Síða 1 af 1
Fyrsta (alvöru) uppfærslan!
Sent: Þri 12. Ágú 2003 02:34
af halanegri
Ég er að fara uppfæra bráðlega(í þessari viku væntanlega) og ætla að skipta út örgjörvanum, skjákortinu og vinnsluminninu. Síðan ætla ég að kaupa mér nýjan (lítinn)harðan disk undir stýrikerfið. Ég hafði ákveðið að taka Intel örgjörva, en skipti um skoðun.
AMD Athlon XP 2800+
ASUS A7N8X Deluxe
2x 512MB DDR 333MHz (ég græði hvort sem er lítið á 400mhz því að örrinn er á 333mhz, er það ekki?)
ASUS V9900 (GeForce FX5800)
Western Digital Raptor 10k RPM 8mb Buffer 36.7gb HD
Er eitthvað athugavert við þetta?
Sent: Þri 12. Ágú 2003 03:24
af gumol
Þessi WD diskur lítur út fyrir að vera noisy, afhverju 10.000 rpm?
Sent: Þri 12. Ágú 2003 07:20
af Gothiatek
Ég myndi fá mér 400Mhz minni, móbóið styður það...líka uppá framtíðina að gera!!
Sent: Þri 12. Ágú 2003 15:48
af doofyjones
Ég er með 333MHz minni en þrátt fyrir það er ég alltaf með það á 266Mhz... Ástæðan er sú að ef ég keyri minnið á 333 þá frýs tölvan og rebootar við minnsta álag... ég get kannski rétt browsað á netinu á 333 en þegar ég fer í einhverja leiki þá byrjar þetta að klikka.
Er reyndar með drasl minni (Spectek)... En ég hef sett viftu sem blæs ofan á minnið og ætla mér einnig að setja hitahlífar á það... sem sagt núna er ég að eyða 6000 kalli í kælingu á minnið sem ég er ekki einu sinni viss um að virki...
Það sem ég er að reyna að segja er að ég hefði alveg eins getað eytt þessum 6000 kalli í 400Mhz minni og sleppt öllu þessu veseni... Þannig að mér finnst að þú ætti að endurskoða möguleikann á að kaupa 400Mhz minni (eða kaupa þá eitthvað gott 333Mhz minni)
Sent: Þri 12. Ágú 2003 17:30
af MezzUp
átt náttla að hafa samband við gaurinn sem að seldi þér schittið og láta hann fixa þessu. Ég lenti í því svipuðu veseni þegar ég keypti Shuttle AK37 móðurborð og 512Kingston kubb hjá Tölvuvirkni. Tölvan var alltaf að hrynja svo að ég runnaði MemTest og MemTest fann helling af villum. Ég hélt fyrst að eitthvað væri að minninu en þegar ég fór með tölvuna til Björgvins þá hafði hann komist að því að það þyrfti að lækka Voltin í skjákortið og RAM'ið. Þá lækkuðu villurnar til muna, síðan losnaði ég við þær allar þegar hann skipti út einum 512 kubb fyirr tvö 256
Sent: Þri 12. Ágú 2003 19:04
af Voffinn
flottur pakki segi ég bara
ég myndi líka fá mér AMD, held ég...
Sent: Þri 12. Ágú 2003 22:52
af doofyjones
Thanx MezzUp!
Virkar fínt núna
Sent: Mið 13. Ágú 2003 12:50
af odinnn
ég segi eins og alltaf, 2500 Barton í staðinn fyrir 2800 örran og oc hann.
Sent: Mið 13. Ágú 2003 18:10
af halanegri
Já, ég ætla sko að kaupa 2600+ frekar, hann er á ágætis verði á task.is, síðan ætla ég að kaupa mér
þetta stykki til að kæla, það hlítur að vera hægt að yfirklukka eitthvað með því.
Sent: Mið 20. Ágú 2003 00:06
af aRnor`
þetta er cúl