Síða 1 af 1
Tölva startar ekki...
Sent: Lau 03. Feb 2007 16:20
af Arkidas
Ok, ég var að fá nýja örgjörvaviftu og er að yfirklukka rólega hérna. Örgjörvinn hélst alveg kaldur meðan ég var að gera þetta en svo prófaði ég að breyta "Performance Settings" úr Normal í Fast og þá stoppaði tölvan eftir memory test og ég get ekki farið í bios setup. Ég ákvað að próf að hreinsa cmod með því að færa pinnann en núna þegar ég reyni að starta tölvunni kviknar bara á henni í 0.1 sec og slokknar aftur. Allt power virðist vera í sambandi.
Sent: Lau 03. Feb 2007 16:36
af Mazi!
Gæti hafa farið Þéttir í móðurborðinu eða aflgjafanum.
Sent: Lau 03. Feb 2007 17:16
af Arkidas
Þetta er komiðí lag núna. Er núna búinn að yfirklukka 3.0ghz p4 í 3.3ghz og hiti mest 65 gráður. 41 í idle.
Sent: Lau 03. Feb 2007 17:49
af Mazi!
Arkidas skrifaði:Þetta er komiðí lag núna. Er núna búinn að yfirklukka 3.0ghz p4 í 3.3ghz og hiti mest 65 gráður. 41 í idle.
Og hvað gerðiru til að laga þetta?
Sent: Lau 03. Feb 2007 18:29
af Arkidas
Ég hef líklega bara látið Bat-1 hettuna eitthvað vitlasut á fyrst.
Sent: Sun 04. Feb 2007 22:50
af Frimann91
Ég er með stock viftu á P4 hyperthreading 3,0 Ghz og ég er með hann í 3,5 Ghz. Idle er hann 36°C en á fullu fer hann upp í 54°C.