Síða 1 af 1

Flöktandi pixel ?

Sent: Fim 17. Maí 2007 22:19
af barabinni
Ég er nú bara að búa til þennann þráð hérna því að ég finn ekkert á google og hef ekki hugmynd um hvað gengur á.

En það er þannig hjá mér að inní sumum eldri leikjum þá byrja ég að fá flöktandi pixel inní leikinn. Þetta getur orðið frekar pirrandi þegar fjöldinn vex úr einum grænum yfir 7-8 græna og bláa líka.

Þetta virðist bara eiga sér stað inní eldri leikjum og hverfa þessi pixel þegar ég gerir t.d. alt-tab. Ég veit að þetta er ekki skjárinn. Þannig það kemur bara tvennt til greina. En hvernig ég kemst að því hver raunveruleg osökin er ætlar að vera mér ofviða. Þannig ég væri til í að fá smá ráðleggingar ef einhver hefur nóg af þeim !

Takk fyrir.

Sent: Fös 18. Maí 2007 00:41
af gnarr
Þetta kallast "Artifacts" og koma vegna ofhitnunar/galla í skjáhraðli.

Sent: Fös 18. Maí 2007 00:50
af barabinni
Bahhhhh... er ekki að nenna einhverju þannig veseni. En jæja. Best að fara kanna málið. :?

Sent: Fös 18. Maí 2007 09:12
af ÓmarSmith
Hvaða skjákort ertu með ?

Ef þú ert með Nvidia kort skaltu nota Rivatuner eða Nvidia Control Panel til að monitora hita.

Ef þú ert með ATI kort skaltu nota ATI-TOOL og monitora hitann á kortinu með því.

Í versta falli þarftu að skipta um kælingu á skjákortinu. Það kostar ekki mikið og er ekki erfitt :)

Sent: Fös 18. Maí 2007 13:41
af Tjobbi
Opnaðu bara turninn og láttu borðviftu blása inn þegar á leiknum stendur. :)

Sent: Fös 18. Maí 2007 14:58
af gnarr
í vertsa falli er þetta ónýtt skjákort og þá er ekkert hægt að gera í því.

Sent: Fös 18. Maí 2007 18:56
af Yank
Þetta getur líka verið driver eða DirectX vesen uppfærðu alla drivera og Drirect X

Sent: Fös 18. Maí 2007 23:50
af barabinni
Well. Ég er nú alveg til í að prufa nýja kælingu í greyið. Þetta er xfx 7900 gt/gto.

Finnst bara súrt að þetta sé annað kortið sem ég kaupi í kísildal sem ætlar að fara í eitthvað artifact vesen. Það fyrra var jú frá öðrum framleiðanda.

En mér finnst þetta óttarlegt vesen að þurfa alltaf að vera skipta út kortum og kælingum.


Hef reynt að uppfæra drivera og soddann. Virðist ekki vera vandinn. Svo er ég að fá þessa artifacts í leikjum sem þurfa varla mikla keyrslu. Eins og HOI2.

Farinn að hallast að því að kælingin sé biluð þá eða að kortið sé bara farið.

Sent: Lau 19. Maí 2007 11:15
af kristjanm
Ég myndi prófa kortið í annarri tölvu áður en þú skiptir því út.

Ef þetta er annað kortið sem þetta gerist með í sömu tölvu þá myndi ég frekar halda að það væri eitthvað annað sem væri að orsaka þetta.

steini

Sent: Sun 20. Maí 2007 12:07
af steini_ofur
ef þetta hefur gerst áður með öðru skjákorti á sömu vél þá er þetta frekar dúíjus. hvernig skjá ertu með? hvernig tölvu?

Sent: Sun 20. Maí 2007 13:43
af barabinni
Veit að þetta er ekki skjárinn. Fékk nýjann skjá fyrir 2 vikum.

Hinsvegnar er ég ekki búinn að skipta um örgjörfa eða móðurborð í næstum ár. En vandræðin sem voru með fyrra kortið eru í engri líkingu við þau vandræði sem ég er í núna.♦