Síða 1 af 1

Verðhugmynd?

Sent: Mið 01. Ágú 2007 08:54
af FrankC
Sælir...

Nú er ég búinn að færa mig algjörglega yfir í makka og er að selja gömlu PC vélina mína. Ég var að vona að e-r hérna gæti gefið mér hugmynd um sanngjarnt verð fyrir hana. Ég vil helst selja hana sem heilan pakka með öllu.

Vélin inniheldur eftirfarandi:

2,4ghz P4 örgjörvi, kældur með Zalman blómi
nvidia geforce 5200 skjákort, kælt með Zalman plötum, viftulaust með tv-out
512mb minni
120gb sata diskur
hljóðlátar kassaviftur með stýringu aftan á tölvunni
Soundblaster Audigy hljóðkort
PCI usb kort
og svo allt þetta standard dót, gigabit lan osfrv...

Kassinn er stór Chieftec dragon kassi, með hurð að framan og usb tengjum o.fl. Mjög massífur og góður kassi, mikið pláss fyrir auka diska og drif.

Með tölvunni kemur svo þráðlaust svart lyklaborð og mús sem lítur svona út, með íslenskum stöfum og media tökkum.

Síðan fylgir líka 17" flatur Viewsonic skjár með innbyggðum hátölurum...


S.s., ekki vél í nýjustu leiki, en mjög fín í almenna vinnslu fyrir venjulegan notanda, gæti líka hentað vel sem storage server eða álíka...

Ég hef ekki verið að fylgjast með verðum á neinu síðustu 2 árin en mér datt í hug að setja 40 þúsund á þetta allt saman. Er það raunhæft? Ef það er of hátt þá afþakka ég allt fleim, hef bara ekki fylgst með í soldin tíma, leiðréttið mig þá bara :)

Sent: Mið 01. Ágú 2007 16:14
af tommiáddna
Hvernig Makka fékkstu þér ;D ?

Sent: Mið 01. Ágú 2007 16:37
af FrankC
tommiáddna skrifaði:Hvernig Makka fékkstu þér ;D ?


Var með eina MacBook fartölvu fyrir og svo keypti ég mér notaðan 24" iMac. Ætla að fá mér Mac Pro í des/jan...

Sent: Mið 01. Ágú 2007 21:04
af Heliowin
Er þetta venjulegur gamall skjár eða flatskjár?

Sent: Mið 01. Ágú 2007 22:18
af FrankC
Heliowin skrifaði:Er þetta venjulegur gamall skjár eða flatskjár?


úps gleymdi að taka það fram, þetta er LCD skjár. Ætti að vera e-r smá peningur í honum, notaðir 17" CRT skjáir virðast nú vera nánast verðlausir...

Sent: Fim 02. Ágú 2007 00:39
af beatmaster
Ég myndi verðleggja turninn á svona 10.000-12.000 kr

Sent: Fim 02. Ágú 2007 08:26
af FrankC
beatmaster skrifaði:Ég myndi verðleggja turninn á svona 10.000-12.000 kr


S.s. jafn mikið og kassinn kostar?