Síða 1 af 1

ViewSonic 28" WideScreen fullorðinn skjár.

Sent: Mán 14. Jan 2008 22:37
af GuðjónR
Hvernig lýst ykkur svo á þennan risa?

Sent: Þri 15. Jan 2008 08:45
af TechHead
Stór skjár já, en sadly þá er hann einungis með 6 bita TN panel.

Sent: Þri 15. Jan 2008 09:36
af ÓmarSmith
Einungis ?

HaHa Og þurfum við eitthvað meira ef við erum ekki í Vinnu við myndvinnslu eða grafík ? Svar = Nei.

Við höfum allir vanist því að nota 6bit TN Panela, eða svo til nánast bara notað þá enda ódýrari línan. Ekki nema þú viljir splæsa í 100k skjái eða þaðan af dýrara ( Eða fá þér einfaldlega mikið minni skjá )

Fyrir þá sem eru bara í leikjaspilun, nethangsi, bíómyndaglápi og svona hversdagsvinnslu og jú jú, það er allt í lagi að nota Photoshop eða hvað sem er á svona Panel.

Það er bara fyrir hardcore gæa að nota dýrari panela.

Sjálfur er ég að nota Samsung 226 sem er með 6bit TN panel og ég notað hann MIKIÐ í Photoshop og ekki hefur neinn kvartað hingað til.


Þannig að .... Endilega skellið ykkur á 28" skjá á góðu verði

Held að Kísildalur sé ekkert með ósvipaðan skjá á svipuðu verði líka.

Sent: Fös 25. Jan 2008 18:26
af coldone
Hér er hægt að skoða umsögn um skjáinn.
http://www.extremetech.com/article2/0,1 ... 175,00.asp

Sent: Mið 30. Jan 2008 13:05
af thorgeir
Flottur skjár og bara nokkuð gott verð.. Eina sem mér finnst galli er að þeir noti sumu upplausn og 24". Þeir hefðu átt að nýta stærðina aðeins betur. En kanski hefðu þeir lent í því að maður þurfi duallink skjákort til að drifa skjáin þá.

Sent: Lau 02. Feb 2008 19:30
af Woods
thorgeir skrifaði:Flottur skjár og bara nokkuð gott verð.. Eina sem mér finnst galli er að þeir noti sumu upplausn og 24". Þeir hefðu átt að nýta stærðina aðeins betur. En kanski hefðu þeir lent í því að maður þurfi duallink skjákort til að drifa skjáin þá.


Einhver sem á sonna 28 tommu kvikindi ?

Sent: Lau 02. Feb 2008 20:24
af Klemmi
Ekki ég, en við erum með hann tengdan við leikjavél hjá okkur upp í vinnu ef fólk hefur áhuga á því að prófa hann.