Síða 1 af 1

Mús <-> tölva ca. 8 metrar

Sent: Fös 22. Ágú 2003 15:35
af Gothiatek
Öhm, ég er með tölvuna tengda við sjónvarpið með 12 m löngum kapli. Eins og þið getið rétt ímyndað ykkur er frekar pirrandi að standa upp, labba yfir í annað herbergi til að setja á pásu eða eitthvað annað álíka.

Mér skilst að þráðlausar mýs drífi aðeins 3-4 metra, sem er alltof stutt í mínu tilfelli. Ég myndi giska á að það væru svona 8 m frá tölvunni og að sófaborðinu og mig langar til að koma músinni á sófaborðið.

Einhverjar hugmyndir, er kannski hægt að kaupa framlengingu á músinni og vera með kapalinn á milli :?

Sent: Fös 22. Ágú 2003 15:45
af kemiztry
bluetooth mýs.. bluetooth á að duga í einhverja 10-15metra?

Sent: Fös 22. Ágú 2003 17:14
af Xts
Tölvuvirkni er víst með einhverja mús/fjarstýringu sem virkar í gegnum sonna auga (sensor).
Kostar 2500.
Kannski að það hjálpi þér...

Sent: Fös 22. Ágú 2003 18:06
af gumol
það er hægt að fá USB framlengingarkapal en best væri nátturlega að fá Bluetooth mús og lyklaborð, t.d. þetta

h

Sent: Fös 22. Ágú 2003 18:26
af ICM
Mæli með þessu hérna og framlengingar snúru.
http://spjall.vaktin.is/files/strategic_commander.jpg