Síða 1 af 2
R600!! Nýjar uppl.
Sent: Fös 13. Apr 2007 16:57
af Pepsi
Rakst á þetta rétt í þessu........
http://www.dailytech.com/ATI+Releases+M ... le6903.htm
Fyrir mitt leyti, þá er ég að fara að uppfæra GPU.........
Sent: Fös 13. Apr 2007 18:27
af Yank
AMD/ATI show me the money!!!!
Ekki lofar þetta góðu!!
Sent: Fös 27. Apr 2007 12:36
af viggib
Sent: Fös 27. Apr 2007 12:45
af ÓmarSmith
Fjárinn, hvernig stendur á þessu.
Bad drivers ?
Sent: Fös 27. Apr 2007 14:21
af kristjanm
R600 virðist ekki ætla að verða neitt sérstakur, kannski að hann verði betri þegar þeir setja hann á 65nm sem verður mjög fljótlega skilst mér.
Sent: Fös 27. Apr 2007 15:11
af TechHead
Vá, þvílík vonbrigði með 2900XTX kortið, GDDR4 er greinilega ekki að skila
rassgat meira performance á þessum kjarna
Sent: Fös 27. Apr 2007 15:15
af gnarr
ég ætla að bíða eftir raunverulegum retail niðurstöðum áður en ég gef upp öndina.. en þetta lítur ekki vel út sem stendur.
Sent: Fös 27. Apr 2007 15:38
af TechHead
ÓmarSmith skrifaði:Fjárinn, hvernig stendur á þessu.
Bad drivers ?
Ég vona það svo sannarlega AMD vegna, var að vonast eftir jafnri keppni á
toppnum
En eins og Gnarr sagði þá verður maður að bíða og sjá
retail benchmark......
En hitt er á hreinu að AMD mun ná stórri markaðshlutdeild í midrange
kortunum miðað við afköst 2900XT gegn 8800 GTS, og það er nú þar sem
allur peningurinn er svo ekki er öll von úti enn hjá AMD...
Sent: Fös 27. Apr 2007 23:58
af Pepsi
Þessi benchies Stungu mig svolítið, reiknaði með allavega sirka jöfnu performance og 8800GTX, kannski ekkert að marka. Tíminn leiðir það í ljós......
Gerði mér samt lítið fyrir og stökk yfir lækinn þar sem grasið var grænna og fékk mér BFG 8800GTX,
Rosalega eru þetta öflug kort.l
Sent: Lau 28. Apr 2007 10:03
af geiri01
Þau eru það svo sannarlega.. Allt annað líf
.
Sent: Lau 28. Apr 2007 10:32
af stjanij
þessi benchmarks eru nú eitthvað skrítin, best að bíða eftir alvöru benchmaks þegar kortið er formlega komið út og réttu driverar komnir.
Driverinn er mjög mikilvægur til að hardware virki rétt.
Sent: Lau 28. Apr 2007 10:44
af Cikster
Ójá, driverarnir skipta mjög miklu máli. nVidia t.d. gjörsamlega klúðruðu 7950 GX2 kortunum með því að driver supportið er hrillilegt.
Ég var farinn að vona að ATI/AMD mundu ná að koma út með kort sem mundi rasskella 8800 GTX sérstaklega þar sem XTX kortið er fáránlega langt og þar sem þeir hafa nú haft hálft ár í viðbót við nVidia til að fínpússa kortið.
Sent: Lau 28. Apr 2007 16:10
af wICE_man
Ég er að veðja á að ATI kortin hafi sigurinn hvað IQ varðar enda verða suddalegir AA alorithmar í gangi á þeim, XTX útfærslan virðist þó vera eitthvað alvarlega illa ígrunduð.
Sent: Sun 29. Apr 2007 15:14
af ManiO
Kom einhverstaðar hvernig íhlutir voru annað en kortin og hvaða stýrikerfi?
Sent: Mán 30. Apr 2007 16:02
af corflame
Las einhversstaðar að vandamálið lægi í GDDR4 minnisútfærslunni á kortinu, þeas, einhverjir böggar sem ætti eftir að laga.
Sel það samt ekki dýrara en ég keypti
Sent: Mán 30. Apr 2007 17:34
af ÓmarSmith
einmitt, böggar ennþá sem fylgja og þeir ná eflaust ekkert að nýta aflið sem er í kortinu.
ATI hafa alla tíð komið með trompið á eftir Nvidia og það verður eflaust engin breyting á því núna.
Retail kort, réttir driverar
Nvidia ... watch out.
Sent: Mán 30. Apr 2007 22:34
af kristjanm
Ég held að R600 sé bara alveg eins og það kemur fram núna, ekkert drivera vesen eða neitt, svona er kortið bara.
Greyin sökkerarnir sem eru búnir að bíða í marga mánuði eftir þessu.
Sent: Mán 30. Apr 2007 22:42
af ManiO
kristjanm skrifaði:Ég held að R600 sé bara alveg eins og það kemur fram núna, ekkert drivera vesen eða neitt, svona er kortið bara.
Greyin sökkerarnir sem eru búnir að bíða í marga mánuði eftir þessu.
Af því að það er búin að vera svo mikil þörf á DX10 korti hingað til
Sent: Þri 01. Maí 2007 00:12
af kristjanm
Ehh R600 átti að vera meira en bara DX10 kort, það átti líka að vera mjög öflugt. Mjög margir sem eru með léleg skjákort eru búnir að vera að bíða í marga marga mánuði eftir þessu, þegar þeir hefðu getað keypt sér 8800GTX strax.
Ég er nokkuð viss um að mjög margir eru ævareiðir yfir þessu, AMD búnir að vera með einhverjar svaka yfirlýsingar um kortið og allir bíða spenntir meðan kortinu er frestað aftur og aftur. Svo loksins kemur það og það nær ekki einu sinni að vera öflugra en 8800GTX sem er búið að vera á markaðnum heillengi.
Ég veit það allavega að ef ég væri hinn venjulegi Jón Jónsson búinn að bíða í hálft ár með 6600gt kortið mitt spilandi leikina mína í ömurlegum gæðum að bíða eftir trompinu frá AMD, R600, þá væri ég frekar súr yfir þessu.
Sent: Þri 01. Maí 2007 00:37
af Pepsi
Leikirnir verða ekkert ónýtir þó þeir séu ekki spilaðir strax og þeir koma út.....
Þeir sem að eiga 6600GT og verið að bíða eftir R600 allan þennan tíma geta bara sjálfir sér um kennt.
Gerir einhver sér grein fyrir hvað 8800GTX kortið er öflugt, ég er einverja hluta vegna farinn að verða rólegur yfir þessu vélbúnaðarkapphlaupi eingöngu vegna þess að 8800 GTX kortið er svo svívirðilega öflugt og ég held að það sé ekkert hlaupið í næstu framleiðslu með mikið öflugri kort, bara stærðin á kortinu og kælingin segir manni að nú sé kannski að koma smá stopp........
Hraðinn og krafturinn er orðinn svo mikill á þessum highend hlutum eins og Core 2 Duo (kraftur dauðans), og svo 8800 línan....
AMD/ATi geta örugglega hent út korti með svipað performance og 8800GTX en almúginn vill meira, meiri kraft.... Er það ekki það sem er að klikka? Er bara ekki hægt að fara lengra?
Er nokkuð hlaupið af því að toppa þetta eins og staðan er í dag?
Eingöngu mín skoðun, en maður hlítur að spyrja sig, afhverju öll þessi seinkun hjá ATi, Er ekki Xbox360 kortið ATI DX10?
Sent: Þri 01. Maí 2007 00:47
af ManiO
kristjan, þú gerir þér grein fyrir að flestir þeir sem eru að bíða eftir high end kortinu frá Ati (lesist HD2900XTX) eru sennilega með X1900XTX kort (kannski X1950XTX) annars er HD2900XT að standa sig þokkalega og ættu þeir sem hafa beðið eftir því að vera mjög sáttir.
Sent: Þri 01. Maí 2007 00:47
af gnarr
það er meira DX9.5 eða 9.9.. semsagt ekki með öll DX10 features, skilst mér.
Sent: Þri 01. Maí 2007 00:51
af ICM
Þessar prófanir eru gjörsamlega gagnslausar ef það á að bera saman kort sem þessi verður að nota HDR+FSAA, þar hefur ATi yfirhöndina. Bara þreyttur á sona BS prófunum. ATi gera kortið sitt algjörlega eftir fyrirmælum Microsoft um DirectX 10 meðan nVIDIA neitar að fara alla leið, ég þykist fullviss að þegar alvöru DirectX 10 leikir koma með unified shaders þá mun R600 rústa nVIDIA.
Sent: Þri 01. Maí 2007 01:58
af Yank
ICM skrifaði:Þessar prófanir eru gjörsamlega gagnslausar ef það á að bera saman kort sem þessi verður að nota HDR+FSAA, þar hefur ATi yfirhöndina. Bara þreyttur á sona BS prófunum. ATi gera kortið sitt algjörlega eftir fyrirmælum Microsoft um DirectX 10 meðan nVIDIA neitar að fara alla leið, ég þykist fullviss að þegar alvöru DirectX 10 leikir koma með unified shaders þá mun R600 rústa nVIDIA.
Þetta er mjög góður punktur. Það veit enginn hvernig þessi kort 2900 eða 8800 koma til með að virka í DX10. En á móti má segja. Þegar DX10 verður loks komið almennilega í gagnið verður mögulega önnur kynslóð DX10 korta komin eða mjög stutt í hana.
Sent: Þri 01. Maí 2007 13:24
af kristjanm
4x0n skrifaði:kristjan, þú gerir þér grein fyrir að flestir þeir sem eru að bíða eftir high end kortinu frá Ati (lesist HD2900XTX) eru sennilega með X1900XTX kort (kannski X1950XTX) annars er HD2900XT að standa sig þokkalega og ættu þeir sem hafa beðið eftir því að vera mjög sáttir.
Heldurðu að allir sem uppfæri í nýjasta öflugasta kortið hafi átt nýjasta öflugasta kort seinustu kynslóðar? Efa að það séu margir sem tíma að eyða 50þús kalli í skjákort á rúmlega árs fresti.
Edit: og ég veit að það er ekki hlaupið að því að gera öflugra kort en 8800gtx, satt að segja er mér alveg sama hvort kortið er öflugra enda kaupi ég ekki svona kort. En AMD eru búnir að vera með alveg þvílíkar yfirlýsingar um kortið sem reynist svo vera hreinasta bull. Fólk er búið að vera að bíða lengi eftir þessu og er nú haft að fíflum.