Síða 1 af 2

BT með 19" Medion á 19.900 kr

Sent: Fös 15. Ágú 2003 14:39
af °°gummi°°
ég sá þessa 19" Medion skjái til sölu í BT í gær á tæp 20þús, á einhver hérna svona skjá, er þetta eitthvað junk eða er hægt að nota þetta??
Ég hringdi til að fá frekari uppl um þetta en eina sem þeir gátu sagt mér um skjáinn var að hann væri kallaður silver :?
Svo er Task með einhverja Samtron á tæp 22 þús, veit einhver hvernig þeir eru?

Sent: Fös 15. Ágú 2003 17:36
af Jakob
Ég hef nú ekki mikið fyglst með verðþróunninni á skjám, en ég þetta er í ódýrari kantinum.

Pérsónulega þá myndi ég ekki kaupa svona skjá, uppá endinguna (óþolandi ef skjárinn bilar!) og svo er þetta öruglega ekki eins gott fyrir augun!

En ef hann styður ágæta upplausn í 75-85hz (ég er með HP 19" sem meikar 1600x1200 í 75hz fínt, en það er Diamontron (Mitshubishi)) þá dugar hann kannski alveg. Checkaðu á því!

Sent: Mið 20. Ágú 2003 18:51
af Hlynzi
ég treysti ekki svona ódýrum merkjum. Eða BT.

CTX skjáir eru mun betri en þessi, sérstaklega proffessional línan. ER búinn að vera með pr705f frá CTX núna í 2 ár, og hann meikar margt, og er rosalega skýr, að vísu hefur snúran legið svo illa hjá mér (90° beygja á einum stað) að ég er búinn að eyðileggja hana á því og ef ég snerti hana verður allt fjólublátt.

CTX er líka góður fyrir ketti, var með einn í pössun um daginn og hann var voða hrifinn af því að liggja ofan á skjánum.

Sent: Mið 20. Ágú 2003 19:22
af halanegri
Hlynzi skrifaði:CTX er líka góður fyrir ketti, var með einn í pössun um daginn og hann var voða hrifinn af því að liggja ofan á skjánum.


já, hehe, minn köttur er líka alltaf að reyna að góma músina þegar ég hreyfi hana um desktopið :)

Sent: Mið 20. Ágú 2003 20:58
af OverClocker
Maður bara verslar ekki við BT !!

Sent: Mið 20. Ágú 2003 21:06
af gumol
Ég keipti MX500 músina mína hjá BT, er eitthvað að því?

Sent: Mið 20. Ágú 2003 21:09
af Voffinn
Léleg þjónustu og svo selja þeir aðallega drasl, nema svona hluti sem koma í lokuðum umbúðum... er kannski allt í lagi að kaupa.

Sent: Lau 23. Ágú 2003 10:07
af Hlynzi
halanegri skrifaði:
Hlynzi skrifaði:CTX er líka góður fyrir ketti, var með einn í pössun um daginn og hann var voða hrifinn af því að liggja ofan á skjánum.


já, hehe, minn köttur er líka alltaf að reyna að góma músina þegar ég hreyfi hana um desktopið :)


hehe, þessi lá ofan á og reyndi það sama líka.

Re: BT með 19" Medion á 19.900 kr

Sent: Þri 21. Okt 2003 01:58
af Fox
°°gummi°° skrifaði:ég sá þessa 19" Medion skjái til sölu í BT í gær á tæp 20þús, á einhver hérna svona skjá, er þetta eitthvað junk eða er hægt að nota þetta??
Ég hringdi til að fá frekari uppl um þetta en eina sem þeir gátu sagt mér um skjáinn var að hann væri kallaður silver :?
Svo er Task með einhverja Samtron á tæp 22 þús, veit einhver hvernig þeir eru?


Mér hefur aldrei litist neitt á Medion, hvað þá einhvað frá BT.

Sent: Þri 21. Okt 2003 11:25
af Haffi
Ég get ekki farið undir 100hz :( þá verður mér illt í augunum.

Ég er alltaf í 1600x1200 og 100hz

Sent: Þri 21. Okt 2003 12:35
af Xnotandi
Haffi skrifaði:Ég get ekki farið undir 100hz :( þá verður mér illt í augunum.

Ég er alltaf í 1600x1200 og 100hz

Hvaða Megaskjá ertu með sem ræður við þessar stillingar eiginlega?

Sent: Þri 21. Okt 2003 13:51
af Fletch
ég keyri minn alltaf í 1600x1200 100hz einnig..

iiyama Vision Master Pro 510 heitir sá gripur...

Fletch

Sent: Þri 21. Okt 2003 14:56
af Pandemic
Held að minn 14 tommu Trust skjár fari bara í 50hz eða eithvað :S

Sent: Þri 21. Okt 2003 15:57
af Fox
Haffi skrifaði:Ég get ekki farið undir 100hz :( þá verður mér illt í augunum.

Ég er alltaf í 1600x1200 og 100hz


Furðulegt.
Ég hef verið í tölvum í rúm 10 ár, og alltaf hef ég notað 60hz.
Ef ég fer upp í hærra, þá verð ég dizzy og finnst óþægilegt að lesa af skjánum.

Sent: Þri 21. Okt 2003 16:01
af ICM
Strákar þið ættuð fræðilega séð að verða "dizzy" ef þið eruð með lága hz tölu. Auk þess ef þið eruð að nota svona lágt hz þá hafið þið ekkert að gera með marga FPS eins og sumir eru að halda fram að skipti öllu máli ( CS menn ) því skjárinn ykkar er ekki fær um að sýna rosalega marga ramma.

Sent: Þri 21. Okt 2003 16:48
af Daz
Ef ég man þetta rétt (sem ég geri örugglega ekki) þá geturðu aldrei farið yfir refresh Hz í fps. Því það sem refresh Hz standa fyrir er í rauninni bara hversu oft skjárinn er teiknaður á sekúndu ( hz = s^-1 ) og en ef FPSið fer hærra þá gefur það auga leið að það mun lítið bæta það sem sést á skjánum.
Fox: (án þess að vilja á nokkurn hátt gera grín að þér :shock: ) þá kemur mér það ekki á óvart að þú viljir helst nota 60hz.

Engu að síður, því hærra refresh rate, því skarpari mynd og betur farið með augun. En til að fara vel með augun fá menn sér augljóslega LCD skjái.

Sent: Þri 21. Okt 2003 16:52
af ICM
Daz skrifaði:til að fara vel með augun fá menn sér augljóslega LCD skjái.

Til að fara vel með veskið og skemmtunina eru CRT skjáir málið

Sent: Þri 21. Okt 2003 17:03
af Daz
IceCaveman skrifaði:Til að fara vel með veskið og skemmtunina eru CRT skjáir málið

Jamms, cant have your cake and eat it.

Sent: Þri 21. Okt 2003 22:31
af Buddy
Sumir eru bara svona viðkvæmir fyrir tiftíðni. Ég tek ekkert eftir því hvort skjárinn er í 60 eða 100Hz. Aðrir fá hausverk um leið og tiftíðnin fer niðurfyrir 100.

Annars er það misjafnt með þessa ódýru skjái. Sumir eru með aðstöðu þar sem ekki er mikil hætta á glampa og þá koma þeir vel til greina. Annars er ég hrifnastur af Diamondtron Túpu skjám en mér sýnist þeir ekki fara niður fyrir 40k.

Sent: Þri 21. Okt 2003 22:57
af Fox
IceCaveman skrifaði:Strákar þið ættuð fræðilega séð að verða "dizzy" ef þið eruð með lága hz tölu. Auk þess ef þið eruð að nota svona lágt hz þá hafið þið ekkert að gera með marga FPS eins og sumir eru að halda fram að skipti öllu máli ( CS menn ) því skjárinn ykkar er ekki fær um að sýna rosalega marga ramma.


Ég var áður fyrr mjög mikið í þrívíddarforritun, og reglan þar var sú að FPS var sama og Hz á skjánum.
Það var hægt að vinna sig frammhjá þessu og auka fps í forritunum sínum, en það tók extra cpu power, og ég sá ekki tilgang með því.

Sent: Þri 21. Okt 2003 22:58
af RadoN
já, og talað um fps, þá er augað ekki fært um að greyna nema um 60-70 fps :wink: sá ég einhverstaðar, svo eru bíómyndir oftast í ca 24 fps..

Sent: Þri 21. Okt 2003 23:28
af gumol
Sjónvarpið mitt er 100 Hz, þannig það er eingin ástæða að hafa það meira en 24 Hz ?

Sent: Þri 21. Okt 2003 23:41
af Haffi
Fox skrifaði:
Haffi skrifaði:Ég get ekki farið undir 100hz :( þá verður mér illt í augunum.

Ég er alltaf í 1600x1200 og 100hz


Furðulegt.
Ég hef verið í tölvum í rúm 10 ár, og alltaf hef ég notað 60hz.
Ef ég fer upp í hærra, þá verð ég dizzy og finnst óþægilegt að lesa af skjánum.



Úff ;) ef ég er með 60hz þá verður mér bara virkilega illt í augunum
Ég er t.d. með alla leiki í 100-120hz og maxfps cappaði í 125.

Sent: Þri 21. Okt 2003 23:47
af Arnar
Hvaða skjá mæliði með ?
Á verðbilinu kannski 70-100þús

Sent: Mið 22. Okt 2003 01:45
af gnarr
NTSC er 29.97 fps og PAL 25 fps. svo er film (einnig kallað NTSC film) 23.97 fps. jú það er betra að hafa sjónvarpið í 100hz, því annars deyrðu í augunum.