Síða 1 af 1

Jæja...þá held ég að þetta sé komið.

Sent: Lau 12. Ágú 2006 22:10
af GuðjónR
Er búinn að vera að setja saman system. Er að spá í að kaupa þetta fljótlega. Einhver komment? t.d. eitthvað sem ég ætti að kaupa frekar? eða einhverjir hlutir sem ég ætti að sleppa.
Total: 212.450.-

Sent: Lau 12. Ágú 2006 22:29
af hahallur
Mjög flottur listi ... persónulega myndi ég taka ... annað móðurborð.

http://www.asus.com/products4.aspx?l1=3 ... odelmenu=1

http://anandtech.com/mb/showdoc.aspx?i=2797&p=3

Best performance, mesta OC.

Sent: Lau 12. Ágú 2006 22:43
af GuðjónR
hahallur skrifaði:persónulega myndi ég taka ... annað móðurborð.

Já Asus móbóið er flottara...get ekki neitað því...veistu hvort og þá hvar það fæst á klakanum?

Sent: Lau 12. Ágú 2006 23:27
af Tjobbi
Ég er med asus bord, thad er reyndar ekki intel studningur, en sammt fínustu bord ef thu ert í yfirklukkunar hugleidingum:)

Sent: Sun 13. Ágú 2006 00:38
af goldfinger
Það á greinilega að gera eitthvað meira en að leggja kapal :lol:

Sent: Sun 13. Ágú 2006 00:42
af Ripper
þú velur nvidia skjákort en móðurborðið styður bara 2xATI skjákort... bara benda þér á það ef þú vilt geta bætt inn öðru skjákorti seinna! :wink:

Sent: Sun 13. Ágú 2006 03:18
af Taxi
þetta PSU er ekki stórt,fyrir svona góða vél. :cry:

Sent: Sun 13. Ágú 2006 11:40
af hahallur
Taxi skrifaði:þetta PSU er ekki stórt,fyrir svona góða vél. :cry:


Jú allveg nóg ... Core Duo eyðir minna rafmagni en A64 og P4.

Og þarna með þetta Asus borð ... Start hefur panntað allt sem ég vill frá nánast hvað framleiðanda sem er á 3 dögum, og þeir eru með nokkur Asus borð líka í búðinni.

Hringdu bara og látta þá redda þessu.

Sent: Sun 13. Ágú 2006 14:39
af GuðjónR
goldfinger skrifaði:Það á greinilega að gera eitthvað meira en að leggja kapal :lol:
Já nota þetta aðalega í word og exel ;)

Ripper skrifaði:þú velur nvidia skjákort en móðurborðið styður bara 2xATI skjákort... bara benda þér á það ef þú vilt geta bætt inn öðru skjákorti seinna! :wink:
Ég var bara að spá í þetta móðurborð af því að þetta er eina móbóið sem ég fann sem er með nýja Intel 975x kubbasettinu.
Ég ætla mér bara að vera með 1x skjákort.
Ætla að kaupa ódýrt skjákort núna af því að ég hendi því og kaupi DX10 kort þegar það kemur.

Sent: Sun 13. Ágú 2006 23:25
af audunn
já MJÖG ódýrt skjákort :lol: endilega hentu því í ruslið heima hjá mér!

Sent: Mán 14. Ágú 2006 22:04
af Skoop
flott vél, mér líst vel á kassann, en verð að segja að það er heldur mikill verðmunur á p150 og p180 http://start.is/default.php?cPath=26_233
miðað við að eini munurinn er að p180 er úr áli og p150 úr stáli og heldur minni.