Síða 1 af 1

Sarotech AivX hýsing

Sent: Sun 18. Jún 2006 15:40
af Veit Ekki
Ég hef verið að spá í að fá mér 250GB disk og flakkara en svo var ég að skoða þessa margmiðlunarspilara og leist mjög vel á svoleiðis, þar sem að þá þarf maður ekki að hafa þetta tengt við tölvu þegar maður vil horfa á þetta. Þægilegra en að vera með snúru úr tölvunni í sjónvarpið.

Var að spá í þennan hérna:

Sarotech AivX hýsing fyrir 3,5" harðdiska -
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2350

Hefur einhver reynslu af þessum spilara?

Einnig hvort að það sé ekki sniðugara að kaupa sér TV-flakkara en bara flakkara, munar sirka 8.000 kr. á venjulegum flökkurum og þessum fyrir ofan. Hvort að það sé þess virði?

Sent: Sun 18. Jún 2006 23:06
af DoRi-
ég er með einn svona sem er búinn að virka mjög vel fyrir mig, er með í honum Seagate 7200.9 250GB disk

mjög lítill hávaði
einfalt, en þægilegt (G)UI
getur spilað ISO , séu ISO skráin DVD mynd


getur ekki spilað wmv

Sent: Mán 19. Jún 2006 14:30
af KristinnHrafn
Ég á svona AivX flakkara. Mjög þæginlegur og einfaldur. Mæli með honum.

Sent: Mán 19. Jún 2006 19:56
af Veit Ekki
Ok, flott. Fæ mér þá væntanlega þennan. :P

Sent: Fös 30. Jún 2006 13:47
af Veit Ekki
Set þetta bara hérna í staðinn fyrir að gera nýjan þráð:

Hvorn mynduð þið taka:

DVICO TVIX M3100U eða Sarotech AivX

Mér sýnist þeir vera svipaðir en endilega að kommenta um kosti og galla, sérstaklega ef þið eigið annan hvorn. Ætla að kaupa diskinn hjá Tölvuvirkni.

Einnig ef þið vitið um slóðir á síður sem eru með umsagnir um þessa spilara.

Sent: Fös 30. Jún 2006 22:58
af GuðjónR
Skoðaðu úrvalið.

Sent: Fös 30. Jún 2006 23:19
af Gestir
Rapsody frá Task er líka snilld.

hann spilar HD myndir .. eða á að gera það ;)

styður 480p 720p og 1080i.

Sent: Lau 01. Júl 2006 00:04
af ICM
Þó það sé gefið upp að þeir ráði við 720p þá þarf að athuga hvort það ráði við video af þeirri stærð eða hvort þetta sé bara með upscaler.

Sent: Lau 01. Júl 2006 15:51
af Gestir
Þeir ráða alveg við þetta.

getur séð þetta á heimasíðunni hjá þeim.

Getur líka sett video output á 720p og 1080i.

Málið er samt að það eru fáir með HD myndir í .AVI .DIVx .Mpeg.

Þetta er flest í MOV eða MKV. sem hann reyndar styður ekki.


Mér skillst að HD DVD og Blueray spilarar komi ekki fyrr en í haust/vetur og þá fara DVD myndir að koma í þessum HD staðli.

Þá verður skipt út heimabíóinu ;)

Sent: Sun 02. Júl 2006 12:39
af DoRi-
Avix getur líka outputtað í 720p og 1080i

á samt eftir að prófa að horfa á það þannig

Sent: Sun 02. Júl 2006 22:37
af Veit Ekki
Ákvað að fá mér þennan frá Tölvuvirkni og fyrstu kynni mín við spilarann eru mjög góð. :P

Sent: Fim 13. Júl 2006 15:26
af kraft
aivx spilarinn frá sarotech er góð barnapía :)