Síða 1 af 1
SATA vandamál
Sent: Mán 21. Júl 2003 22:18
af AtliAtli
Ég var að setja upp vél með tveimur Seagate SATA diskum sem ég ætla að RAIDa... ok, vandamálið er að þegar ég kveiki á tölvunni greinir hún hvorugan diskinn, en finnur þá samt í biosnum..... hmmmm?
semsagt þegar ég fæ upp boot devices finnur hún ekkert!?
einhver ráð?
Sent: Þri 22. Júl 2003 18:04
af odinnn
er búið að partisionera þá? og formatta?
þegar ég keypti mér hd í fyrsta sinn þá þá var það þannig að windows fann diskana en gaf þeim ekki staf t.d. C: og þá átti ég eftir að partisionera þá.
Sent: Þri 22. Júl 2003 18:32
af AtliAtli
Ég er að ryðga í þessu...
Ég er bara með tvo nýja diska, engan annan. Hvernig kemst ég í fdisk?
Ég bjó til ms dos startup disk, hvert fer ég þaðan?
hjálp!
Sent: Þri 22. Júl 2003 18:44
af Voffinn
ég myndi starta up af win98 disk ef þú átt þannig... svo man ég ekki hvað meira, en átt að komast í fdisk í honum. (boota upp af disknum)
Sent: Þri 22. Júl 2003 19:03
af odinnn
líka af þú bootar upp á XP disk þá kemur fdisk
Sent: Þri 22. Júl 2003 19:58
af AtliAtli
takk fyrir svörin...
þetta er að rifjast upp.. er að formata
Re: SATA vandamál
Sent: Þri 22. Júl 2003 20:02
af axyne
ég lendi í svipuðu vandamáli
er með MSI K7N2G-L nforce2 móðurborð með innbyggðum Serial ATA RAID controler. og 2x Seagate Barracuda 120 gb SATA
ég bluggaði diskunum í samband og ætlaði síðan að adda þeim í winXp með Disk manager en þar fann ég þá ekki.
eftir mikið hux þá fattaði ég að þegar tölvan er að byrja að boota sig þá kemur eitthvað Press ctrl F for..... sem hafði aldrei verið áður, kom eftir að ég setti nýju diskana í vélina.
gerði ctrl F og fór í svona Setup. Setupið á Raid Controlinum!!
þar gat ég valið um Striping/mirror en ekkert þannig að ég hef diskana sjálfstæða, mér til mikillar gremju. ég prufaði að búa bara til 2x strip og hafði 1x disk á hverju stripi. þannig gat ég haft diskana 2 sjálfstæða veit samt ekki hvort þetta er að skapa einhverja vitleysu/hraðaminnkun eða eitthvað í þá áttina. er ekkert sérstaklega sáttur við hraðann sem ég hef verið að mæla með ýmsum benchmark tólum.
er að fara nú bráðlega að fá lánaðann stóran disk til að copya gögnin sem ég hef á diskunum og ætla að síðan að Strípa þá báða í eitt volume
vona að þetta hjálp þér eitthvað.
ertu með innbyggðan SATA controler eða Pci spjald. ?
Sent: Mið 23. Júl 2003 01:49
af AtliAtli
Ég er með innbyggt, er ekki búinn að setja upp RAID, diskarnir eru sjálfstæðir...