Síða 1 af 1

Samsung SyncMaster 226BW review

Sent: Mán 27. Ágú 2007 23:21
af Yank
Ný umfjöllun að þessu sinni LCD skjár.
Samsung SyncMaster 226BW

Góður skjár hér á ferð...

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=15329

Sent: Þri 28. Ágú 2007 09:36
af hagur
Flott review :wink:

Ég er sammála því nánast í einu og öllu.

Sent: Þri 28. Ágú 2007 14:24
af ÓmarSmith
Á svona skjá .. Frábær skjár vægast sagt.

En ég er samt með grænulitarghosting í BF2... hvað með ykkur ?

Sent: Sun 02. Sep 2007 14:06
af Yank
ÓmarSmith skrifaði:Á svona skjá .. Frábær skjár vægast sagt.

En ég er samt með grænulitarghosting í BF2... hvað með ykkur ?


Hef ekki spilað BF2 á þessum skjá, en hellinga að öðrum leikjum. m.a. Dirt, BF42, Prey, FarCry, COH, HL2, FEAR, Bioshock, STALKER ofl.

Allir leikir hafa komið brilljant út í honum nema BF42, en það tel ég varla marktækt því í þessum leik á ég á þriggja ára tímabili fleiri flugtíma en atvinnuflugmaður á helli lífstíð. Ég hef aldrei fílað BF42 í LCD.

Ertu með skjáin "rétt" caliberaðan ?

Sent: Sun 02. Sep 2007 17:21
af Harvest
Geggjuð umföllun á geggjuðum skjá.

Á sjálfur svona og það eina sem ég gæti sett út á hann er fóturinn.. sem ég hefði viljað hafa hæðarstillanlegan (allavega eitthvað smá).

En er hægt að mæla input lag á eitthvern hátt? t.d eitthvað forrit eða svoleiðis?

-sá að þú varst að vesenast með skeiðklukkur og CTR skjái þarna til samanburðar.

Sent: Sun 02. Sep 2007 21:15
af Viktor
Mátt bæta við hvað hann hvar hann er ódýrastur, og hvað hann kostar :)

Sent: Sun 02. Sep 2007 21:42
af Harvest
Viktor skrifaði:Mátt bæta við hvað hann hvar hann er ódýrastur, og hvað hann kostar :)


Þá hættir þetta samt eiginlega að vera ódauðleg og óháð umföllun.. nema hann geti "uppfært" greininna sem að ég efast um að hann nenni miðað við hvað verðin breytast hratt.

Sent: Þri 04. Sep 2007 13:43
af Yank
Harvest skrifaði:Geggjuð umföllun á geggjuðum skjá.

Á sjálfur svona og það eina sem ég gæti sett út á hann er fóturinn.. sem ég hefði viljað hafa hæðarstillanlegan (allavega eitthvað smá).

En er hægt að mæla input lag á eitthvern hátt? t.d eitthvað forrit eða svoleiðis?

-sá að þú varst að vesenast með skeiðklukkur og CTR skjái þarna til samanburðar.


Ef gengið er út frá því að inputlag á CRT skjá sé núll og þú klónar báða skjái, þannig skjákortið er að senda þeim sömu upplýsingar á nákvæmlega sama tíma, þá "ætti" að "sjást" munur þegar teknar eru myndir af báðum skjánum sem eru að keyra sömu klukku á sama "tíma". Við erum þó yfirleitt að tala um ms eða millisekúndur. Þannig myndavélin þarf að leyfa þannig hraða. Annars er þetta ekki "hávísindalegt próf" því það er mikið um ef.

Annars treysti ég frekar auganu til að sjá svona og eins og fram kemur þá var enginn sjáanlegur munur á CRT og þessum Samsung.

Sent: Þri 11. Sep 2007 15:40
af deadman
Yank skrifaði:Annars treysti ég frekar auganu til að sjá svona og eins og fram kemur þá var enginn sjáanlegur munur á CRT og þessum Samsung.


Ekki nema að CRT skjárinn sem þú notaðir þurfti ekki að standa út á ómáluðum svölunum hjá þér í rigningu.

Og nb ég pjúnaði þig í BF42, hvar sem er hvenær sem er :)

Sent: Þri 11. Sep 2007 21:38
af Yank
deadman skrifaði:
Yank skrifaði:Annars treysti ég frekar auganu til að sjá svona og eins og fram kemur þá var enginn sjáanlegur munur á CRT og þessum Samsung.


Ekki nema að CRT skjárinn sem þú notaðir þurfti ekki að standa út á ómáluðum svölunum hjá þér í rigningu.

Og nb ég pjúnaði þig í BF42, hvar sem er hvenær sem er :)


Piff þú kannt ekkert í BF42 nema það sem ég kenndi þér.

Sent: Mán 17. Sep 2007 15:39
af St1
Skella sér á ein svona 1.oct :D

Re: Samsung SyncMaster 226BW review

Sent: Fim 20. Sep 2007 22:29
af Canis Lupus
Já fékk mér þennan skjá í maí síðastliðnum. Skulum bara segja að mér kítlar í að fá mér annan er samt að vega og meta. Er samt að spá hvort það sé ekki of mikið fyrir skjákortið mitt. Ég er með Geforce 7900gt/gto. Á ég eða á ég ekki? Höndlar skjákortið þetta?

Re: Samsung SyncMaster 226BW review

Sent: Fim 20. Sep 2007 22:56
af Harvest
Canis Lupus skrifaði:Já fékk mér þennan skjá í maí síðastliðnum. Skulum bara segja að mér kítlar í að fá mér annan er samt að vega og meta. Er samt að spá hvort það sé ekki of mikið fyrir skjákortið mitt. Ég er með Geforce 7900gt/gto. Á ég eða á ég ekki? Höndlar skjákortið þetta?


Já, með léttu. Getur þannig séð notað handónýtt kort (segi svona) í dual setup. Allavega hefur reynslan bara verið góð hér. Er með 1x ATI x850 kort sem er komið vel á tíma og það er að keyra 2 svipaða skjái (sama upplausn).

Svo þetta ætti ekki að vera mikið vandamál, þar sem ég held að þitt kort sé betra.

Ekki spurning að vera með dual... hélt að það væri algjör peningasóun, en ég er löngu búinn að vinna það margfalt upp í tímasparnaði.

Re: Samsung SyncMaster 226BW review

Sent: Fim 20. Sep 2007 23:31
af Canis Lupus
Ég ætti að skammast mín en ég held þú hafir sannfært mig án allra vísindalegra sannana annara enn þitt eigið álit. Ætla næla mér í annað stykki á morgun kannski örgjöfa líka bara til að setja punktinn á endann.

Sent: Sun 23. Sep 2007 21:44
af Loki Lauf
Hvernig á maður að þekkja mismuninn á skjám með A og S panel?
Búinn að vera að lesa það að þeir sem eru með A panel séu mein gallaðir en þeir sem eru með S panel séu í góðu lagi!!

Sent: Sun 23. Sep 2007 22:43
af Daz
Mér finnst ég fá þvílíkt backlightbleeding (allan hringinn eiginlega) jafnvel þó ég lækki contrastið og svoleiðis. Er ég þá með "gallaða" panelinn?

Sent: Sun 23. Sep 2007 23:38
af Yank
Loki Lauf skrifaði:Hvernig á maður að þekkja mismuninn á skjám með A og S panel?
Búinn að vera að lesa það að þeir sem eru með A panel séu mein gallaðir en þeir sem eru með S panel séu í góðu lagi!!


Ég fjallaði aðeins um þetta í þessari umfjöllun án þess að nefna sérstaklega hvar og hvernig þessi umræða átti sér stað. En ef þú skoðar málið betur þá kom í ljós þegar A og S voru skoðaðir saman og bornir saman við keppinauta var sama hvort þú fengir A eða S panel þeir væru betir. Einnig var óverulegur munur var á performance þeirra. Þannig ekki rétt hjá þér að A væru eitthvað gallaðir.

Hef ekki hugmynd um hvort þessi sem gerði review um sé með sé A eða S panel engar af þeim leiðum sem upphaflega voru gefnar upp til þess að finna það út virkuðu ekki. Hvort sem var serial eða ákeðnu trick í menu sem ég man ekki lengur hvað var.

Sent: Sun 23. Sep 2007 23:43
af Yank
Daz skrifaði:Mér finnst ég fá þvílíkt backlightbleeding (allan hringinn eiginlega) jafnvel þó ég lækki contrastið og svoleiðis. Er ég þá með "gallaða" panelinn?


Þessi skjár er eins og allir 6-bita panelar með blacklight bleed. Þessi þó mun minna en margir sem ég hef séð og ég verð aldrei var við það við eðlilega notkun.

Þessi mynd þó ekki góð sé sýnir vel hversu lítið það er í þeim skjá sem ég prófaði. Ef það er mun meira en þetta hjá þér þá veit ég ekki hvort það er vegna galla eða.....

Mynd

Sent: Mán 24. Sep 2007 08:52
af Daz
Nei ég var búinn að reyna að fylgja einhverjum leiðum til að ákvarða paneltýpuna, fékk ekkert útúr því.
En já ætli minn sé ekki svipaður. Ég kvarta aðalega því ég er með Lenovo D221 skjá í vinnunni (22") sem er eiginlega alveg 100% bleedlaus og ég hélt að hann væri svona "ódýr" skjár líka.

Sent: Sun 30. Des 2007 14:31
af St1
Reyndar er ég búinn að taka eftir smá "Höggtun" í leikjum eins og bio shock þegar maður er í Lyftu thing'inu (í byrjun) þegar eitthver Splizer er að skera í gegnum topin Og blossarnir eru útum allt.

Þá Koma rendur á skjáinn, sem renna up. Skall reynað taka mynd af því
(Er með 8800 GT kort) með 226BW

Sent: Sun 30. Des 2007 14:54
af Yank
St1 skrifaði:Reyndar er ég búinn að taka eftir smá "Höggtun" í leikjum eins og bio shock þegar maður er í Lyftu thing'inu (í byrjun) þegar eitthver Splizer er að skera í gegnum topin Og blossarnir eru útum allt.

Þá Koma rendur á skjáinn, sem renna up. Skall reynað taka mynd af því
(Er með 8800 GT kort) með 226BW


Vertical sync ?