Síða 1 af 1

Hyundai ImageQuest L90D+

Sent: Mán 27. Nóv 2006 02:42
af gobble
Er einhver sem hefur reynslu á þessum skjá eða veit hvort þetta séu gáfuleg kaup eða ekki ? http://www.computer.is/vorur/5225

Er allavegana að leita mér að 19" LCD skjá á þessu verði og hef nánast ekkert vit á þessu þannig að endilega link'ið á mig einhverjum öðrum skjám ef þessi er alveg no no.

Sent: Mán 27. Nóv 2006 09:52
af W.Dafoe
Heyrðu ég á svona skjá, hann er mjög góður að öllu leiti nema hvað það er einn dauður díll í honum.

try before you buy...

kv, arib

Sent: Mán 27. Nóv 2006 10:08
af gumol
Hámarksupplausn: - Analog: 1280 x 1024 @ 75Hz - Digital: 1280 x 1024 @ 60Hz

Er þetta nógu góð upplausn fyrir 19 tommu skjá?

Sent: Mán 27. Nóv 2006 11:18
af wICE_man
Þetta eru mjög fínir skjáir fyrir utan að ég hef heyrt um að mörg eintök á ákveðnu framleiðslu tímabili hafa galla sem kemur fram sem ofvirkar línur, annað hvort láréttar eða lóðréttar.

Sent: Mán 27. Nóv 2006 11:23
af ÓmarSmith
gumol skrifaði:Hámarksupplausn: - Analog: 1280 x 1024 @ 75Hz - Digital: 1280 x 1024 @ 60Hz

Er þetta nógu góð upplausn fyrir 19 tommu skjá?



Er þetta ekki nokkurn veginn standard á 17 - 19" LCD

Nema að þeir fara reyndar sumir í 85Hz.

Sent: Mán 27. Nóv 2006 14:12
af gumol
Ég er með 20,1 tommu skjá og 1600x1400, mjög fín upplausn. Þegar skjárinn er einni tommu minni fyndist mér frekar fúlt að hafa svona litla upplausn.

En svo er það nátturlega verðið sem skiptir máli líka.

Sent: Mán 27. Nóv 2006 16:17
af gnarr
8:7 hlutfall á skjánum þínum ? :shock:

Sent: Mán 27. Nóv 2006 18:49
af gobble
En á ekki að vera hægt að laga þessu dauðu pixel'a með einhverju forriti eða er ég bara að bulla ? :o

Sent: Mán 27. Nóv 2006 21:50
af Ic4ruz
Ég hef nú ekki mjög mikið vít á LCD skjáum, enn eg var samt að spá að kaupa þennan

http://www.kisildalur.is/?p=2&id=290
eða þessi sem mér list mjög vel á

http://www.kisildalur.is/?p=2&id=292

hvað segi þið hinir, mæliði með þeim?

Sent: Mán 27. Nóv 2006 23:32
af Pandemic
gobble skrifaði:En á ekki að vera hægt að laga þessu dauðu pixel'a með einhverju forriti eða er ég bara að bulla ? :o


Það er ekki beint hægt að laga dauða pixela en það er hægt að laga fasta pixela með því að nudda þá og nota sérstök forrit með.