Síða 1 af 2
2x samsung ata133 ekki að virka!
Sent: Fös 03. Okt 2003 18:32
af Lazylue
keypti mér 2 samsung ata133 120gb diska og ætla að hafa þá saman á raid 0.
Er með asus p4p800 deluxe mobo sem á að styðja þetta keypti sér kapal sem á að styðja ata133 og samt vill hún alltaf vera á ata 100.
Er búin að lesa nánast allan manualinn sem fylgdi með mobo-inu og þar stendur ekkert frekar um þetta nema það að það eigi að styðja ata133.
Hefur einhver lent í einhverju svipuðu með þessa samsung diska?
Sent: Fös 03. Okt 2003 20:51
af Lazylue
Jæja hennti essu bara upp á ata 100.
Náði í forritið sem er á þessum korki (quickbench) til að mæla hraðann á diskunum og fékk 71 í write og 80 í read og var bara nokkuð sáttur, var að fá 35 og 40 áður en ég setti þá á raid 0. Spurning hvað það myndi muna miklu ef að ég væri á ata 133.
Sent: Fös 03. Okt 2003 21:47
af GuðjónR
Það er víst sáralítill munur á ata100 og 133 ....
71 í write og 80 í read er frábært...
Sent: Lau 04. Okt 2003 16:07
af gnarr
Sent: Lau 04. Okt 2003 23:31
af Lazylue
http://www.computer.is/vorur/3092
Þarna stendur að móðurborðið eigi að styðja ata133.
Feill hjá mér að treysta heimasíðu computer.is :P
Þó er ég mjög sáttur með þetta móðurborð allt á því að virka vel, lenti reyndar í veseni þegar ég var að tengja wd hdd við það.
Sent: Sun 05. Okt 2003 03:26
af gnarr
djöfull er þetta últra gay!! ég held að mig lnagi ekki mikið til að versla aftur við computer.is ef þetta er satt! þeir segja ða borð sem er með ata100 sé ata133 en setja * fyrir aftan það og skrifa síðan neðst á síðuna:
* Note: The product specification and pictures are subject to change without notice.
!!!
hvað er að þeim!! lítið á þetta!! stjarnan er bara við ATA133 og það er það sem þeir voru að ljúga um!! helvítis mongolíta búð!
ég held að þú ættir að hringja í neitendasamtökin og tékka á þínum rétt!
Sent: Sun 05. Okt 2003 11:35
af gumol
Það þíðir ekki að segja að kortið sé með ATA133 á Íslensku og segja svo á ensku að þetta geti verið öðruvísi, það er ég nokkuð viss um.
Sent: Mán 06. Okt 2003 11:33
af Lakio
* sinnum!
3*3=9
5*5=25
2*ATA133
Sent: Mán 06. Okt 2003 12:22
af prozac
Já þetta borð er ekki ata133 er sjálfur með 2 svona og mér fynst þau vera meingölluð passaðu þig á usb dótinu á þeim forðastu að nota þaug ef þú getur fáðu þér frekar pci kort með usb en reina að nota þetta onbord drasl.
Sent: Mán 06. Okt 2003 14:25
af OverClocker
Skilaðu móðurborðinu..
Sent: Mán 06. Okt 2003 14:39
af Lazylue
Lenti í smá veseni með það fyrst þegar ég var að reyna að láta það virka með wd hdd síðan flash-aði ég bios-inn og eftir það hefur allt virkað vel.
Usb dótið hefur ekkert verið til vandræða hjá mér, reyndar nota ég bara adsl modem og mús, er reyndar ekki að nota usb2 í neitt.
Skila mobo-inu, pældið fyrst í því en nenni ekki að standa í því fyrir ekki neinn ávinning, nýbúin að missa harðadiskinn minn og það tók sinn tíma að koma öllu í lag eftir það og að þurfa að byrja aftur á því er bara mikið vesen.
Er reyndar búin að tapa pening á þessu því ég keypti ata133 diska sem kostuðu meira því þeir eru ata133, síðan þurfti ég að fara og kaupa hjá þeim ata133 kapal sem fylgdu ekki með mobo inu sem kostaði 1200kr.
Sent: Mán 06. Okt 2003 14:49
af gnarr
þú varst svikinn! farðu og heimtaðu að fá eitthvað annað móðurborð sem er með ATA133.. og endielga fynndu eitthvað sem að kostar meira en þitt kostaði
hehe. annars hótaru bara að tala við samkeppnisráð. þeir eiga það allavega skilið fyrir að auglýsa þetta svona!
Það eru margir sem halda að þeir séu með ATA-133 en eru ekki
Sent: Þri 07. Okt 2003 09:57
af Lakio
http://www.asus.com/prog/spec.asp?m=P4P800%20Deluxe&langs=01
2 x UltraDMA 133
Borðið er með 133! (Ultra DMA Mode 6)
Windows XP!
Profaðu þetta en verður að vera með Service Pack 1.
(Xp styður EKKI ATA-133 en Service Pack 1 gerir það!):
1. Right-click My Computer, and then click Properties.
2. Click the Hardware tab, and then click Device Manager.
3. Expand IDE ATA/ATAPI controllers.
4. Double-click Primary IDE channel, and then click the Driver tab.
5. Click Update Driver.
6. Click Install the software automatically, and then follow the on-screen instructions to complete the process.
Sent: Þri 07. Okt 2003 20:35
af gnarr
samkvæmt þessu, þá er bara ATA133 á raidinu.
Sent: Þri 07. Okt 2003 20:51
af kiddi
Ég myndi nú ekki vera að gráta þetta mikið, ég hef margoft lesið gegnum tíðina að munurinn á milli ATA100 og ATA133 sé aðeins rétt svo sjáanlegur í mælingum en ekki í daglegri notkun.
Hér er ítarleg lýsing:
http://www.tweakers.com.au/articles/storage/ata133/page1.asp
The results may vary between drives, but the difference in performance from ATA100 and ATA133 is negligible. In some instances the results were very close, while in others like the High-End Winmark tests mode 6 DMA took the lead. I was also quite surprised to see that ATA133 was actually beaten in the HD Tach tests when in ATA100 mode. ATA133 should theoretically be 33% faster than ATA100, but my results basically didn't show much of an improvement at all. If you're thinking about upgrading a single drive from ATA100 to ATA133, I say keep you cash and wait for something better - there's always SCSI too! Keep that main idea behind ATA133 is minimise bottlenecks in the system when your running MORE than one drive, and to allow manufacturers to build drives larger than 120GB.
Og svo er annað sem menn segja sér til rökstuðnings, það er talið að ATA100 drif eigi að ná 100MB/Sec Read/Write og ATA133 133MB/Sec Read/Write, en ég hef
ALDREI NOKKURNTÍMAN séð IDE drif ná yfir ~70-80MB/Sec Read/Write - Og meira að segja það er tala sem aðeins benchmörk sýna. Ég starfa í video-bransanum og spái því heilmikið í getu harðadiska, ég er með 10x 18GB Ultra320 SCSI diska í RAID keðju á einni tölvunni og hún er að ná alvöru 40MB/Sec Read/Write hvar og hvenær sem er, undir hvaða kringumstæðum sem er. Þetta hef ég ekki séð gerast á IDE drifum, hvorki undir RAID eða venjulegu setuppi.
Svo ég myndi ekki syrgja ATA133 stuðning svo mikið.
svona kannski
Sent: Þri 07. Okt 2003 22:20
af viggib
raid
Sent: Þri 07. Okt 2003 22:34
af kiddi
Eru þetta 2x 36GB SCSI?
Allavega segir Sequential Write voða lítið, manni ber að taka mark á tölunum í hægri glugganum, þau eru nær raunveruleikanum, og þar ertu að ná ~37MB/sec sem er bara frábært =)
Raptor
Sent: Þri 07. Okt 2003 22:55
af viggib
Þetta eru 2xWD Raptor 36gb.
Sent: Mið 08. Okt 2003 00:12
af GuðjónR
er ekki geggjaður hávaði í þeim?
Raptor
Sent: Mið 08. Okt 2003 09:09
af viggib
Nei það er mun minni hávaði í þeim en WD 7200rpm diskunum.
Enda mun vandaðri smíði+fimm ára ábyrgð.
Sent: Mið 08. Okt 2003 17:09
af Lazylue
Fæ 80 í read og 73 á write á samsung diskunum mínum.
Náði í service pack 1 og prufaði að reyna að updata drivererana en þá sagði tölvan að hún fynndi enga nýrri drivera.
Síðan var ég að spá hvort að ég þyrfti ekki að formatta og henda öllu aftur upp á nýtt ef ég ætla að ná að láta diskana á ata133. Sem ég myndi ekki nenna að standa í, langar bara að sjá munin á ata100 og ata133
Sent: Mið 08. Okt 2003 19:54
af gnarr
nei. það þarf ekki að henda neinu til að breita milli ata100 og 133. þú getur þessvegna tengt ata133 í ata33 tengi ef það er ekki of stór diskur fyrir ata33
Sent: Mið 15. Okt 2003 19:19
af Fox
[quote="kiddi"]Ég myndi nú ekki vera að gráta þetta mikið, ég hef margoft lesið gegnum tíðina að munurinn á milli ATA100 og ATA133 sé aðeins rétt svo sjáanlegur í mælingum en ekki í daglegri notkun.
Hér er ítarleg lýsing:
http://www.tweakers.com.au/articles/storage/ata133/page1.asp
Þér finnst lítill munur á ATA100 og 133?
Mér finnst þó nokkuð mikilvægt að geta notað diska stærri en 120GB við vélina mína.
ATA100 styður allt að 120GB, og ef diskurinn er t.d 180GB þá sóast 60GB af honum í 'ekkert'.
Sent: Mið 15. Okt 2003 19:33
af axyne
Fox skrifaði:ATA100 styður allt að 120GB, og ef diskurinn er t.d 180GB þá sóast 60GB af honum í 'ekkert'.
Allir WD eru ATA100
Sent: Mið 15. Okt 2003 19:38
af Fox
axyne skrifaði:Fox skrifaði:ATA100 styður allt að 120GB, og ef diskurinn er t.d 180GB þá sóast 60GB af honum í 'ekkert'.
Allir WD eru ATA100
Rangt, WD360 er ATA150 (SATA 10k.rpm)