Síða 1 af 1

Conroe lentur í Kísildalnum (Til á lager og ekkert bull!)

Sent: Þri 08. Ágú 2006 16:49
af wICE_man
Sælir vaktarar, ég var reyndar búinn að skrifa þetta inn á annan þráð en þar sem viðkomandi þráður var stofnaður á fölskum forsendum þá vildi ég gera þetta almennilega.

En semsagt þá er Conroe E6400 (tray) kominn í verslun okkar og eigum við nokkur stykki á lager, við munum ekki taka frá örgjörva heldur mun ríkja lögmálið fyrstur kemur fyrstur fær, aðrir verða að bíða þar til um mánaðarmótin þegar að flestar verslanir munu fá þá.

Hér er til gamans umsögn frá Anandtech

Sent: Þri 08. Ágú 2006 17:58
af hahallur
Flott er .... annars vill maður nú 4mb cache gauranna :)

Ég ætla að bíða rólegur þangað til ég er kominn með vista og taka E6700 þá :)

Mér finnst verðið hinsvegar svoldið hátt, ekki hjá þér bara yfir höfuð, kostar td 300 dollara á newegg ... eða 22000 kr

E6400 300 dollarar 2.13 ghz 2mb L2
E6600 420 dollarar 2.40 ghz 4mb L2
E6700 700 dollarar 2.66 ghz 4mb L2
X6800 1200 dollarar 2.93 ghz 4mb L2 unlockable multiplier

Finnst E6600 vera bestu kaupinn.

Sent: Þri 08. Ágú 2006 18:09
af Tjobbi
Gott mál, hvernig er 6400 í amd? er hann oflugri en allt frá amd eda?

Sent: Þri 08. Ágú 2006 19:57
af gnarr
E6300 circa = x2 4400+

wICE; þessi örgjörfi sem þú ert með er með 1x2MB cache, en ekki 2x1MB

Sent: Þri 08. Ágú 2006 21:03
af hahallur
gnarr skrifaði:E6300 circa = x2 4400+

wICE; þessi örgjörfi sem þú ert með er með 1x2MB cache, en ekki 2x1MB


Nei hann er mitt á milli FX-60 og FX-62 í flestum testum.

http://anandtech.com/cpuchipsets/showdo ... =2802&p=10

Sent: Þri 08. Ágú 2006 21:06
af goldfinger
hahallur skrifaði:Mér finnst verðið hinsvegar svoldið hátt, ekki hjá þér bara yfir höfuð, kostar td 300 dollara á newegg ... eða 22000 kr


Finnst þér það þá mikið að þeir kosti um einhvern 28-30þús kall hér á klakanum ? Newegg er að kaupa aðeins fleiri stykki en íslenskar búðir og eru því að fá þá á mun betra verði. :wink:

Svo er það sendingarkostnaður, vsk og eitthvað verða verslanirnar að fá fyrir sinn snúð til að halda sér gangandi.

Sent: Þri 08. Ágú 2006 21:45
af wICE_man
hahallur skrifaði:Flott er .... annars vill maður nú 4mb cache gauranna :)

Ég ætla að bíða rólegur þangað til ég er kominn með vista og taka E6700 þá :)

Mér finnst verðið hinsvegar svoldið hátt, ekki hjá þér bara yfir höfuð, kostar td 300 dollara á newegg ... eða 22000 kr

E6400 300 dollarar 2.13 ghz 2mb L2
E6600 420 dollarar 2.40 ghz 4mb L2
E6700 700 dollarar 2.66 ghz 4mb L2
X6800 1200 dollarar 2.93 ghz 4mb L2 unlockable multiplier

Finnst E6600 vera bestu kaupinn.


Hvers vegna kunna menn ekki að reikna út rétt verð það vantar alltaf virðisaukaskattinn í alla útreikninga hér á vaktinni? Staðreyndin er sú að flestir tölvuhlutir eru það dýrir að menn eiga/þurfa að borga virðisaukaskatt af þeim.

Lágmarksverð frá Newegg er 300*72*1.245=27.000kr og það er án sendingarkostnaðar, það var vitað að það yrði hátt verð fyrstu mánuðina, ég er nokkuð stoltur af að geta haldið verðinu svona lágu svona snemma.

Að mínu mati eru E6400 klárlega bestu kaupin, amk. ef þú ætlar að yfirklukka, endurbætti prefetch mekanisminn í Conroe skila sér í því að skyndiminnið er ekki jafn þýðingarmikið og áður hjá Intel gjörvum.

gnarr skrifaði:E6300 circa = x2 4400+

wICE; þessi örgjörfi sem þú ert með er með 1x2MB cache, en ekki 2x1MB


Úps, aðeins að flýta mér of mikið þarna :P

Sent: Mið 09. Ágú 2006 01:15
af Ragnar
Mynd

eruð þið að segja mér að það sé svona lítill munur á E6400 og FX-62 ? þetta finnst mér magnað.

Sent: Mið 09. Ágú 2006 08:44
af gnarr
Ragnar skrifaði:Mynd

eruð þið að segja mér að það sé svona lítill munur á E6400 og FX-62 ? þetta finnst mér magnað.


Nei, en í akkúrat þessu testi munar svona litlu.

hahallur skrifaði:
gnarr skrifaði:E6300 circa = x2 4400+

wICE; þessi örgjörfi sem þú ert með er með 1x2MB cache, en ekki 2x1MB


Nei hann er mitt á milli FX-60 og FX-62 í flestum testum.

http://anandtech.com/cpuchipsets/showdo ... =2802&p=10


Hvernig útskýriru þá að 6300 er oft hægari en 4200+?:

Sent: Mið 09. Ágú 2006 17:02
af hahallur
Reyndar mislas ég aðeins og var að tala um 6400 sem Kísildalur er með :)

Hann er þarna með á sama level-i og FX-60.

Sent: Lau 12. Ágú 2006 13:49
af audunn
eru margir búnir að versla sér conroe??? :D

Sent: Fös 18. Ágú 2006 09:26
af stjanij
þarna er búið að OC suma örgjörfana.