Síða 1 af 1
Vantar skjákort - Hverju mælið þið með?
Sent: Sun 04. Feb 2007 18:56
af Ási
Sælir vaktmenn.
Nú ætla ég að bæta skjákorti í tölvuna mína. Ég er með þetta hérna móðurborð
http://computer.is/vorur/5929
(sem er reyndar með skjástýringu á en mér finnst það ekki koma að neinu gagni - allt kornótt og ómögulegt). Er ég að klikka á stillingum kannski?
En mig langar að bæta skjákorti í tölvuna og hverju mælið þið með fyrir 5-7 þúsund. (ég veit að það er léglegt á margra mælikvarða en ég spila enga leiki og er ekki með grafíkvinnslu).
Kær kveðja, Ási.
Sent: Þri 06. Feb 2007 14:02
af Ási
Sælir aftur.
Ég hef ekki fengið skjástýringuna til að virka á móðurborðinu.
Eftir að hafa sett upp WinXP virkar allt rétt nema að skjámyndin er öll kornótt og myndir verða eins og í örlítilli móðu (rétt eins og vanti liti og skerpu). Þetta gerist þrátt fyrir að ég hafi update-að driverana fyrir móðurborðið og installerað því og ekkert batnaði þótt ég hafi keypt mér pcie skjákort. Ekkert að virka. Veit einhver hvað getur verið að? Þekkir einhver vandann?
Öll hjálp vel þegin.
Kveðja, Ási.
ES: Já ég mundi að færa snúruna í nýja skjákortið.
Sent: Þri 06. Feb 2007 14:59
af ÓmarSmith
Fáðu þér notað 7600 eða 6600 kort frá Nvidia.
eða ef þú getur fundið X800 notað kannski á 7 kall. Who knows.
Sent: Þri 06. Feb 2007 15:06
af Voffinn
ÓmarSmith skrifaði:Fáðu þér notað 7600 eða 6600 kort frá Nvidia.
eða ef þú getur fundið X800 notað kannski á 7 kall. Who knows.
Hvað á það að gagnast honum? Hann er búinn að prófa að kaupa nýtt skjákort.
Ási: Hvernig skjá ertu með?
Sent: Þri 06. Feb 2007 15:29
af Ási
Ég er með 17" Xerox LCD skjá (Með glerhlíf en það er ekki móða á hlífinni
) Hefði verið góð lausn að þurrka af ... en það dugir víst ekki.
Sent: Þri 06. Feb 2007 17:15
af Voffinn
Hvaða upplausn ertu að keyra skjáinn á og hvaða refresh rate?
Sent: Þri 06. Feb 2007 19:46
af Ási
1280x1024 og 60Hz
Sent: Mið 07. Feb 2007 12:05
af ManiO
Ertu búinn að disablea skjástýringunni í BIOSnum?
Sent: Mið 07. Feb 2007 23:53
af Ási
Það hjálpar ekki - þ.e.a.s. ef ég er að gera þetta rétt.
Fer maður ekki Advanced og stillir First á PEG og Onboard á Enable if no PEG card?
Annars er ég í vandræðum enn með´þetta. DJÖ...
Getur þetta verið Windows mál?
Kveðja og þakkir til ykkar allra sem nenna að senda inn línur.[/b]