Síða 1 af 1

móðurborð sem styður tvo AMD dual core?

Sent: Þri 23. Maí 2006 17:24
af KashGarinn
Hvar er hægt að finna móðurborð sem styður 2 AMD örgjörva sem eru dual core?

Er ekki að finna þetta við fyrstu sýn.

Einhverjir búnir að pæla í þessu eða eru að nota svona?

K.

Sent: Þri 23. Maí 2006 18:43
af hahallur
Þá meinaru að fá þér tvo Opterion 265 + ?

What's the fu..ing point ?

Sent: Þri 23. Maí 2006 18:45
af Blackened
hahallur skrifaði:Þá meinaru að fá þér tvo Opterion 265 + ?

What's the fu..ing point ?


Ætli þetta sé ekki eitthvað svipað og að fá sér 7900gtx í sli eða eitthvað.. bara ofur performance :)

Sent: Þri 23. Maí 2006 18:54
af hahallur
Nei það er ekkert að því að fá sér 2 x 7900 GTX...það þarf td til að keyra leiki í stórum skjám....

... en 2 x dual core öri er bara fyrir server-a og Hollywood fx stódíó....

Sent: Þri 23. Maí 2006 19:10
af Vilezhout
getur fengið nforce 4 borð sem að eru með 2 s940 raufum

veit ekki hvort að þau bjóði uppá 2x pci-e 16 raufar

Tyan Thunder K8WE

Sent: Þri 30. Maí 2006 13:17
af kraft
já, ég hefði gaman að fá að vita hvort það sé til móðurborð sem tekur 2x opteron 165 örgjörva :)

Jæja, er búinn að finna það. Móðurborðið heitir Tyan Thunder K8WE

http://arstechnica.com/guides/buyer/sys ... 0601.ars/4

Mynd

Sent: Mán 26. Jún 2006 17:15
af biggi1
500.000 króna leikjatölva? :8)

Sent: Mán 26. Jún 2006 22:37
af Stuffz
ég er með eitt svona K8T Master2-FAR mobo fyrir 2 Opteron 200series hérna hjá mér http://www.msicomputer.com/product/p_sp ... aster2-FAR

sé bara hvergi nefnt dualcore á síðunni hjá MSI spurning hvort það þurfi ekki bara að uppfæra BIOS fyrir dualcore support.

hef annars ekkert ad gera við það svo ef eitthver vill það þá er það á 4þús
(bara eitt sett plastístað fyrir örraviftu einsog sést á mynd á þessu mobo ekki tvö)

annars ef þið viljið ódýra lausn á yfirklukkaðri tölvu þá er þetta THG review um Pentium D 805 2.66GHz (133x20) dual core örrann nokkuð sem væri þá vert er að líta á "A 4.1 GHz Dual Core at $130 - Can it be True?" http://www.tomshardware.com/2006/05/10/ ... page5.html

væri gaman að vita hve mikið meira en 4.1GHz (205x20) maður gæti OC hann ef notað væri eitthvað öflugra en þetta standard cooling t.d. með Vapochill LS ;) færi sennilega yfir 5GHz og kostar bara 130$ eitthverjir hjá intel sennilega að berja hausnum við steininn núna, þeir hafa ekki takmarkað tæknina á honum nógu mikið hehe

Re: móðurborð sem styður tvo AMD dual core?

Sent: Þri 27. Jún 2006 09:14
af Stutturdreki
KashGarinn skrifaði:Hvar er hægt að finna móðurborð sem styður 2 AMD örgjörva sem eru dual core?

Er ekki að finna þetta við fyrstu sýn.

Einhverjir búnir að pæla í þessu eða eru að nota svona?

K.
www.newegg.com (uppáhalds netverslunin mín) eru td. með 27 Dual Socket 940 móðurborð á lista hjá sér. Getur reynt að finna fleirri netverslanir sem bjóða hugsanlega upp á önnur móðurborð.

Sent: Þri 27. Jún 2006 09:35
af Gestir
En þú veist að þú getur ekki verslað á newegg með íslensku kredidkorti þannig að því sýgur þessi netverslun hátíðlega ..

Sent: Þri 27. Jún 2006 11:53
af Stutturdreki
ÓmarSmith skrifaði:En þú veist að þú getur ekki verslað á newegg með íslensku kredidkorti þannig að því sýgur þessi netverslun hátíðlega ..
Nú.. vissi það ekki. Þeir hljóta þá að koma og endurheimta þessar fjórar panntanir sem ég hef gert frá því í oktober í fyrra.. djö á ég eftir að sakna skjákortsins míns og 1GB af minninu sem er komið í kassann minn hérna heima.. allt keypt á hið al-íslenska e-kort.

Það er hinsvegar rétt að þeir senda ekki út fyrir BNA, en það má komast fram hjá því með ýmsum leiðum.. td. ætti að vera hægt að versla þarna í gegnum Shopusa ef maður er desperate.

Annars notaði ég bara Newegg sem svona reference fyrir gaurinn til að finna sér server móðurborð.. einhverstaðar verður hann að byrja.

Sent: Þri 27. Jún 2006 13:29
af audiophile
Já þetta er rangt hjá þér Ómar, þeir taka alveg við íslenskum kortum en þeir hinsvegar senda ekki til Íslands.

Annars var ég að lesa um daginn að Newegg er að íhuga að opna aðra verslunarsíðu sem verður fyrir evrópumarkað. En það þýðir auðvitað evrópuverð þannig að það er ekki víst að það sé neitt hagstæðara. En þeir eru þó með fantagott úrval.

Sent: Þri 27. Jún 2006 17:22
af hahallur
Bara svo þú vitir þá er ekki hægt að vera með tvo Opterion 165 öra ... bara tvo Opterion 265

Sent: Lau 01. Júl 2006 22:28
af emmi
Það hefur þá eitthvað mikið breyst hjá þeim á einu ári. Þegar ég reyndi að kaupa hjá þeim með mínu íslenska Vísa korti þá var því neitað. Ég fékk þá kortið hjá pabba lánað sem býr í USA en samt var mér neitað að versla þarna. Þá kom í ljós að þeir tóku ekki við neinum pöntunum nema frá Amerískum IP tölum. :P Þannig að í þriðju tilraun þá tókst mér að panta þarna með því að fá kortið hjá pabba lánað og remota mig svo inná tölvuna hans til að panta, hahaha.

Sent: Mán 03. Júl 2006 17:38
af Stuffz
emmi skrifaði:Það hefur þá eitthvað mikið breyst hjá þeim á einu ári. Þegar ég reyndi að kaupa hjá þeim með mínu íslenska Vísa korti þá var því neitað. Ég fékk þá kortið hjá pabba lánað sem býr í USA en samt var mér neitað að versla þarna. Þá kom í ljós að þeir tóku ekki við neinum pöntunum nema frá Amerískum IP tölum. :P Þannig að í þriðju tilraun þá tókst mér að panta þarna með því að fá kortið hjá pabba lánað og remota mig svo inná tölvuna hans til að panta, hahaha.


gdr ;)