Síða 1 af 1
vantar álit á samsung 941Bw lcd
Sent: Sun 28. Jan 2007 22:51
af bhbh22
sælir hafið þið prófað svona skjá? Verður ekki alt ólesanlegt (pínulítið) í native upplausn.
http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=26&products_id=523
Sent: Mán 29. Jan 2007 09:40
af ÓmarSmith
Þetta er mjög skemmtilegur skjár og nei það er alls ekkert pínulítið í native upplausn.
Soldið spes upplausn samt. Ég mæli með 19" venjulegum frekar eða taka 20" Widescreen.
AMK Fáir leikir sem styðja 1440 x upplausn.
Sent: Mán 29. Jan 2007 10:40
af gnarr
jafn margir sem styðja 1440*900 og 1280*800 eða 1680*1050. Maður er að græða talsvert marga punkta í 19" wide á móti venjulegum 19".
Sent: Mán 29. Jan 2007 12:11
af Voffinn
ÓmarSmith skrifaði:Soldið spes upplausn samt. Ég mæli með 19" venjulegum frekar eða taka 20" Widescreen.
What? Af hverju í ósköpunum ertu að ráðleggja mönnum að fara frekar í 4:3 skjá heldur en widescreen?
Sent: Mán 29. Jan 2007 12:54
af ÓmarSmith
Því það er mitt persónulegt mat, ég var t.d með Acer Gamers Ed 19" 1280 x 1024 og hann var gargandi snilld í alla staði.
Bróðir kærustunnar minnar er með 1440 x skjá og það eru sárafáir leikir sem styðja þá upplausn native þannig að afhverju ekki taka venjulegan 19" skjá.
Það er ekki eins og það sé slæmt í neinn stað.
Ef menn ætla í WS á annaðborð þá er skynsamlegra að taka 20" 1680 x 1050 þar sem að það er að verða nokkurskonar standard í dag .
Sent: Mán 29. Jan 2007 13:15
af bhbh22
þetta er samt ekki 16:9 heldur 8:5 (16:10). Þanig að widescren myndir fylla ekki út í skjáinn?
En ég hef einig verið að skoða 931BW, hef samt ekki fundið hann á Íslandi.
http://samsung.com/Products/Monitor/LCD_Digital/LS19MEWSFXAA.asp?page=Specifications
Sent: Mán 29. Jan 2007 13:47
af ÓmarSmith
Spurning 1:
Hvað ertu tilbúinn að eyða Hámark í Skjá ?
Það er hægt að vinna sig út frá því.
Sent: Mán 29. Jan 2007 17:21
af bhbh22
um 50þ maður fer þá kanski bara að skoða 22" Samsung SyncMaster 225BW
Eða Samsung SyncMaster 215TW
Sent: Mán 29. Jan 2007 18:37
af Vilezhout
Nánast allir nýjir leikir bjóða uppá scaleable upplausn og það væri kannski örlítið meira vesen að bæta t.d. skipun í stillingarskrár sem að gengur frá því þannig að hægt sé að keyra leikina í native upplausn.
Bara til að nefna nokkra sem að detecta þetta sjálfir og bjóða uppá að þá dettur mér í hug Oblivion, allir leikir sem að keyra á Source Gold, COH o.s.f. enn t.d. eldri leikir einsog t.d. bf1942 að þá þarf að færa inn skipun í config sem að segja til um hvaða upplausn þú villt og rið.
Menn eiga bara að velja þann skjá sem að þeim líkar vel þ.e. varðandi myndgæði,verð,útlit,framleiðenda og endurseljanda miklu frekar enn að hlusta á svona FUD sem að er ekki byggt á haldbærum rökum.
Sent: Mán 29. Jan 2007 20:34
af prg_
Þessi skjár lítur massavel út, hef að vísu bara notað 19" í 1600x1200 og það er alls ekki of lítið í honum... en auðvitað situr maður ekki neinni fjarlægð frá svona glæsilegum gripum, maður vill vera nálægt þessu og klappa af og til
Sent: Þri 30. Jan 2007 02:42
af Demon
Þónokkrir leikir hafa widescreen möguleika.
En gamlir leikir hafa það ekki.
Warcraft 3, Starcraft, Baldurs Gate1-2,Diablo 1-2, Max Payne 1, system shock 1-2 bara svona svo ég taki dæmi.
Ef þér er sama að spila þessa leiki stretched eða með black bars (aðeins hægt með sumum skjáum eða nvida skjákortum), þá bara go ahead og fáðu þér widescreen.
Ég allavega hefði viljað kaupa 4:3 skjá frekar en widescreen.
Sent: Þri 30. Jan 2007 07:13
af ManiO
Demon skrifaði: Baldurs Gate1-2,
Ekkert mál að spila þá í windowed mode
Sent: Þri 30. Jan 2007 09:25
af ÓmarSmith
Fyrst þú ert tilbúinn að eyða 50.000 í skjá þá færðu þér auðvitað 22" Widescreen skjá
Sá nokkuð magnaða 22" Widescreen Acer skjái á Ground Zero um daginn og það var alveg meira en frábært að spila á þeim.
Kíktu á þá í Tölvulistanum eða niður á Ground Zero og gerðu svo upp hug þinn.
P.S Þeir skjáir kosta um 44.000
Sent: Þri 30. Jan 2007 09:34
af Demon
4x0n skrifaði:Demon skrifaði: Baldurs Gate1-2,
Ekkert mál að spila þá í windowed mode
Well hefurðu gert mikið af því?
Hundleiðinlegt ef músin fer útaf window t.d. þegar maður er að nota hana til að skrolla mappið...líkt og maður gerði ef hann væri fullscreen.
Sent: Þri 30. Jan 2007 13:19
af bhbh22
en eru 22" ekki bygðir á tn panel sem er að detta út?
Sent: Þri 30. Jan 2007 13:28
af Taxi
ÓmarSmith skrifaði:Fyrst þú ert tilbúinn að eyða 50.000 í skjá þá færðu þér auðvitað 22" Widescreen skjá
Sá nokkuð magnaða 22" Widescreen Acer skjái á Ground Zero um daginn og það var alveg meira en frábært að spila á þeim.
Kíktu á þá í Tölvulistanum eða niður á Ground Zero og gerðu svo upp hug þinn.
P.S Þeir skjáir kosta um 44.000
Færð betri díl í Kísildal
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=398
1000:1 contrast og 5ms response á 43.000.kr