Síða 1 af 2

Nýr Kassi

Sent: Mán 10. Júl 2006 21:31
af Hrafnkellos
Ég var að spá í að búa til nýjann kassa og mig vantar eiginlega smá ráðleggingar með hann. Mig vantar aðallega ráðleggingar með örgjörva. ég hef heyrt að fólk sé að bíða eftir einhverjum intel conroe örgjörva.

kassi: Aspire X-Navigator svartur ATX
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=53

Afflgjafi: Aspire 500W gagnsær aflgjafi
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=43

Móðurborð: MSI 945P Platinu
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1701

Vinnsluminni: Corsair ValueSelect pöruð 2 stk. 1GB (=2GB) DDR2
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2221

skjákort: XFX GeForce 7900GT
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=182

HD: 320GB Western Digital
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1556

DVD skrifari: NEC 45700A silfur DVD±RW
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2412

netkort: ZyXEL ZyAIR G-360
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2037

Svo var ég að hugsa um að fá sona zalman viftu á örgjörvan þegar ég veit hvernig örgjörva ég ætla að fá mér og jafnvel viftu á skjákortið líka. ég er með 4 harðadiska fyrir og ég var að spá hvernig ég gæti komið þeim fyrir líka, er ekki hægt að kaupa sona framleningarkapal á harðadiskasnúruna eða eitthvað? :D

Sent: Mán 10. Júl 2006 21:47
af BrynjarDreaMeR
þú færð þér AMD ekkert intel BULL

Sent: Mán 10. Júl 2006 22:52
af audunn
þessi lítur vel út...
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... cts_id=250

eða þessi ef þú vilt endileg Intel... ætti að vera nokkuð öflug
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... cts_id=215

Sent: Þri 11. Júl 2006 00:00
af Hrafnkellos
okey þá skipti ég móðurborðinu út fyrir þetta amd móðurborð

MSI K9N SLI Platinum - nForce 570 SLI
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2423

og fæ mér

AMD Athlon 64 3800+, 2,4GHz örgjörva
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2429

og Zalman viftu
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1458

ég er ekki að sjá oem tegundina af örgjörfanum þarna þannig að það er spurning að spurja þá um hann eftir að maður er búinn að panta....

allt saman kostar þetta 122.300 krónur

Sent: Þri 11. Júl 2006 00:46
af audunn
fáðu þér allavega sata2 harðan disk móðuborðið styður það

Sent: Þri 11. Júl 2006 12:31
af Hrafnkellos
Okey þá lítur þetta sona út. Ég held að þetta sé nokkuð gott svona en endilega setjið eitthvað út á þetta.

Kassi: Aspire X-Navigator svartur ATX
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=53

Afflgjafi: Aspire 500W gagnsær aflgjafi
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=43

Móðurborð: MSI K9N SLI Platinum - nForce 570 SLI
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2423

Örgjörvi: AMD Athlon 64 3800+, 2,4GHz
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2429

Kæling: 1337 Zalman vifta
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1458

Vinnsluminni: Corsair ValueSelect pöruð 2 stk. 1GB (=2GB) DDR2
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2221

Skjákort: XFX GeForce 7900GT
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=182

HD: 250GB Western Digital SE16 - SATA II
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1789

DVD skrifari: NEC 45700A silfur DVD±RW
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2412

Netkort: ZyXEL ZyAIR G-360
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2037

Ég reiknaði þetta eitthvað vitlaust áður þetta er 144250 krónur

Sent: Þri 11. Júl 2006 12:52
af kokosinn
í guðanna bænum ekki fá þér AMD

Sent: Þri 11. Júl 2006 12:58
af Heliowin
Mig langaði bara að bæta við að kælingin er heilagt flykki, mjög fyrirferðamikil en fer samt afskaplega lítið fyrir henni þegar hún hefur hlammað sér niður og sett í gang. Ég er allavega mjög ánægður miðað við aðra enn nýrri frá Zalman.

Örrinn er freistandi jafnvel fyrir sjálfan Intel mann eins og mig og mun ég sennilega velja samskonar módel bráðum.

Sent: Þri 11. Júl 2006 13:05
af Rusty
kokosinn skrifaði:í guðanna bænum ekki fá þér AMD

rök?

Sent: Þri 11. Júl 2006 14:46
af gnarr
Fáðu þér frekar Seagate eða Samsung harðann disk heldur en þennann WD. Það breytir engu hvort diskruinn er SATA eða SATA2.

Sent: Þri 11. Júl 2006 15:29
af audunn
ég hélt það myndi muna aðeins að hafa sata2 disk :shock:

Sent: Þri 11. Júl 2006 15:36
af kemiztry
gnarr skrifaði:Fáðu þér frekar Seagate eða Samsung harðann disk heldur en þennann WD. Það breytir engu hvort diskruinn er SATA eða SATA2.


Mér finnst þetta reyndar brilliant diskur. Hraður og hljóðlátur. Mæli með svona disk.

Gef nú lítið fyrir þau rök að WD sé verra en Seagate eða Samsung. Persónulega hef ég mjög góða reynslu af WD ... en vildi ég gæti sagt annað um önnur merki :wink:

Sent: Þri 11. Júl 2006 16:06
af gnarr
WD diskurinn notar fleiri plattera en bæði Samsung og Seagate diskarnir, og eru þar af leiðandi hægari og háværari.

Sent: Þri 11. Júl 2006 16:06
af biggi1
persónuleg reynsla:

ég á 2 wd og 2 seagate baracuda.. hef átt þá alla í svipað langann tíma. þeir fá nákvæmlega sömu hlutverk og meðhöndlun, s.s defragmenta og þannig alltaf á sama tíma.
wd diskarnir hafa crashað samtals 4 sinnum þann tíma sem ég hef átt þá en seagate hafa aldrei crashað.
kaupi aldrei wd aftur :)

Sent: Þri 11. Júl 2006 16:19
af kemiztry
Hef nú átt 5 WD - Allir góðir. Nema kannski sá fyrsti.. bölvaður hávaðaseggur enda ekki með vökvalegum. Allir aðrir diskar sem ég hef átt hafa bilað :?

En svo þetta með hraðann... ef við berum saman 320GB WD vs 300GB Samsung....
http://www23.tomshardware.com/storage.html?modelx=33&model1=135&model2=140&chart=33
Sé ekki betur en WD tekur þennan Samsung disk í ósmurt? :shock: Virðist litlu skipta hvort diskurinn sé SATA eða ATA...

Sent: Þri 11. Júl 2006 20:29
af Taxi
kemiztry skrifaði:Hef nú átt 5 WD - Allir góðir. Nema kannski sá fyrsti.. bölvaður hávaðaseggur enda ekki með vökvalegum. Allir aðrir diskar sem ég hef átt hafa bilað :?

En svo þetta með hraðann... ef við berum saman 320GB WD vs 300GB Samsung....
http://www23.tomshardware.com/storage.html?modelx=33&model1=135&model2=140&chart=33
Sé ekki betur en WD tekur þennan Samsung disk í ósmurt? :shock: Virðist litlu skipta hvort diskurinn sé SATA eða ATA...

Fáðu þér 150.GB Raptor og málið er dautt.það gerði ég og sé ekki eftir því.
Mjög hraður og stöðugur diskur sem á eftir að endast mér lengi. :D
Alveg peninganna virði,Á eftir að nota hann sem disk-1 í næstu uppfærslu.

HD

Sent: Þri 11. Júl 2006 21:56
af Hrafnkellos
það er erfit að finna þessa raptor diska en ég sá þennann samsung disk í kísildal og er að spá hvort að hann er ekki málið. Hann er líka ódýr.

Samsung Spinpoint 250GB SATA2
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=28

og annað mál, hvað getur maður gert þegar að slottin eru búin fyrir alla harðadiskana? er með 4 fyrir...

*Edit*

nei vó raptor er þarna fyrir neðan... held ég sé ekki að fara eyða 30000 í HD

Sent: Mið 12. Júl 2006 17:08
af ManiO
kokosinn skrifaði:í guðanna bænum ekki fá þér AMD


Miðað við sum innlegg frá þér held ég að fáir sem engir ættu að hlusta á þín ráð varðandi örgjörva.


En væri ekki málið að eyða nokkrum þúsundköllum meir og fá sér betra minni? Eða hvað er annars verð takmörkin?

Sent: Mið 12. Júl 2006 18:20
af Hrafnkellos
ég myndi helst vilja halda mig undir 150 þ. kallinum. Ég held að 2 gb vinnsluminni sé alveg nóg :/. kassinn, aflgjafinn og skjákortið eru uppseld og það kemur ekki fyrr en í næstu viku. þetta er greinilega frekar vinsælt dót þarna í kýsildal.

Sent: Mið 12. Júl 2006 20:03
af GuðjónR
Intel er málið og ekkert rugl!

Sent: Fim 13. Júl 2006 09:15
af ManiO
Hrafnkellos skrifaði:ég myndi helst vilja halda mig undir 150 þ. kallinum. Ég held að 2 gb vinnsluminni sé alveg nóg :/. kassinn, aflgjafinn og skjákortið eru uppseld og það kemur ekki fyrr en í næstu viku. þetta er greinilega frekar vinsælt dót þarna í kýsildal.


Meinti nú bara að hífa sig upp úr value flokknum, og já 2GB er meir en nóg í bili.

Sent: Fim 13. Júl 2006 19:16
af zedro
Skelltu þér frekar á þennan kassa:

Coolermaster Stacker @ 16.990
http://task.is/?prodid=1250

Stærri og skemmtilegri fylgja hjól með svo þetta er draumur að flytja á milli staða!

Sent: Fös 21. Júl 2006 07:48
af Wyrminarrd
Alls ekki að kaupa strax, bíða þangað til að Conroe kemur að fullu á markaðinn og AMD neyðist til að lækka verðið.

Intel er gjörsamlega að taka AMD í nefið með Conroe, aka Core 2 duo.

Sent: Fös 21. Júl 2006 09:29
af urban
Zedro skrifaði:Skelltu þér frekar á þennan kassa:

Coolermaster Stacker @ 16.990
http://task.is/?prodid=1250

Stærri og skemmtilegri fylgja hjól með svo þetta er draumur að flytja á milli staða!


æðislegur kassi: Já
frábært að flytja á milli staða: veistu nei.. hann er ekki beint gerður til þess

Sent: Sun 23. Júl 2006 15:55
af zedro
urban- skrifaði:frábært að flytja á milli staða: veistu nei.. hann er ekki beint gerður til þess

Halló hann er á hjólum! Að vísu er hann soldið þungur...tjah mjög þungur ^^
samt yndislegur :twisted: