Síða 1 af 2

Gigabyte X38-DQ6 review

Sent: Sun 21. Okt 2007 13:15
af Yank
Sælir

Ný umfjöllun, Gigabyte X38-DQ6 móðurborð sem skartar nýjasta kubbasettinu frá Intel.

Endilega tjáið ykkur.

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=15813

kveðja Yank

Sent: Mán 22. Okt 2007 13:21
af Xyron
Það hafði einnig áhrif að einstaklingur var farinn að senda tölvupóst á framleiðendur móðurborða, vitna í mínar greinar og villa á sér heimildir til þess að fá send eintök til prófanna.

What? bjóst ekki við að einhver væri líklegur til þess hérna á Íslandi..


Flott grein, held samt sem áður að ég myndi persónulega bíða meða að versla mér móðurborð fyrir nýtt kubbasett fyrr en það væri komin nokkrar týpur í umferð til að sjá einhvern performance mun á milli framleiðenda..

Samt sem áður mjög veglegt móðurborð, ef eitthvað er of veglegt.. fæstir sem þurfa á 8 usb portum, 2x rj45 og 2x firewire! myndi sjálfur taka eitthvað ódýrara, fer reyndar eftir því hvað þeir eru að rukka fyrir þetta.

Sent: Mán 22. Okt 2007 16:49
af Zorba
Hvaða hvaða maður gæti kannski einhverntíman þurft 8 USB :)

flott grein btw (as always)

Sent: Mán 22. Okt 2007 17:03
af Xyron
ekkert sem usb hub lagar ekki

Sent: Mán 22. Okt 2007 17:12
af Zorba
jæja þá :D

Samt gott að hafa 2 RJ45 :)

Sent: Mán 22. Okt 2007 19:22
af Xyron
satt.. maður veit aldrei hvenær Það kemur að góðum!

en samt fyrir "venjulegan" notenda þá sé ég nú ekki fyrir mér mikil not fyrir það

Sent: Mán 22. Okt 2007 22:51
af Yank
Þetta borð er ekki hugsað fyrir "venjulegan mainstream notanda". Þetta móðurborð er fyrir "hardcore notanda" sem vill higend stuff og nóg af því.

Sent: Mán 22. Okt 2007 23:01
af GuðjónR
Geggjuð grein! Og flott móðurborð...það er greinilega mikill metnaður hjá Gigabyte.

Sent: Þri 23. Okt 2007 08:28
af stjanij
Yank, eðal grein hjá þér. og takk fyrir að leggja tíma þinn í þetta :D

Sent: Þri 23. Okt 2007 09:10
af ÓmarSmith
Tryllt Móðurborð.

Sá svona á Ebay á um 360 Dollara. Ætli þetta verði ekki lágmark um 30.000 hérna á ÍSlandi.


Svo heyrði líka af öðru.. og það var að þessi borð hafa vangefið mikið defect issue og eru líkleg til að fara í hengla á 1 árinu.

Skilst að Defectið sé 50/50.


Sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Sent: Þri 23. Okt 2007 11:08
af TechHead
Gigabyte X38 DQ6 á 28.860 krónur

Sent: Þri 23. Okt 2007 11:27
af Tappi
Frábært framtak eins og vanalega hjá þér Yank!

Eitt sem ég er að spá.
Borðið á að styðja 1600MHz fsb. Þýðir það að það á eftir að styðja Penryn 45nm örgjörvana sem eru handan við hornið?

Sent: Þri 23. Okt 2007 14:50
af ÓmarSmith
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... cts_id=858

28.900kr

Ódýrara en ég reiknaði með.

Sent: Þri 23. Okt 2007 16:10
af Yank
Tappi skrifaði:Frábært framtak eins og vanalega hjá þér Yank!

Eitt sem ég er að spá.
Borðið á að styðja 1600MHz fsb. Þýðir það að það á eftir að styðja Penryn 45nm örgjörvana sem eru handan við hornið?


Eftir því sem mér skilst þá munu öll kubbasett í nýju 3 línu intel styðja 45nm Penryn þannig já P35, X38 osfv. Þetta borð því einnig. En held að hann eigi að keyra á 1333 bus.

Sent: Þri 23. Okt 2007 16:30
af ManiO
ÓmarSmith skrifaði:http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=24_33_70&products_id=858

28.900kr

Ódýrara en ég reiknaði með.


Kíktu á svarið hjá TechHead, ódýrara í tölvuvirkni :wink: (reyndar bara um 40 kalli en samt).

Sent: Þri 23. Okt 2007 22:01
af Tóti
Það er að koma nýtt kubbasett X48
Tékkið á þessu http://www.tcmagazine.com/comments.php?shownews=16497&catid=

Sent: Mið 24. Okt 2007 10:21
af Tappi
1600MHz FSB og DDR3 er sagt aðal munurinn

Mynd

Sent: Mið 24. Okt 2007 11:19
af Yank
LOL intel alltaf samir við sig, þegar kemur að því að dæla kubbasettum á markað.

En allavega Gigabyte X38-DQ6 er með 1600FSB stuðningi frá Gigabyte þó X38 sé það ekki uppgefin frá Intel. Svona við fyrstu sýn er X48 = X38 nema X48 uppgefin 1600FSB stuðningur frá Intel.

Edit. Ó en það var Tappi víst búinn að segja :D

Sent: Fös 26. Okt 2007 19:18
af Tóti
Góð umfjöllun hjá þér Yank um þetta móðurborð.
Gleymdi að nefna það :)

Sent: Mán 05. Nóv 2007 09:09
af St1
Mkay Var að fá mér Eitt.

Ath. Það er einn smá líttil vandi við þetta móðurborð Það er Crazy Cool Dótið aftan á Örgjörfa (Soketinu)

Það er pínu plokk í því að fjarlægja það (og þá er eitthvað Warrenty lady,lalala.
og ég var með CPU viftu með Bracket.
Þanig að ég hoppa aftur í Búðina og Picka up eitthverja Uber Sized viftu (sem er alveg frábær. og heyrist ekki píp..

Þetta gekk allt up mjög vel.
:D

Sent: Mán 05. Nóv 2007 11:19
af emmi
ÓmarSmith skrifaði:Tryllt Móðurborð.

Sá svona á Ebay á um 360 Dollara. Ætli þetta verði ekki lágmark um 30.000 hérna á ÍSlandi.


Svo heyrði líka af öðru.. og það var að þessi borð hafa vangefið mikið defect issue og eru líkleg til að fara í hengla á 1 árinu.

Skilst að Defectið sé 50/50.


Sel það ekki dýrara en ég keypti það.


Ertu með einhverjar heimildir á það? Sjálfur er ég að lenda í leiðindamáli, það gerist reyndar ekki oft en nógu oft. Fyrst þegar ég setti borðið í, þá gerist það að þegar ég kveiki á tölvunni þá slekkur hún og kveikir á sér endalaust. Ég rétt næ að sjá skilaboðin sem koma á skjáinn og þau eru "Searching for BIOS Image on HardDrive" eða álíka.

Eftir nokkrar mínútúr í þessum limbó hætti þetta og vélin búttaði sér, svo gerðist þetta sama dæmi aftur þegar rafmagnið fór af hjá mér um daginn.

Einhver lent í þessu?

Sent: Mán 05. Nóv 2007 11:56
af ÓmarSmith
Gnarr var búinn að gera e-ð research með þessi kubbasett og þetta borð held ég.

Ég treysti honum alveg fullkomlega til að fara með rétt mál.


fyrir utan það smáatriði að ný kubbasett eru nær allltaf með defect og borgar sig ekkert að hoppa á það strax.

Leyfa smá reynslu og nýjum biosum að detta inn.

Sjálfur fór ég í P35 borð þar sem að ég vissi að þau reyndust mjög vel bæði hvað stöðugleika og yfirklukk varðar.

Sent: Mán 05. Nóv 2007 19:12
af Yank
ÓmarSmith skrifaði:Gnarr var búinn að gera e-ð research með þessi kubbasett og þetta borð held ég.

Ég treysti honum alveg fullkomlega til að fara með rétt mál.


fyrir utan það smáatriði að ný kubbasett eru nær allltaf með defect og borgar sig ekkert að hoppa á það strax.

Leyfa smá reynslu og nýjum biosum að detta inn.

Sjálfur fór ég í P35 borð þar sem að ég vissi að þau reyndust mjög vel bæði hvað stöðugleika og yfirklukk varðar.


Skil ekki þetta innlegg. Gnarr hefur ekki sagt orð á þessum þræði ????

Sent: Mán 05. Nóv 2007 19:24
af Yank
emmi skrifaði:
ÓmarSmith skrifaði:Tryllt Móðurborð.

Sá svona á Ebay á um 360 Dollara. Ætli þetta verði ekki lágmark um 30.000 hérna á ÍSlandi.


Svo heyrði líka af öðru.. og það var að þessi borð hafa vangefið mikið defect issue og eru líkleg til að fara í hengla á 1 árinu.

Skilst að Defectið sé 50/50.


Sel það ekki dýrara en ég keypti það.


Ertu með einhverjar heimildir á það? Sjálfur er ég að lenda í leiðindamáli, það gerist reyndar ekki oft en nógu oft. Fyrst þegar ég setti borðið í, þá gerist það að þegar ég kveiki á tölvunni þá slekkur hún og kveikir á sér endalaust. Ég rétt næ að sjá skilaboðin sem koma á skjáinn og þau eru "Searching for BIOS Image on HardDrive" eða álíka.

Eftir nokkrar mínútúr í þessum limbó hætti þetta og vélin búttaði sér, svo gerðist þetta sama dæmi aftur þegar rafmagnið fór af hjá mér um daginn.

Einhver lent í þessu?


Hef ekki lent í neinum vandræðum með þetta móðurborð, og eins og kemur fram í umfjölluninni þá kannast ég ekki við neinn vandræði sem myndu vera tengd við nýgæðingshátt í bios, slíkt hefur bara ekki komið upp hjá mér. Er að nota beta F6a bios.

Er búinn að prufa allann fjandan á þessu borði:

Skjákort:Gainward 6600GT, MSI 7950GT, MSI 8800GTS 320 MB

Minni:
Corsair XMS 6400 800MHz CL5 1GBx2 + 1 GBx2 + 512MBx2
OCZ Platinum Edition 6400 CL4 1GBx2

HD:
WD Raptor 36GB raid 0, Samsung SATA2 320GB, Samsung 320GB IDE. ICY BOX eSATA WD 120GB disk.

Örgjörva:
Intel E6600 Core 2 Duo
Q6600 Quad Core

Í dag keyrir borðið Q6600@3.0GHz 333*9 og það með speed step á þrottlar niður í 6*333@2.0GHz er sáttur við það svona 24/7 í bili enda Q6850 hraði sem kostar um 100 þús.

MSI 975X Power up Edition sem ég hef notað síðsta árið var með mun meiri vandræði en þetta X38 borð fyrstu mánuðina, vegna lélegs bios sem síðar lagaðist með uppfærslum. Þannig ég er mjög ánægður með Gigabyte X38-DQ6

Sent: Mið 07. Nóv 2007 12:25
af St1
ég var að fá mér GA-X38-DQ6
á ég Sem sagt ég ætti að upfæra Bios'in á Móbóinu ?
er að keyra það með það sem það kom með.
Ef svo í hvaða version?
--------------------------------
Q6600-G0
2 GB af DDR2 800Mhz
Thermaltake BigTyp 120 VX Vifta.
8800GT. OC.
------------------------------------------