Síða 1 af 2

Munur á EVGA 8800GT SC og Sparkle 8800GTS 512 MB

Sent: Mið 12. Des 2007 09:28
af Harvest
Var að velta fyrir mér muninum.

http://www.tolvutek.is/product_info.php?cPath=1_25_28&products_id=10142

og

http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=view&flo=product&id_top=1651&id_sub=2852&topl=10&page=1&viewsing=ok&head_topnav=VGA_SP_8800GTS


Var að taka eitt stk. frá hjá Mr. Björgvin í Tölvuvirkni. Er þetta frá tölvutek ekki sama kort???


Vitiði hvort ég get fengið þetta kort annarstaðar?

Sent: Mið 12. Des 2007 09:31
af ManiO
Tölvuvirknis kortið er GTS en Tölvutek er GT og munurinn er þó nokkur. GTS kortið er mun öflugra.

Sent: Mið 12. Des 2007 09:34
af Harvest
4x0n skrifaði:Tölvuvirknis kortið er GTS en Tölvutek er GT og munurinn er þó nokkur. GTS kortið er mun öflugra.


Mér datt þetta bara í hug af því að þetta var undir PCI-EX17 og það heitir

EVGA 8800GT SC

HVað ætli þessi SC standi fyrir :P - Super clocked?

Sent: Mið 12. Des 2007 09:53
af ÓmarSmith
já, það myndi alveg passa.


Þau heita oft Superclocked, eða Overclocked , Overclocked 2 og sum heita KO sem eiga að vera mest oc-uðstu kortin.


Held að þú sért samt iðulega lítið að græða á þessu factory OC ;) Kannski sérð mun í 3dmark en í leikjum og almennri vinnslu er engin munur.

Ég gerði ítarlega rannsókn á þessu þegar ég verslaði mitt 8800GTX kort, endaði með að taka bara alveg ó yfirklukkað kort þar sem að það var að skora alveg það sama og þessi sem voru Superclocked og þaðan eftir götunum.

Ef ég vil oc., þá bara get ég gert það sjálfur líka ;)

Sent: Mið 12. Des 2007 10:02
af Harvest
ÓmarSmith skrifaði:já, það myndi alveg passa.


Þau heita oft Superclocked, eða Overclocked , Overclocked 2 og sum heita KO sem eiga að vera mest oc-uðstu kortin.


Held að þú sért samt iðulega lítið að græða á þessu factory OC ;) Kannski sérð mun í 3dmark en í leikjum og almennri vinnslu er engin munur.

Ég gerði ítarlega rannsókn á þessu þegar ég verslaði mitt 8800GTX kort, endaði með að taka bara alveg ó yfirklukkað kort þar sem að það var að skora alveg það sama og þessi sem voru Superclocked og þaðan eftir götunum.

Ef ég vil oc., þá bara get ég gert það sjálfur líka ;)


Hmm.. já einmitt. Maður gæti alveg OC-aða sjálfur :P

Sent: Mið 12. Des 2007 10:16
af beatmaster
OT: Ómar hvar er LaggEftirlytið?, því er sárt saknað ;)

Sent: Mið 12. Des 2007 11:11
af Grumpy Old Man
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... s_id=886... Held að þú ættir að athuga þetta kort...spara þér nokkra kronur...kosturinn við að kaupa yfirklukkaðkort frá framleiðanda er augljós....full ábyrgð

Sent: Mið 12. Des 2007 14:14
af ManiO
Grumpy Old Man skrifaði:http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=24_35_77&products_id=886... Held að þú ættir að athuga þetta kort...spara þér nokkra kronur...kosturinn við að kaupa yfirklukkaðkort frá framleiðanda er augljós....full ábyrgð


Eða þá að hann fær sér 8800 GTS 512 MB heldur því stock og fær mun betri afköst :wink:

Sent: Mið 12. Des 2007 14:39
af Grumpy Old Man
Nokkuð til í því 4X0n enn hann borgar líka ca 7þ plus fyrir það.. sá á einum stað að munurinn á GT og GTS er álíka og á GTX og Ultra. Það sem mér finnst enn meira spennandi við þetta nýja kort er að það er dual slot þar af leiðandi er með betra kælingu og er víst hljóðlátara. Ég er nú heldur ekki alveg hlutlaus...hef einusinni keypt Sparkle skjákort það var algjört drasl (Endaði á haugana) og hef ekki góða sögu af Tölvuvirkni...keypti þar einusinni stýrispjald fyrir S-ATA sem var bara ekki að virka hringdi í þá (Mr. Björgvin eigandinn svaraði) og hann sagði mér að koma með tölvuna enn þar sem ég bý útá land (6 tíma keyrsla) tjáði ég honum að það væri nú ekki hlaupið af því og svarið sem ég fékk var " Ég er nú að reyna að stytta þetta samtal" " HAH " var viðbragðið hjá mér og þá var sagt af meira ákveðni " JÁ ég er að reyna að stytta þetta samtal". Hann þarf EKKI að hafa áhyggjur af fleiri samtölum frá mér ....KEM ALDREI ÞARNA INN AFTUR og ráðlegg engum að gera það. Já var næstum buinn að gleyma því 2 stk PSU keypta í Tölvuvirkni enduðu á haugana það seinna rétt slapp á ábyrðartímabilinu ..keypti annað dýrara (Treysti ekki það ódýrara) enn Björgvin neitaði að mínusa frá allla upphæðina sem ég borgaði fyrir ónýta PSU-ið heldur dró af því 1000-1500kr mann það ekki alveg. Versla ekki við svona menn.

Sent: Mið 12. Des 2007 20:43
af IL2
Miðað við verðið á GTS kortinu hérna heima sýnist mér niðurstaðan vera sú sama og á Tomma. Það er um 20% dýrara en GT kortið sem er um 10% verra. Þeir sem kaupa þessi kort verða að gera þetta upp við sig sjálfir.

Ég persónulega ætlaði að versla mér GT KO kortið hjá Tölvutækni þegar það yrði næst til á lager en hvað gerist núna veit ég ekki.

Sent: Mið 12. Des 2007 21:08
af Klemmi
KO kortið var að lenda aftur í dag.

Sent: Fim 13. Des 2007 13:20
af audiophile
Munurinn á GT og nýja 512m GTS er aðeins meira en örlítill. Nýja GTS kortið er öflugra en GTX í sumum leikjum og aðeins slakara í öðrum þar sem það hefur hefur lægri memory bus.

GTS er með sama fjölda stream processors og GTX en fleiri en GT
GTS er með hærri kjarnatíðni en GTX og GT
GTS er með hærri minnisklukku en GTX og GT
GTS er með lægri minnisbraut en GTX en sama og GT

The new GeForce 8800 GTS 512MB is an interesting performance beast. On the one hand it has very high shader performance, faster than an 8800 Ultra, but it also has a narrower memory bus-width and less local video memory than a GTX.

This creates the kind of performance scenario where in some situations the new GTS may be faster than a GeForce 8800 GTX (where memory bandwidth isn’t the limitation, but shader performance is), but in other situations the GeForce 8800 GTX will still be faster.

The new GeForce 8800 GTS OC 512MB video card is close to $100 less expensive than the GTX and performs very nearly the same depending on your resolution and game settings.


Heimildir http://enthusiast.hardocp.com/article.h ... VzaWFzdA==

Sorry en, gleymdu GT og fáðu þér GTS 512mb.

Sent: Fim 13. Des 2007 18:00
af Grumpy Old Man
Er alveg í vandræði hvort ég eigi að fá mér KO kortið frá eVGA eða nýja GTS 512 kortið frá þeim.... einhverjir sem geta gefið manni ráð í því.... og svo vill benda mönnum á að skoða vel Tölvutækni þegar þeir eru að versla tölvuvörur ..Gott úrval og FRÁBÆR þjónusta

Sent: Fim 13. Des 2007 18:23
af IL2
GTS kortið er klárlega betra, ekki spurning. Hversu mikið getum við síðan rifist um.

Ertu tilbúinn að eyða þesum mismun eða ekki? Ég er allavega sáttur við að hafa verslað hérna af Blasmus1 og get þá notað þann pening í sem ég sparaði mér í nýjan skjá.

Sent: Fim 13. Des 2007 19:19
af Grumpy Old Man
Takk IL2....ég svo sem veit að þetta er rétt hjá þér....verð sjalfsagt að splæsa þessa auka kronur í GTS kortið...enda held ég að kælingin á því korti sé betra þannig ég hef sjálfsagt endað méð því að kaupa mér afturmarket kælir á GT kortið þannig að útkoman í kronum talið verður svipað... alltaf gott að heyra hvað öðrum finnst

Sent: Fim 13. Des 2007 20:21
af Yank
Grumpy Old Man skrifaði:Takk IL2....ég svo sem veit að þetta er rétt hjá þér....verð sjalfsagt að splæsa þessa auka kronur í GTS kortið...enda held ég að kælingin á því korti sé betra þannig ég hef sjálfsagt endað méð því að kaupa mér afturmarket kælir á GT kortið þannig að útkoman í kronum talið verður svipað... alltaf gott að heyra hvað öðrum finnst


Kælingin á Sparkle 8800GTS er mjög vel heppnuð. Var einmitt að mæla db á því.

ASUS 8800GTX Load 53 db
Idle 49,1 db
Sparkle 8800GTS 512MB G92 Load 48,5 db
Idle 48,2 db

Jetway Radeon X3850 Load 49,6
Idle 48,5
Jetway Radeon X3870 Load 50,0 db
Idle 48,4

Þannig þú sérð að af þessum kortum er 8800GTS 512MB hljóðlátast undir álagi.

En meira um það síðar

Sent: Fim 13. Des 2007 23:45
af Grumpy Old Man
Thx Yank....ætla að fá mér eVGA 8800GTS 512mb..... Versla EKKI við Tölvuvirkni mín reynsla er sú að þetta fyrirtæki er EKKI landsbyggðar vænt og ráðlegg engum að gera það ...uppístaðnum af þessum vörum er svipað enn mín reynsla er að Tölvutækni og Computer.is (Tölvutek er reyndar mjög góðir enn verðin hjá þeim eru í það hæsta) standa upp úr í þjónustu þannig að ég beini mín viðskipti þangað....það mætti ræða meira um þjóustu hliðina á vörum hér þannig að þessir menn hætta að halda að þeir séu að gera okkur einhvrn greiða að selja okkur vörur

Sent: Fös 14. Des 2007 17:34
af audiophile
Skrýtið, ég bý út á landi og hef verslað við Tölvuvirkni síðustu 2 ár og aldrei lent í veseni. Bara topp menn sem vinna þar.

Verslaði síðast fyrir nokkrum vikum síðan móðurborð, örgjörva, harðan disk og minni og það svínvirkar allt. Hringdi miðvikudags eftirmiðdag og þetta var komið til mín hádegi daginn eftir í póstkröfu.

Þar með get ég mælt vel með þeim í Tölvuvirkni.

Sent: Fös 14. Des 2007 18:05
af Grumpy Old Man
Það er gott að heyra Audiophile..... Ég svo sem ekkert sagt annað enn mín reynsla af þessu fyrirtæki sem er þannig að ég versla ALDREI þarna aftir sama er að segja um Hugver... Ég verslaði fartölvu og aðrar tölvuvörur fyrir ca 400þ á síðustu ári... veit um 3 aðrar fartölvur keyptar eftir mínum ráðleggingum ca 400þ plus einhverja smotteri 15-30þ hjá nokkrum ...buinn að versla hjá flestum og mér finnst Tölvutækni og Computer.is standa upp úr. Reyndar græði ég þokkalega á verðstríðinu hjá Att.is og Computer.is.
Þetta er bara mín reynsla..... enn það er eins og maðurinn sagði.." Það er eins með rassgöt og skoðanir...það eru allir með svoleiðis...kannski (Vonandi) var ég bara óheppinn. Enn ég er alveg viss um að umtal um þjónusta vekur menn til umhuganir og fæstir vilja fá slæmt umtal og þegar upp er staðið græða ALLIR á því...Ég hef ekki fleiri orð um þetta mál

Sent: Fös 14. Des 2007 19:40
af OverClocker
audiophile skrifaði:Bara topp menn sem vinna þar.

Mér finnst þessi nú ekki beint traustvekjandi!!!
Mynd

Nei nei bara grín.. fínir gaurar.. :)

Sent: Fös 14. Des 2007 20:24
af Kristján Gerhard
Hélt að Pétur væri hættur hjá Tölvuvirkni.

En fyllilega sammála, hef verslað þar og þetta eru toppklassagæjar.

Sent: Fös 14. Des 2007 20:32
af Woods
OverClocker skrifaði:
audiophile skrifaði:Bara topp menn sem vinna þar.

Mér finnst þessi nú ekki beint traustvekjandi!!!
Mynd

Nei nei bara grín.. fínir gaurar.. :)



þetta er ekkert fyndið , hef talað við þennan gaur (OFT) og hann er finn náungi

banna svona menn hérna

Sent: Fös 14. Des 2007 20:37
af TechHead
Jamm. Pétur er topp gæji.

Sent: Fös 14. Des 2007 21:46
af beatmaster
Er Pétur byrjaður aftur?

Ég verslaði bara við Tölvuvirkni þegar að ég bjó út á landi og bara allt í góðu með það, reyndar versla ég svona ca 80% Tölvuvirkni 20% Kísildalur í dag og get bara mælt með þeim :megasmile

Sent: Lau 15. Des 2007 00:03
af zedro
Woods skrifaði:
OverClocker skrifaði:
audiophile skrifaði:Bara topp menn sem vinna þar.

Mér finnst þessi nú ekki beint traustvekjandi!!!

Nei nei bara grín.. fínir gaurar.. :)



þetta er ekkert fyndið , hef talað við þennan gaur (OFT) og hann er finn náungi

banna svona menn hérna


Einn ekki að taka gríni, þú tóks eflaust ekki eftir því sem stóð fyrir neðan myndina?

Verður nú að viðurkenna að hann er frekar kónalegur á þessari mynd :lol: