Síða 1 af 1

P5W DH Deluxe IT'S A LIVE !!!!!

Sent: Mið 22. Nóv 2006 12:19
af GuðjónR
Jamm...titillinn segir það allt...ég drap nýja P5W DH Deluxe móbóið...
Þetta er eitthvað það lélegasta móðurborð (samt það dýrasta) sem ég hef átt á ferlinum.
Fyrst þurfti ég að updeita BIOS til að geta notað skjákortið, næst þurfti ég að updeita BIOS til að geta sett inn 64 bita kerfi.

Svo þurfti ég að updeita BIOS til að fá 4GB til að virka en ekki bara 2.
Þá upp úr þurru krössuðu báðir IDE diskarnir, en ég er með 2x IDE og 2x sata.
Mér tókst með GETDATABACK að bjarga 90% af öðrum en missti öll gögn af hinum. Báðir þurftu svo format í kjölfarið.
Í gær þurfti ég svo að restarta tölvunni af því að DVD drifið var "dottið út".

Svo kom nýr BIOS í gær sem átti að laga þetta HDD vesen, ég dl honum og ákvað að uppfæra eins og í hin 3 skiptin.
Nema hvað, í miðri uppfærslu fæ ég skilaboðin að BIOSINN sé corrupted. Restart og tölvan....dauð!
Það á að vera eitthvað crashfree dót á cd með...en bios er svo dauður að það skjárinn respondar ekki einu sinni hvað þá meira...
Jæja best að skokka út í búð og kaupa annað móbo...eitthvað annað en asus.

Sent: Mið 22. Nóv 2006 13:20
af wICE_man
Ja hérna ég hef bara ekki heyrt aðra eins sorgarsögu með þetta borð. Við höfum verið að selja þessi borð hérna í Kísildalnum og allir hafa hingað til verið mjög sáttir við þau.

Reyndar eru flest fyrstu Conroe borðin bug-ridden í tætlur, en þetta átti víst að vera með vandaðari borðunum. Svo bregðast krosstré sem önnur tré.

Sent: Mið 22. Nóv 2006 13:47
af Mazi!
Já Guðjón minn :( er hálf hræddur sjálfur að ég hafi kanski rústað nýja ASUS a8n-sli Premium móbóinu mínu í gær:S setti það í og það gaus upp brunafílan? hef ekki þorað að kveikja á tölvuni síðan :(

Sent: Mið 22. Nóv 2006 13:51
af Mikki
Borðið er líklega ekki ónýtt, eina sem þarf að gera er að "hotflash" BIOS kubbinn, ef þú keyptir það í "alvöru búð" geta þeir gert það.

Gætir gert það sjálfur ef þú ættir annað svona borð

http://www.onlamp.com/pub/a/onlamp/2004 ... flash.html
[/url]

Sent: Fös 24. Nóv 2006 17:30
af gnarr
Mazi! skrifaði:Já Guðjón minn :( er hálf hræddur sjálfur að ég hafi kanski rústað nýja ASUS a8n-sli Premium móðurborðinu mínu í gær:S setti það í og það gaus upp brunafílan? hef ekki þorað að kveikja á tölvuni síðan :(


usb snúran snýr að öllum líkindum vitlaust hjá þér á usb headernum á borðinu. brófaðu að taka hana úr sambandi og reyna aftur. það ætti að vera þéttir efst hægramegin á þessu borði sem sprakk við þetta. hann supplyar 5v spennu fyrir USB-ið, þannig að núna er þetta líklega ekki lengur aktívt port.

Annars er þetta bara ágiskun hjá mér, gæti verið ýmislegt annað, en mér þykir þetta líklegast.

GuðjónR: bara svo þú klikkir ekki á þessu í framtíðinni, það á aldrei að flasha bios af floppy disk. Gullfiskur í hveri á lengir líftíma en venjulegur floppy diskur. Ég mæli sterklega með því að flasha aldrei bios nema úr windows, þannig að það sé hægt að finna nýjann bios og reyna að flasha aftur ef eitthvað fer úrskeiðis.
Ef maður á annað borð neyðist til að flasha af floppy, þá á maður alltaf að byrja að að gera backup af "current" bios, svo að ef biosinn sem þú ert að reyna að setja inn klikkar, þá geturu flashað backupið aftur inn, án þess að þurfa að leita að honum á netinu í annarri tölvu eða að slökkva á þeirri sem er með corrupted bios.

Sent: Fös 24. Nóv 2006 20:33
af GuðjónR
gnarr...ég flassaði BIOS í windows....með þar til gerðu windows forriti...
Ég keypti mér MSI powerUP móbo í staðin.

Tók mig 2 daga að fá það til að virka með 7950 x2 kortinu....
Var farinn að halda að kortið væri gallað....fór og keypti annað pciX kort (ódýrt) til að koma windows upp...tók sénsins og flashaði BIOS úr v7.1 í v7.2 í windows líka...
Og wollah...þá virkaði skjákortið...

VESEN

Sent: Sun 03. Des 2006 21:51
af CendenZ
Mazi! skrifaði:Já Guðjón minn :( er hálf hræddur sjálfur að ég hafi kanski rústað nýja ASUS a8n-sli Premium móðurborðinu mínu í gær:S setti það í og það gaus upp brunafílan? hef ekki þorað að kveikja á tölvuni síðan :(


Gerðist fyrir mig, þó ekki USB-tengt líkt og Gnarr sagði.

tölvan var í gangi og plaff, -> IDEtengið fyrir Hd brann og sömuleiðis eyðilagðist HD-inn minn.

á HDinum voru 130 gb af tónlist, 100 gb af tónlistarvídjóum og fullt af dóti..


Ég mun_aldrei_kaupa Asus aftur, ekki einu sinni músarmottu.

Sent: Sun 03. Des 2006 23:20
af GuðjónR
hafa samband við ASUS support....og láta þá fixa...
er einhver með asus umboð á íslandi?

Sent: Mán 04. Des 2006 00:38
af goldfinger
Held að Boðeind sé með umboðið, samt ekkert 100% viss :roll:

Sent: Mán 04. Des 2006 00:39
af Voffinn
Ég veit nú ekki hvort að það sé umboðið en boðeind eru duglegir að selja asus.

Sent: Þri 05. Des 2006 12:04
af wICE_man
Held að Task séu komnir með umboðið.

Sent: Fös 02. Feb 2007 17:54
af GuðjónR
Bara snilld!
Tók BIOS kubbinn úr móbóinu, DL nýjasta BIOS frá ASUS.com fór með þetta niður í http://www.ihlutir.is þeir settu BIOS í "flash" tæki hreinsuðu út af honum og flössuðu upp á nýtt!. Kostaði 2k :)
Wollah!! móbóið betra en nýtt...

Bara einn galli...er löngu búinn að kaupa annað "MSI PowerUP Edition" móbo...

Spurning hvað ég á að gera við þetta... :roll:

Sent: Fös 02. Feb 2007 17:59
af SolidFeather
Gott að þú fékkst það til að virka. Er sjálfur búinn að vera keyra svona borð í nokkra mánuði án fails.

Sent: Fös 02. Feb 2007 21:14
af Taxi
GuðjónR skrifaði:Bara snilld!
Tók BIOS kubbinn úr móðurborðinu, DL nýjasta BIOS frá ASUS.com fór með þetta niður í http://www.ihlutir.is þeir settu BIOS í "flash" tæki hreinsuðu út af honum og flössuðu upp á nýtt!. Kostaði 2k :)
Wollah!! móðurborðið betra en nýtt...

Bara einn galli...er löngu búinn að kaupa annað "MSI PowerUP Edition" móbo...

Spurning hvað ég á að gera við þetta... :roll:

Þú selur það væntanlega,nema þú viljir keyra 2 vélar.

Þú getur líka sett quadcore örgjörva í þetta móðurborð ef þú vilt. :wink:

Sent: Fös 02. Feb 2007 21:54
af GuðjónR
Já eða tek MSI PowerUP úr kassanum og sel það og set þetta í staðin.
Nenni því samt varla....þetta er náttlega það besta, E6700 var að keyra 37-45c á þessu...hann er miklu heitari á MSI móbóinu.

Sent: Lau 03. Feb 2007 02:11
af Stebet
Abit móðurborð all the way. Hef aldrei lent í einum einustu vandræðum með þau. Er með MSI PowerUp núna en bara afþví Abit AW9D var ekki til. Galli við þetta MSI borð er að það supportar ekki USB lyklaborð í BIOS sem er frekar sökkí. Þurfti að fá drasl lyklaborð hjá bróður mínum meðan ég var að setja vélina upp, en annars hefur það virkað sæmilega fyrir mig. Vesen með að overclocka það en það sleppur með smá haxi.

Hins vegar hef ég átt tvö Abit móðurborð og ALDREI lent í veseni með þau. Hef þó lent í þónokkrum vandræðum með MSI og ASUS móðurborð gegnum tíðina.

Sent: Lau 03. Feb 2007 11:35
af GuðjónR
Stebet skrifaði:Galli við þetta MSI borð er að það supportar ekki USB lyklaborð í BIOS sem er frekar sökkí.

Það er bara ekki rétt...það supportar bæði USB lyklaborð og USB mús í BIOS.
Enda eitt nýjasta móbóið frá stærsta móbóframleiðanda í heimi...þeir hefðu aldrei klikkað á svona smáatriði.

Sent: Lau 03. Feb 2007 12:04
af Yank
GuðjónR skrifaði:Já eða tek MSI PowerUP úr kassanum og sel það og set þetta í staðin.
Nenni því samt varla....þetta er náttlega það besta, E6700 var að keyra 37-45c á þessu...hann er miklu heitari á MSI móðurborðinu.



LOL

Það er fyndið að þú kallir nú þetta ASUS borð það besta eftir allt þetta vesen. Ég myndi ekki taka það mjög trúanlegt að Conroe 6700 sé að keyra eitthvað kaldari á þessu móðurborði mv. MSI. Munurinn liggur held ég frekar í ónákvæmni hitanema á hvoru borði fyrir sig.

Sent: Lau 03. Feb 2007 12:24
af GuðjónR
Já vesen var það...ekki get ég neitað því, en það virðist vera tölvuerður munur varðandi hita, hvort það eru skynjarar að nema vitlaust eða hvað það er veit ég ekki.
Allaveganna virðist örrinn mun kaldari á ASUS og örraviftan gengur næstum helmingi hægra þar líka sem gerir tölvuna töluvert hljóðlátari.

Sent: Lau 03. Feb 2007 13:35
af CendenZ
GuðjónR skrifaði:Já vesen var það...ekki get ég neitað því, en það virðist vera tölvuerður munur varðandi hita, hvort það eru skynjarar að nema vitlaust eða hvað það er veit ég ekki.
Allaveganna virðist örgjörvinn mun kaldari á ASUS og örgjörvaviftan gengur næstum helmingi hægra þar líka sem gerir tölvuna töluvert hljóðlátari.


er ekki betra kælisystem undir circuit borðinu á asusnum ?

Re: P5W DH Deluxe IT'S A LIVE !!!!!

Sent: Lau 03. Feb 2007 13:45
af gnarr
GuðjónR skrifaði:...P5W DH Deluxe móðurborðið...
Þetta er eitthvað það lélegasta móðurborð (samt það dýrasta) sem ég hef átt á ferlinum.


GuðjónR skrifaði:þetta er náttlega það besta


:lol:

Re: P5W DH Deluxe IT'S A LIVE !!!!!

Sent: Lau 03. Feb 2007 14:37
af GuðjónR
gnarr skrifaði:
GuðjónR skrifaði:...P5W DH Deluxe móðurborðið...
Þetta er eitthvað það lélegasta móðurborð (samt það dýrasta) sem ég hef átt á ferlinum.


GuðjónR skrifaði:þetta er náttlega það besta


:lol:

já og um leið og ég eignast AMD þá eru það bestu örgjörvar í heimi ;)

annars hefði mátt standa fyrir aftan ...það besta "asus móbóið"....´
miðað við vesenið sem ég lenti í þá er þetta ekki harður dómur, ég var næstum búinn að henda því í tunnuna.
En ég er líka búinn að lenda í veseni með MSI móbóið, ekki samt BIOS crash...heldur að láta það virka með því sem ég er með.
Dæmi, BIOS 7.1 >sem var á því þegar ég keytpi það, þá virkar ekki skjákortið 7950, uppærði í BIOS 7.2 þá virkar skjákortið en ekki DVD drifið, leysti málið með að kaupa SATA DVD drif. Næsti BIOS 7.3 átti að laga DVD í PIO mode, sem og hann gerði, en þá DATT skjákortið út. Downgreidaði í 7.2 aftur, í gær kom svo 7.4 og átti að fixa allt bögg...t.d. CPU microcode, en hann gerði það ekki, skjákortið datt út og c.a 500mb af ram horfið. Downgreidaði aftur í 7.2
Bottom line, það virðist bara vera eintómt vesen að kaupa það allra nýjasta, framleiðendur virðast nota viðskipta vini sína sem beta-testara.

Hraðinn er svo mikill og vöruúrvalið sömuleiðis að það gefst ekki tími til að prófa hlutina saman og láta þá virka. Ekki frekar en windows sé gallalaust þegar það kemur á markað.

Sent: Lau 03. Feb 2007 15:01
af GuðjónR
Stebet skrifaði:Galli við þetta MSI borð er að það supportar ekki USB lyklaborð í BIOS sem er frekar sökkí.

USB lyklaborðið virkar með BIOS 7.2 og greinilega 7.4 líka þar sem hann er nýjastur.
Hvaða version ert þú með ? 7.3 eða 7.1 ?

Sent: Sun 04. Feb 2007 02:13
af Stebet
GuðjónR skrifaði:
Stebet skrifaði:Galli við þetta MSI borð er að það supportar ekki USB lyklaborð í BIOS sem er frekar sökkí.

USB lyklaborðið virkar með BIOS 7.2 og greinilega 7.4 líka þar sem hann er nýjastur.
Hvaða version ert þú með ? 7.3 eða 7.1 ?


Ahhh.. glæsilegt. Soldið síðan ég tékkaði á BIOS updatei siðast (kringum jólin minnir mig). Er núna með 7.35 beta bios.

USB borðið mitt hefur ekki virkað með neinum BIOS hingað til (skilst að það sé eitthvað mismunandi, sum USB lyklaborð virkuðu og önnur ekki). Tékka á 7.4 og sé hvort það virkar þar. Takk fyrir þetta.

Ég er samt ennþá á því að Abit borðið sé sennilega það besta sem þú getur fengið. Hefur fengið biluð reviews og feature settið finnst mér snilld. Menn hafa verið að lenda í smá veseni með FSB overclocking á þessu MSI borði en mitt er stable í 333Mhz þannig að ég er sáttur í bili og verð sennilega alveg búinn að fyrirgefa þeim ef USB lyklaborðið mitt virkar aftur :P

Átti b.t.w MSI móðurborð í "gamla daga" fyrir Athlon XPinn minn. Það var alveg hræðilegt, KT3-Ultra eða hvað það hét. Bara reynslan af því helvíti var sífellt að naga samviskuna þegar ég skellti mér á Powerup borðið en það hefur reynst fínt so far.