Síða 1 af 1

Ati Radeon 9600Pro í sjónvarp gegnum scart?

Sent: Mið 17. Sep 2003 21:14
af wolcomx
Fékk fyrst lánaða 2m snúru með S-Video í báða enda og fékk upp mynd með lit. Síðan daginn eftir skilaði ég þeirri snúru og keypti mér 10m langa snúru með Scarti öðru meginn og s-video og sound output hinumeginn og nú fæ ég engan lit.. Hvernig get ég lagað þetta? Er með nýjustu driverana sem ég fékk á http://www.ati.com ...

Ég veit að hversu löng snúran skiptir ekki máli..

Sent: Mið 17. Sep 2003 22:24
af doofyjones
Humm, veit ekki hvort þetta er vandamálið... því þetta er svona það sem lægi fyrst við að athuga... en ég læt þetta bara vaða:

Það eina sem mér dettur í hug er að þú sért kannski með stillt á NTSC... ég er með eins kort og það virðist alltaf reset-a FORMAT stillinguna, sem sagt alltaf þegar ég endurræsi tölvuna er Tv-out alltaf stillt fyrir NTSC þrátt fyrir að ég hafi verið búinn að setja á PAL.

Sent: Mið 17. Sep 2003 22:33
af gumol
þetta gerist líka hjá mér, fæ bara svarthvíta mynd, gæti verið kapalinn (er með stillt á pal

Blah

Sent: Fim 18. Sep 2003 00:02
af wolcomx
Ég er búinn að prufa allar formats, þetta bjara virkar ekki.. Var btw alltaf stillt á Pal-B.. Skila þessu drasli? :/

Sent: Fim 02. Okt 2003 10:48
af MysticX
PAL-B er kerfið sem við notum hérna á Íslandi.

Prófaðu að fara í nVIEW display modes, og í display settings á TV-B/PAL og prófaðu að skipta á milli VHS (RCA) og SVHS merkisisins. Þetta er mjög líklega það, þar sem þetta SCART sem þú ert með styður alveg örugglega ekki SVHS.

Þap sem mig minnir, að ef þið prófið að skipta á milli NTSC og PAL, er sá að myndin verður meira græn heldur en ella.

Prófaðu þetta.

Sent: Fim 02. Okt 2003 11:38
af gnarr
MysticX skrifaði:PAL-B er kerfið sem við notum hérna á Íslandi.

Prófaðu að fara í nVIEW display modes, og í display settings á TV-B/PAL og prófaðu að skipta á milli VHS (RCA) og SVHS merkisisins. Þetta er mjög líklega það, þar sem þetta SCART sem þú ert með styður alveg örugglega ekki SVHS.

Þap sem mig minnir, að ef þið prófið að skipta á milli NTSC og PAL, er sá að myndin verður meira græn heldur en ella.

Prófaðu þetta.


helduru virkilega að nView hafi vilgt með Ati kortinu hanns.. :lol:

Sent: Fim 02. Okt 2003 14:13
af Lazylue
Ertu viss um að sjónvarpið þitt styðji s-video.
Ég lenti í þessu að þetta var svarthvítt og þurfti bara að taka af s-video dæmið.

Sent: Fim 09. Okt 2003 22:44
af RadoN
sko, sjónvarpið verður að styðja S-VHS, mitt Radeon VE (aka 7000pro) er bæði með S-VHS og VHS out, ég verð að nota VHS á flest sjóvörp hérna heima, nema á nýja Sony sjóvarpið okkar sem er með S-VHS in og S-VHS fyrir SCART2.. ekkert hægt að gera við þessu
þú getur samt held ég fengið einhvern kubb fyrir þetta í Tölvulistanum eða eitthvað, hef ekki séð þetta ein heyrði einhverja vera að tala um þetta einsinni

Sent: Fim 09. Okt 2003 23:57
af Daz
Ég veit náttúrulega ekkert hvort þetta á við um nokkurn anna en mig, en þegar ég tengi mitt skjákort (GF420mx) í sjónvarpið (nýlegt Dawoo) í gegnum s-video tengið fæ ég bara svarthvítt á s-video rásinni, en í lit á scart rás 2.