Síða 1 af 1
HDTV vandi.
Sent: Mán 15. Okt 2007 16:02
af Selurinn
Spila .mkv filea í Media Player Classic með K-Lite codec pack.
8800 GTS 320mb
Ég fæ þegar það er mikið að gerast í myndinni svona fullt af línum eins og myndin sé að skerast á sumum stöðum.
Veit einhver hvað þetta er?
How I fix?
Sent: Mán 15. Okt 2007 19:33
af Zorba
hmm...gerðist alltaf hjá mér þegar ég notaði cccp codec pakkann en þegar ég skipti yfir í K-lite lagaðist þetta.Búinn að prufa aðra codeca?
Sent: Mán 15. Okt 2007 20:27
af Selurinn
Tek sérstaklega eftir þessu þegar ég er með myndina í fullscreen, annars ekki.
Er þetta Vsync, og er þetta tearing sem ég er að sjá?
Sent: Mán 15. Okt 2007 20:46
af Selurinn
Selurinn skrifaði:Tek sérstaklega eftir þessu þegar ég er með myndina í fullscreen, annars ekki.
Er þetta Vsync, og er þetta tearing sem ég er að sjá?
Jæja, prófaði force vsync off og on, hjálpaði ekkert.
Opnaði bara myndina í gegnum wmplayer. Ég sem hélt að Classic væri betri, but frankly not :S
Sömu codecar fyrir báða
Sent: Þri 16. Okt 2007 01:27
af Holy Smoke
Media Player Classic virkar í stuttu máli ekki vel með Matroska. Vandamálið liggur í að Media Player Classic notar einhverja gamla útgáfu af DirectShow filter (að mig minnir) sem veldur vandamálum í Matroska enkóduðum skrám. Þegar þú ert með hann stilltan til að nota overlay rifnar myndin, en ef þú reynir t.d. VMR7 og 9 þá höktir hún í staðinn. Vandamálið er einfaldlega að MPC nær ekki að synca myndina rétt í .mkv skrám.
Sjálfur myndi ég sækja nýjustu útgáfu af VLC til að spila Matroska frekar en að nota Windows Media Player. Þó WMP synci myndina betur en MPC þá höktir samt alltaf einn og einn rammi hjá mér. Á meðan sleppur VLC alveg við það, enda óháður codecum og öðru drasli sem hefur kannski safnast upp í Windows.
Sent: Þri 16. Okt 2007 23:33
af mjamja
prufaðu að nota zoom player
Sent: Mið 17. Okt 2007 16:40
af Zorba
Sjálfur myndi ég sækja nýjustu útgáfu af VLC til að spila Matroska
Úff VLC er vonlaust í að spila HD efni
Sent: Mið 17. Okt 2007 18:41
af CraZy
Ég skal henda inn guide einhverntíman á næstunni þegar ég hef ekkert aðgera