Síða 1 af 1

Hjálp !! Tölvan að frjósa...

Sent: Fim 12. Apr 2007 06:29
af me_vip
Er í vandræðum með tölvuna mína, Medion borðtölva. Hún frýs alveg mjög oft, bara allt í einu og stundum alveg 10 sinnum á dag.
Er einhver sem hefur hugmynd um hvað þetta gæti verið :?:

Sent: Fim 12. Apr 2007 12:39
af Yank
Hita-,Rekla-, vélbúnaðarvandamál ?

Þarf meiri upplýsingar.

ah!

Sent: Lau 14. Apr 2007 17:47
af Hyper_Pinjata
þar er vandamálið,vandamálið er MEDiON



i rest my case
in case i'm wrong...

Sent: Lau 14. Apr 2007 19:58
af gumol
Já, ég er nokkuð vissum að vandamálið er:
Vírusar, spyware, gallaðir driverar, gölluð forrit, vitlausar stillingar, of mikill hiti í kassanum, bilaður vélbúnaður eða eitthvað vitlaust sett saman.

Re: ah!

Sent: Lau 14. Apr 2007 21:46
af Mazi!
Hyper_Pinjata skrifaði:þar er vandamálið,vandamálið er MEDiON



i rest my case
in case i'm wrong...


Þýska stálið! :lol:

hahaha

Sent: Lau 14. Apr 2007 21:59
af Hyper_Pinjata
þýska stálið
ekki eins gott og það á að vera ef eitthvað ætti að vera gott við það

haha þýska stálið mínar kúlur

Sent: Sun 15. Apr 2007 11:37
af Taxi
gumol skrifaði:Já, ég er nokkuð vissum að vandamálið er:
Vírusar, spyware, gallaðir driverar, gölluð forrit, vitlausar stillingar, of mikill hiti í kassanum, bilaður vélbúnaður eða eitthvað vitlaust sett saman.


Haha. þetta er sko bilanagreining sem hæfir bilanalýsingunni. :lol:

Sent: Þri 15. Maí 2007 19:45
af Harvest
Þetta er þýska stálið... sem er í raun og veru bara kínverskt harðplast flutt til þýskalands með A-pósti.

En ég mæli með að þú kíkir á hitann....

Sent: Þri 15. Maí 2007 20:09
af urban
alveg merkilegt hvað allir eru á móti medion tölvum...

þetta eru msi móðurborð með itel eða amd örgjörvum

yfirleitt msi skjákort og corshair minni

semsagt, sami vélbúnaður og margir eiga

Sent: Þri 15. Maí 2007 20:11
af Harvest
urban- skrifaði:alveg merkilegt hvað allir eru á móti medion tölvum...

þetta eru msi móðurborð með itel eða amd örgjörvum

yfirleitt msi skjákort og corshair minni

semsagt, sami vélbúnaður og margir eiga


Já.. það er bara eins og vélarnar séu cursed eða eitthvað...

Sent: Þri 15. Maí 2007 20:18
af Pandemic
urban- skrifaði:alveg merkilegt hvað allir eru á móti medion tölvum...

þetta eru msi móðurborð með itel eða amd örgjörvum

yfirleitt msi skjákort og corshair minni

semsagt, sami vélbúnaður og margir eiga


Hvað er itel örgjörvum og corshair minni?


hef nú ekki beint tekið eftir því að það séu corsair minni í þessu bara standard samsung kubbar ef marka má mína reynslu af þónokkrum.

Sent: Mið 16. Maí 2007 00:02
af ICM
Ef þú ert með Windows Vista þá eiga nVIDIA reklar til að verða einhvernvegin "corrupt", þá dugar ekkert annað en að henda þeim út í safe mode og setja þá upp á ný.