Síða 1 af 1
SDRAM í DDR
Sent: Mið 13. Nóv 2002 16:08
af odinnn
ég er að spá í hvort það sé ekki í lagi að setja SDRAM kubb í DDR slot? þetta er nú einusinni SDRAM slot sem er töfallt hraðvirkara þannig að þetta steikir kannski kubbinn eftir dálítinn tíma.
þannig er það í lagi?
Sent: Mið 13. Nóv 2002 16:20
af kiddi
Nei það er sko ekki í lagi, þetta er svipuð tækni undir en þetta er allt annar kubbur, fyrir það fyrsta þá keyrir DDR á amk 266mhz bus hraða, en SDRAM á 66/100/133, þannig að þú grillar kubbinn þinn -strax-. Auk þess sem það eru gerð sérstök móðurborð sem eru bæði með SDRAM og DDR slottum, ef þetta væri í lagi, til hvers væru þeir þá að því?
Sent: Mið 13. Nóv 2002 18:17
af Atlinn
EEENNNN!!! fyrir það fyrsta þá er ekki hægt að setja sdram i ddram borð passar ekki. S.S. sdram raufar eru ekki eins og ddram raufar. ernd of storie
Sent: Mið 13. Nóv 2002 22:20
af MezzUp
Atlinn: góður punktur...... :)
Sent: Fim 14. Nóv 2002 01:36
af Castrate
Ef þú kaupir svona móður borð sem styður bæði sdram og ddr þá geturu ekki verið með bæði í einu þannig að....
er það líka til?
Sent: Fim 14. Nóv 2002 10:57
af GuðjónR
Eru til svoleiðis móðurborð ?
Sent: Fim 14. Nóv 2002 12:26
af Castrate
Jámm þessi móðurborð eru með chipset sem kallast ALI man ekki hvað móðurborðin heita minnir að það sé einhver verslun sem selur þetta hérna á íslandi.
Sent: Fim 14. Nóv 2002 16:37
af Buddy
Tolvuvirkni.net er með VIA móðurborð sem getur tekið bæði SDRAM og DDR SDRAM. Einnig er til ECS móðurborð með SIS kubbasetti sem tekur bæði.
Sent: Fim 14. Nóv 2002 17:59
af kemiztry
VIA.. úff.. VIA chipset er dauðinn sjálfur
Sent: Fim 14. Nóv 2002 18:16
af Castrate
Ég er með Via KT333 ekkert að því ég er mjög ánægður með það
Re: SDRAM í DDR
Sent: Fim 14. Nóv 2002 18:28
af halanegri
odinnn skrifaði:þetta er nú einusinni SDRAM slot sem er töfallt hraðvirkara......
eitthvað vitlaust þarna...
Sent: Fim 14. Nóv 2002 18:32
af Atlinn
hérna er eitt
Jetway sdram & ddram
og það eru örugglega fleiri þarna nenni bara ekki að leita
Sent: Fös 15. Nóv 2002 00:49
af Buddy
VIA kubbasett eru alltaf að batna og síðustu 2-3 hafa bara verið nokkuð góð.
Sent: Fös 15. Nóv 2002 01:03
af kemiztry
Well, ég hef allavegana mjög slæma reynslu af VIA. Mín gamla vél var með VIA chipsetti.. hún átti nú til að ríbútta sér í tíma og ótíma. Það var ekkert voðalega gaman t.d. á Skjálfta í miðjum leik
Svo hef ég heyrt sömu sögur frá fleirum... endalaus vandræði. Þeir hafa eflaust fixað þetta núna... en samt sem áður þá segi ég nei við VIA og AMD
Sent: Fös 15. Nóv 2002 01:09
af Castrate
hmm...Hvert er besta chipsettið í dag Fyrir amd?
Sent: Fös 15. Nóv 2002 02:05
af halanegri
er það ekki bara SiS746 ?
Hmmm...
Sent: Fös 13. Des 2002 02:43
af noline
Castrate skrifaði:hmm...Hvert er besta chipsettið í dag Fyrir amd?
Besta chipsettið í dag fyrir AMD er að skipta því út fyrir PENTIUM og ASUS eða VIA.
Dæmi:
AMD 800 Mhz duron á ALi móðurborði installaði fínt winxp, en um leið og maður reyndi linux, no way....einfaldlega kom með endalausar villur um ósamhæfni kerfis og fleira.
Best að vera SAFE og nota Pentium.
Sent: Fös 13. Des 2002 09:54
af Hannesinn
noline skrifaði:Best að vera SAFE og nota Pentium.
Pentium = Mikið fyrir lítið.
AMD er bara fyrir löngu búið að sanna sig og annað hvort ert þú með gallaða vöru (sem getur gerst fyrir hvaða framleiðanda sem er) (/sarcasm on) eða þá að þetta er <b>notendavandamál</b> :mrgreen: :mrgreen: (/sarcasm off)
Sent: Fös 13. Des 2002 15:58
af noline
Hannesinn skrifaði:noline skrifaði:Best að vera SAFE og nota Pentium.
Pentium = Mikið fyrir lítið.
AMD er bara fyrir löngu búið að sanna sig og annað hvort ert þú með gallaða vöru (sem getur gerst fyrir hvaða framleiðanda sem er) (/sarcasm on) eða þá að þetta er <b>notendavandamál</b> :mrgreen: :mrgreen: (/sarcasm off)
{Experience on}
Ekki notendavandamál, heldur 10 ára reynsla, AMD K5 og K6 voru ágætir í linux þjóna og eru enn, en hin nýja kynslóð hefur verið heldur endasleppt varðandi samhæfni við stýrikerfi, hvort sem um er að kenna að lélegum stýrikerfum eða fljótfærnislegum vinnubrögðum AMD við að boosta sölu hjá sér með því að prófa vörur sínar ekki nægilega og setja þær fram gallaðar!
{Experience off}