Síða 1 af 1

70 þúsund max (ákveðið)

Sent: Fös 03. Ágú 2007 01:41
af noobi2
já sælir afsakið þetta vesen á mér endalaust :)

en ég er búinn að ákveða mig.. max verð 70þúsund, finnst það alveg nóg og mikill peningur til að spila counter-strike:source! ekki krónu meira!!1

jæja.. -Verður að vera ágætlega hljóðlágt (þetta er alltof hávært hérna hjá mér núna.. örrgjörva kælingin er örugglega 30dB og aflgjafinn og skjákorta viftan svona 25dB :P - og turnkassinn er OPINN (hlífar týndar haha:D)

en já.. 100fps stable í counter-strike:source, verður að vera með 2 gb í minni nenni ekki að vera á slow pc.. og please ekki láta mig fara að kaupa örgjörva hjá kisildal, því 6600kostar 20þús hjá þeim en aðeins 13þúsund hjá computer/att og fl.

takk fyrir, og afsakið ;)

Sent: Fös 03. Ágú 2007 10:24
af DoRi-
það er búið að svara þessu annarsstaðar, held að það hafi verið Mazi

Sent: Fös 03. Ágú 2007 14:07
af noobi2
hvar?

Sent: Fös 03. Ágú 2007 14:09
af ÓmarSmith
Þú segir 70.000 MAX. Ertu þá að tala um alveg heila vél með öllu tilheyrandi fyrir utan Skjá-Mús-Lyklaborð og þannig ?

Örri
móðurborð
minni
skjákort
kassi
psu


?

Sent: Fös 03. Ágú 2007 14:14
af noobi2
ÓmarSmith skrifaði:Þú segir 70.000 MAX. Ertu þá að tala um alveg heila vél með öllu tilheyrandi fyrir utan Skjá-Mús-Lyklaborð og þannig ?

Örri
móðurborð
minni
skjákort
kassi
psu


?


Bara kassann já, ég er með 19" Gamers, G15, MX518 :D
síðan á ég 6 harðadiska hérna eða eitthvað og dvd skrifara líka svo það vantar ekkert

Sent: Fös 03. Ágú 2007 14:53
af ÓmarSmith
Ok, þá mæli ég með eftirfarandi.

Móðurborð: Gigabyte 965P-S3, 12900
Örri : Intel Core2 E4400 10900
Minni: 2GB ST 800Mhz 12900
Skják. Nvidia 8600GTS 19900
Turn Antec NSK6500 16900

Samtals : 73500

Ljómandi fínt settup og með DX10 Skjákort fyrir framtíðina.

Það er hægt að ná þessu aðeins niður með öðrum kassa. TD Coolermaster Elite ( lítill kassi ) og taka Thermaltake 430W PSU.

Þá er þetta 68500Kr.

Allir þessir íhlutir eru valdir frá Tölvutækni.

Væri gaman að sjá e-n taka settup frá Kísildal til hliðsjónar.

Sent: Fös 03. Ágú 2007 15:11
af noobi2
kar er: Antec NSK6500 ??

ekkert sá hann.

Sent: Lau 04. Ágú 2007 00:31
af ÓmarSmith
ÞEssi kassi fæst í Tölvutækni. Flottur og mjög vandaður kassi. Og þetta PSU hefur verið að skila fínum árangri á nokkuð öflugum vélum er mér sagt.

Þú amk þarft ekki meira.

Sent: Sun 05. Ágú 2007 21:12
af Holy Smoke
Ég held að Ómar sé með ágætis díl, en mér finnst þó ekki sniðugt að eyða 17 þús kalli í tölvukassa nema þú ætlir að nota hann líka sem fileserver eða vera með 4+ harða diska í honum. Frekar myndi ég taka þennan 68500kr pakka og fara úr 8600GTS (sem er hálfgert drasl) í 8800GTS fyrir 8000 kalli meira. Ef þú kaupir minnið í Tölvuvirkni geturðu ennfremur skafið af 3000 kall og látið það ganga upp í.

Þú nefnir að þú sért með 19" skjá, sem þýðir væntanlega 1280x1024 upplausn. Þó að 8600GTS dugi til að keyra CS:S í þeirri upplausn þá er alls ekki sjálfgefið að þú náir constant 100fps á því nema þú lækkir stillingar. Skjákortið er mikilvægasti hluti tölvunnar, og vel þess virði að eyða nokkrum þúsundköllum aukalega í það.

Edit: Var að sjá að þú ert með 6 diska, og þarft því stærri kassa, en það gildir einu. Jafnvel þó þú þurfir að hækka þig í 78þús kall til að fá 8800GTS er það vel þess virði.

Sent: Þri 07. Ágú 2007 09:45
af Mazi!
Holy Smoke skrifaði:Ég held að Ómar sé með ágætis díl, en mér finnst þó ekki sniðugt að eyða 17 þús kalli í tölvukassa nema þú ætlir að nota hann líka sem fileserver eða vera með 4+ harða diska í honum. Frekar myndi ég taka þennan 68500kr pakka og fara úr 8600GTS (sem er hálfgert drasl) í 8800GTS fyrir 8000 kalli meira. Ef þú kaupir minnið í Tölvuvirkni geturðu ennfremur skafið af 3000 kall og látið það ganga upp í.

Þú nefnir að þú sért með 19" skjá, sem þýðir væntanlega 1280x1024 upplausn. Þó að 8600GTS dugi til að keyra CS:S í þeirri upplausn þá er alls ekki sjálfgefið að þú náir constant 100fps á því nema þú lækkir stillingar. Skjákortið er mikilvægasti hluti tölvunnar, og vel þess virði að eyða nokkrum þúsundköllum aukalega í það.

Edit: Var að sjá að þú ert með 6 diska, og þarft því stærri kassa, en það gildir einu. Jafnvel þó þú þurfir að hækka þig í 78þús kall til að fá 8800GTS er það vel þess virði.


Góður Punktur.

Sent: Þri 07. Ágú 2007 10:22
af appel
ÓmarSmith skrifaði:Örri : Intel Core2 E4400 10900


E4400? :roll:

btw. E6600 er sennilega best buy, miðað við það sem ég sé á verðvaktinni :)

Sent: Þri 07. Ágú 2007 10:30
af TechHead
Nei, reyndar er E6550 Best buy (1333mhz FSB) en verðvaktin er bara ekki kominn með hann í listann hjá sér :roll:

Sent: Þri 07. Ágú 2007 17:26
af ÓmarSmith
ÞEssi þráður var ekki um bestbuy. heldur ákveðna vél og hvað hún má kosta.

Hann þarf ekki E6600 í kánterstræk. Þó hann sé bestu kaupin. þá kostar hann meira.

hinn er feikimeira en nóg.