Síða 1 af 1
Skrifarar
Sent: Fös 29. Ágú 2003 20:35
af END
Ég er að velta fyrir mér hvernig skrifara ég á að fá mér, hef alltaf heyrt að plextor séu góðir og er að hugsa um að fá mér þennan:
hérna. Hann er á 10.000 kr og vil ég helst ekki eyða meiri pening.
Tölvulistinn selur svo Plextor Premium á 15.000 kr og þá er spurning hvort það sé þess virði að eyða 5.000 kr meira í hann.
En endilega látiði mig vita af einhverjum öðrum góðum skrifurum og hverjum þið mælið með.
Sent: Fös 29. Ágú 2003 20:41
af BoZo
EKKI kaupa af Bt!!
Sent: Fös 29. Ágú 2003 20:59
af GuðjónR
Ég myndi fá mér
þetta frekar.
Meiri hraði og DVD drif í leiðinni fyrir sama pening, ekki spurning.
Sent: Fös 29. Ágú 2003 22:05
af Xts
PLEXTOR
ALWAYS!
Sent: Fös 29. Ágú 2003 22:13
af Voffinn
Plextor stendur fyrir sínu, einnig TEAC.
Annars ætti þetta sem GuðjónR er að tala um, alveg að gera sig
Sent: Lau 30. Ágú 2003 18:33
af Hlynzi
Ekki Versla við BT, taktu bara þennan Samsung sem einhvern bennti á.
Re: Skrifarar
Sent: Sun 31. Ágú 2003 12:35
af axyne
END skrifaði:Ég er að velta fyrir mér hvernig skrifara ég á að fá mér, hef alltaf heyrt að plextor séu góðir.
mér finnst að plextor séu ofmetnir í dag. þeir hafa ef til vill verið betri í gamla daga en aðrir skrifarar.
ef þú vild best of the best og ert tilbúinn að borga fyrir það þá er plextor eða Teac málið. En ef þú ert fátækur skólastrákur eins og við hinir þá ætti þessi
samsung DVD drif + skrifari að vera flottur fyrir þig.
ég á 48x samsung skrifara sem ég keypi í Febrúar á þessu ári. nota hann svakalega mikið bæði sem skrifara og venjulegt drif.
hef
aldrei lent í vandræðum með hann, ekki einu sinni þegar Diablo II play disk SPRAKK inní því. eina sem ég þurfti að gera var að skrúfa það í sundur og hreynsa brotin úr og ryksuga duftið. það gerðist í Apríl.
Sent: Sun 31. Ágú 2003 12:39
af Castrate
Ég er sjálfur með svartan plextor 48x mjög ánægður með hann.
Sent: Sun 31. Ágú 2003 14:31
af END
Ég er með DVD drif, þannig að ég er ekki að spara neitt með því að kaupa þennan Samsung skrifara, og mér finnst það ekki nógu góð ástæða að kaupa annan skrifara en Plextor bara af því að hann er seldur í BT.
Er BT eini staðurinn sem selur þessa gerð Plextor skrifara?
Sent: Sun 31. Ágú 2003 14:58
af GuðjónR
Ef þú átt DVD drif þá myndi ég mæla með
þessum skrifara.
Sent: Sun 31. Ágú 2003 15:32
af axyne
END skrifaði:Er BT eini staðurinn sem selur þessa gerð Plextor skrifara?
computer.is er líka með plextor skrifara.
Hvítur 52x
svartur 52x
Sent: Sun 31. Ágú 2003 16:40
af OverClocker
Skrifari á 10þús í BT?? það er bara okur... BT eru orðnir lang dýrastir í tölvuvörum.. og verstir í þjónustu.. ekki furða að þeir eru að fara á hausinn..
DVD-comboið ofar er flott vara en ef þú átt DVD, keyptu frekar
http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=187
þetta er Samsung skrifari á 5490 retail útgáfa..
Annars mæli ég bara með Tölvuvirkni.net og Start.is (reyndar aldrei prófað Task.is)
Sent: Sun 31. Ágú 2003 16:46
af GuðjónR
Sami skrifari 115.-kr dýrari í computer.is
Ekki gleyma að ef þú kaupir hjá start.is þá þarftu að borga sendingarkostnað.
Hvað gerist svo ef hann er gallaður? þarftu þá að borga sendigarkostnaði til baka og í þriðja sinn fyrir þann sem þú færð í staðin?
Mér finnst ákveðið öryggi í því að geta farið á staðin og rætt við menn af eitthvað er ekki eins og það á að vera.
Sent: Mán 01. Sep 2003 17:27
af END
Mér sýnist að flestir hérna mæli með
Samsung frekar en
Plextor, en ég er samt alveg tilbúinn í að borga rúmum 4.000 kr meira fyrir betri skrifara og taka áhættuna á að kaupa í BT.
Þannig að í hreinskilni sagt, hvor er betri:
Samsung eða
Plextor
Sent: Mán 01. Sep 2003 17:44
af GuðjónR
Ég hef keypt Philips, Plextor og Samsung brennara, ef mitt væri valið þá myndi ég ekki hika við að tala Samsung jafnvel þótt hann væri dýrari en Plextor.
Sent: Mán 06. Okt 2003 17:25
af arnarj
PLEXTOR !
PLEXTOR !
PLEXTOR !
Sent: Þri 07. Okt 2003 10:08
af prozac
Ég á 3 plexitor skrifara og þeir eru frábærir en Sony skrifarinn sem ég keipti um daginn er ekki lakari
http://www.computer.is/vorur/2904