Síða 1 af 1

Til Danmerkur...

Sent: Lau 26. Júl 2003 16:36
af Hlynzi
Jæja, ég er á leiðinni til Danmerkur, vitiði um tölvu og hljómtækjaverslanir (ekki hljóðfæraverslanir) þarna úti ?

Þar skal keyptur 250gb harður diskur og fleira álíka dót.

Sent: Lau 26. Júl 2003 18:02
af GuðjónR
Gerðu sjálfum þér greiða og láttu WD diska eiga sig.

Sent: Lau 26. Júl 2003 19:03
af Atlinn
Skil ekki allveg þennann móral útí bæði AMD og WD ég er með AMD, hef alltaf verið með AMD og aldrei lent í neinum vandræðum, ég er með tvo WD Diska 80gb og 120gb og það heirist meira í gamla 2.5gb IBM harðadisknum sem er í annarri tölvu sem er grafin undir drasli úti í horni í herberginu mínu. Kanski er ég bara svona heppinn og lendi aldrey á gallaðri vöru eða eitthvað ?

Sent: Lau 26. Júl 2003 19:16
af Damien
Ég er med WD 120GB 8MB disk og hef ekki lennt í neinum vandræðum ennþá né heyrt um einhvern í vandræðum með WD. En það er ekki ennþá komin reynsla á diskinn, hann er bara sonna 1 - 1 1/2 mánaðar gamall...
We'll see...
Ég er með Intel en ég hef ekkert á móti AMD...

Sent: Lau 26. Júl 2003 20:52
af gumol
Atlinn: Þessi mórall er ekki afþví AMD bilar svo oft, það er afþví í dag eru þeir að preforma verr en Intel.

Sent: Lau 26. Júl 2003 23:39
af Voffinn
Ég reyndi að finna einhverjar tölvubúðir í dk þegar ég var þar. Fann reyndar eina sem hét "Hard'nSoft" mér fannst hún ekkert sérstök, það eru örugglega einhverjar góðar búðir þarna, mér tókst ekki að finna neina :?

Spurning með að finna einhverja netverslun þarna úti sem þú getur pantað af ?

Svo ef þú verður í köben þá er fínt netkaffihús sem heitir "XPC" og það er á tveim stöðum, annar er á O/sterbårgade eða hvernig sem þetta er skrifa (get fundið það út fyrir þig ef þér vantar) þetta er ekkert langt frá Parken.

Og please, ekki láta plata þig á íslendingaslóðir í köben. ;)

Sent: Sun 27. Júl 2003 00:45
af kiddi
Ég er búinn að tapa, 6x 80GB WD 8MB's diskum í ofur-hátíðnihljóð, þar af einn gjörsamlega ónýtur. 2x 120GB WD 8MB's diskum, einn í hátíðnihljóð sem hundar og kettir forðast eins og heitann eldinn, og hinn gjörsamlega dauður. 1x 180GB WD.. með hátíðnihljóð sem maður getur ekki sofið við. Með öðrum orðum, Fuck Western Digital. Ég veit þetta er barnalega sagt en ég er vægast sagt fúll út í þetta fjandans fyrirtæki og mun aldrei gefa þeim sjens aftur. =)

Sent: Sun 27. Júl 2003 01:10
af Voffinn
en hvernig er það... læra af reynslunni ? af hverju kaupirðu diskanna aftur og aftur og aftur ef þeir bila alltaf ? :shock:

Sent: Sun 27. Júl 2003 01:23
af GuðjónR
Ég er líka búinn að eiga nokkra WD sem fóru svona...
Í upphafi lofa þeir góðu...svo þegar þeir eru orðnir nokkurra mánaða gamlir þá fara þeir að láta vita af sér ;)
Núna er ég kominn yfir í Seagate og ætla að halda mig þar, (þangað til annað kemur í ljós).

Sent: Sun 27. Júl 2003 01:36
af Voffinn
passið ykkur, GuðjónR er hax0rinn sem gengur undir nafninu "Seagate" á cs.vaktin.is ;)

Sent: Sun 27. Júl 2003 01:45
af GuðjónR
lol :oops:

Sent: Sun 27. Júl 2003 04:49
af kiddi
Voffinn: hehe.. ég er ekki svo vitlaus, allir þessir diskar voru frábærir fyrstu mánuðina, ég keypti þessa diska bæði fyrir mig og svo vinnuna mína, svo nokkrum mánuðum síðar eru þeir farnir að hrynja niður hver á fætur öðrum. Ég hata WD.

Sent: Sun 27. Júl 2003 11:06
af Hlynzi
Ég hef nú alveg ákveðið hvaða harðan disk ég ætla að fá mér. Úti í USA eru þeir ódýriri, en sendingarkostnaður og aðflutningsgjöld eru mikil.

Þannig að í leiðinni í köben þá ætla ég að versla þetta þar og spara helling. (enda kanski með 20-25k á diskinn, sem er gott)

Diskurinn sem verður keyptur heitir: Maxtor 250gb, 7200 rpm, 8mb buffer.
Ef ég finn Seagate í þessari stærð, þá gæti vel verið að ég skelli mér á hann. Auk þess ætla ég að versla hitt og þetta þarna í dk. kanski Zalman, vélin mín er nokkuð heit hérna í miðju herbergi.

Sent: Sun 27. Júl 2003 15:50
af Voffinn
kiddi skrifaði:Voffinn: hehe.. ég er ekki svo vitlaus, allir þessir diskar voru frábærir fyrstu mánuðina, ég keypti þessa diska bæði fyrir mig og svo vinnuna mína, svo nokkrum mánuðum síðar eru þeir farnir að hrynja niður hver á fætur öðrum. Ég hata WD.


Let's join the anti-WD revolution ! :D

Sent: Sun 27. Júl 2003 20:21
af halanegri
minn 120gb SE virkar ennþá, búinn að eiga hann síðan í nóvember minnir mig.....uber hljóðlátur

Sent: Sun 27. Júl 2003 20:32
af GuðjónR
Ég á eftir 1x 120GB WD framleiddan 8 ágúst 2002 fyrir réttu ári og hann er mjög hljóðlátur miðað við aðra WD en hávær miðað við nýju Seagate diskana.