækka þau úr hófi fram þegar verið er að berjast um að vera þekktir fyrir beztu verðin opinberlega.

Beztu kveðjur,
Klemmi
Tölvutækni ehf.

Sent: Þri 22. Jan 2008 17:21
af Windowsman
Ég skil það.

En ég var nú meira í vafa og er að reyna að fá álit vitrari manna

Sent: Þri 22. Jan 2008 17:28
af Klemmi
Velkomið að birta íhlutina sem ég er að bjóða þér, en verðið ætti að vera á milli okkar :)

Sent: Þri 22. Jan 2008 17:33
af Windowsman
Já en það sem að ég er að velta fyrir mér er gæðamunur á skjákortunum