Síða 1 af 1

Nvidia 9800GX2 / D9E Myndir og speccar

Sent: Fös 04. Jan 2008 11:15
af Tappi

Sent: Fös 04. Jan 2008 12:26
af gunnargolf
Þetta lítur sæmilega út. Vonandi teks þetta betur hjá þeim en 7950GX2 kortið.

En hvað ætli þeir geri eftir 9000. Ég trúi því varla að þeir fari upp í 10000. 10800GTX hljómar mjög illa. :roll:

Sent: Fös 04. Jan 2008 12:30
af GuðjónR
gunnargolf skrifaði:Þetta lítur sæmilega út. Vonandi teks þetta betur hjá þeim en 7950GX2 kortið.

Tókst 7950GX2 eitthvað ílla hjá þeim?
Ég er með svoleiðis kort og mjög sáttur.

Sent: Fös 04. Jan 2008 12:33
af Yank
Er þetta ekki bara rugl.

Veit ekki betur en Nvidia 9800 (sem er fáránlegt nafn) hafi átt að innihalda nýjan kjarna.
En í þessari frétt er einungis talað um G92 sem er sami kjarni og í 8800GTS 512MB. Þetta kort ætti því ferkar að kallast 8850GX2 eins og 7950GX2 sem enginn var ánægður með vegna lélegt reklastuðnings.
Ja fyrir utan GuðjónR :wink:

Sent: Fös 04. Jan 2008 12:40
af GuðjónR
Yank skrifaði:7950GX2 sem enginn var ánægður með vegna lélegt reklastuðnings.
Ja fyrir utan GuðjónR :wink:

Í upphafi var ég ekki alveg sáttur, þar sem ég var að setja saman tölvu og Bios fattaði ekki kortið.
Ég þurfti að kaupa ódýrt pci-x kort til að starta tölvunni og updeita Bios.
Það var ekki það eina, þegar ég síðan ætlaði að setja upp Vista í fyrsta sinn þá þekkti Vista ekki kortið, ódýra kortið í FORMAT og XP upp.

Sent: Fös 04. Jan 2008 13:27
af TechHead
Fékk þær upplýsingar að 9800 línan sé einungis "Die Shrink" af 8800 línunni.

9800 og 9600 kortin verða semsé með nýjum 65nm kjarna sem verður að
öllu leiti eins og G92 kjarninn með hærri klukku og viðbættum stuðning við
DX 10.1

Þannig að það verða engar meiriháttar Architectural breytingar á NVidia
kjörnunum. Nýtt nafn, minni process og hærri klukkur.

Sent: Fös 04. Jan 2008 13:37
af audiophile
Held að málið sé að þar sem ATI er ekki með neitt sem snertir það sem Nvidia eru með í dag, hafi þeir enga markaðslega þörf fyrir að flýta sér að koma út nýjum kjarna. Líklegt að þeir séu bara að taka sér góðan tíma og nota frekar það sem þeir eiga til.

Sent: Fös 04. Jan 2008 17:40
af Yank
TechHead skrifaði:Fékk þær upplýsingar að 9800 línan sé einungis "Die Shrink" af 8800 línunni.

9800 og 9600 kortin verða semsé með nýjum 65nm kjarna sem verður að
öllu leiti eins og G92 kjarninn með hærri klukku og viðbættum stuðning við
DX 10.1

Þannig að það verða engar meiriháttar Architectural breytingar á NVidia
kjörnunum. Nýtt nafn, minni process og hærri klukkur.


Mjög slæmar fréttir. Það á s.s. að selja manni sömu tækni ár eftir ár.

Sent: Fös 04. Jan 2008 21:55
af Pepsi
ATI eru vonandi að koma með skemmtilega hluti nú í ár. Notast við 45nm tækni, 1, 2 og 4 kjarna kort. Ég bið til almættis um að láta þetta ár verða ár ATI manna. Ætti að sparka í rassinn á NVidia og kapphlaupið heldur áfram...... Sem er gott fyrir þá sem tíma að eyða fúlgum í Það besta sem völ er á hverju sinni....

Sent: Fös 04. Jan 2008 22:32
af TechHead
Ef einhver yrði svo vænn að vísa í "official" roadmap hjá ATI/AMD Graphics
division þá yrði það vel þegið =)

Sent: Lau 05. Jan 2008 02:04
af ErectuZ
Þoli ekki nöfnin á seríunni, alltaf þegar það er talað um 9800 þá hugsa ég um gömlu ATi línuna :x

Sent: Lau 05. Jan 2008 15:24
af audiophile
Yank skrifaði:Mjög slæmar fréttir. Það á s.s. að selja manni sömu tækni ár eftir ár.


Það er einfaldlega vegna þess að Nvidia hefur enga samkeppni í "high end" kortum og þurfa þess vegna ekki að keppast við að koma út nýjasta og besta. Ef þeir myndu gefa út nýtt kort núna væru þeir bara að keppa við sjálfan sig, sem er fjárhagslega slæmt.

Vegna slappleika ATI/AMD undanfarið geta Nvidia velt sér upp úr peningum og haldið áfram að selja gamla hluti með nýju merki þangað til að ATI kemur með nógu öflugt kort til að skáka 8800 Ultra úr toppsætinu.

Þetta ætti að sýna fólki af hverju samkeppni er góð fyrir okkur neytendur ;)

Sent: Lau 05. Jan 2008 16:00
af littel-jake
Þíðir þetta þá ekki lækkun á 8800 kortinu :D

Sent: Sun 06. Jan 2008 20:14
af Tappi
Tomshardware eru voru að birta fleiri myndir af þessu korti.

http://www.tomshardware.com/2008/01/05/ ... e_9800gx2/

Sent: Sun 06. Jan 2008 23:12
af Iceviper81
Væri nú gaman ef að þetta myndi virka á nýju 780i móðurborðunum frá Nvidia, með sitt "3-way SLI technology", ætti alveg að ganga, sökum þess að 8800gtx og ultra taka líka 2 slot eins og þetta.

(http://www.nvidia.com/object/nforce_700i.html)

6 skjákort yrði náttúrulega bara bilun, crysis á 300 FPS með allt í botni og í 1920x1200,

Sent: Mán 07. Jan 2008 00:15
af Yank
Iceviper81 skrifaði:Væri nú gaman ef að þetta myndi virka á nýju 780i móðurborðunum frá Nvidia, með sitt "3-way SLI technology", ætti alveg að ganga, sökum þess að 8800gtx og ultra taka líka 2 slot eins og þetta.

(http://www.nvidia.com/object/nforce_700i.html)

6 skjákort yrði náttúrulega bara bilun, crysis á 300 FPS með allt í botni og í 1920x1200,


Það er mjög ólíklegt að það verði þannig. Enda græðist ekki nema óverulegt afl við að nota þrjú kort, fram yfir 2.

http://www.anandtech.com/video/showdoc.aspx?i=3183

Sent: Fös 11. Jan 2008 00:33
af Stuffz

Sent: Fös 11. Jan 2008 00:37
af Stuffz
Yank skrifaði:
Iceviper81 skrifaði:Væri nú gaman ef að þetta myndi virka á nýju 780i móðurborðunum frá Nvidia, með sitt "3-way SLI technology", ætti alveg að ganga, sökum þess að 8800gtx og ultra taka líka 2 slot eins og þetta.

(http://www.nvidia.com/object/nforce_700i.html)

6 skjákort yrði náttúrulega bara bilun, crysis á 300 FPS með allt í botni og í 1920x1200,


Það er mjög ólíklegt að það verði þannig. Enda græðist ekki nema óverulegt afl við að nota þrjú kort, fram yfir 2.

http://www.anandtech.com/video/showdoc.aspx?i=3183


já og hvað þá 4, verst að skjákortaframleiðendum hefur ekki tekist að samnýta skjáminnin á kortunum svo það þurfi ekki að hlaða nákvæmlega sama efninu inná hvert kort, það þýddi að 2x512mb kort væru 1gb samtals pláss.

Sent: Fös 11. Jan 2008 09:40
af Tappi
Annars fer þetta alveg eftir hvernig leikirnir eru forritaðir. Sjáið t.d. UT3, Bioshock og COD4.
Mynd

http://www.anandtech.com/video/showdoc.aspx?i=3183&p=3

Sent: Fös 11. Jan 2008 11:42
af GuðjónR
Iceviper81 skrifaði:6 skjákort yrði náttúrulega bara bilun, crysis á 300 FPS með allt í botni og í 1920x1200,

Svo ekki sé minnst á hitamyndun og lætin í viftunum.

Sent: Lau 12. Jan 2008 00:15
af RaKKy
1. NVIDIA eru ný kominn með 780 og kostnaðurinn á bak við TSLI var svo mikill að þeir sögðu í blaða viðtali að þetta væri til að vera meðan það dugði.

2. GX2 setup = Endalaust driver vesen og tölvuleikja framleiðendur eiga eftir að hunsa þetta.

Dims sá svo um að slá kortið út af markaði enda algjört rusl.

3. Myndin er cheap as hell og.. já well það vantar gullið? Settu þeir kannski plast í staðinn?

4. 4x tví"kjarna" kort = 1000w af hita.

5. Svo mikið af hita er því miður aðins of mikið.

6. Nýa línan átti að samanstanda af nýum kjörnum ekki þeim gömlu.

7. Til að koma 4 fyrir þarf að búa til nýa "tegund" af móðurborðum sem og chipset -

8. Til að halda jafn öflugum kortum í gangi þarf bæði mjög sterka gpu mosf sem og öflugan aflgjafa.

9. QuadSLI NB mun þurfa kælingu á borð við öflugustu örgjörva í dag.

--

Nú þetta er auðvitað aðins partur af vandamálunum sem þessu fylgja.

Get ekki beðið eftir að sjá hvernig þetta verður leyst.