Síða 1 af 3

AMD eða Pentium???????????????????

Sent: Mán 21. Júl 2003 21:02
af PéturH
Getur einhver sagt mér hvor örgjöfinn er betri (fyrir leiki aðalega): AMD 2500xp athlon eða p4 2.4ghz 512 cache ????? :)

Sent: Mán 21. Júl 2003 21:12
af icemob
Það má benda á aðra þræði um sama málefni.

Annars ertu mjög hugaður að spyrja, ef þessi þráður verður eins og aðrir þræðir um sama málefni, þá verður þráðurinn ca. 3-4 síður af SKÍTKASTI milli fylgismanna AMD og INTEL :twisted:

Annars get ég ekki hjálpað þér, hef alltaf verið INTEL maður, en er eiginlega farið að vera sama um hvorn örrann ég nota.

Sent: Mán 21. Júl 2003 22:23
af Voffinn
1. ég hata þegar fólk notar svona mikið af ??????????????????????
2. ég held að þessir örgjörvar séu að performa svipað, en, það er bara pen. vs. gæði (amd vs. intel)
3. þessi þráður átti að heita "Amd XP2500+ vs. Intel P4 2.4ghz ?"

Sent: Mán 21. Júl 2003 23:17
af halanegri
[quote="Voffinn]"en, það er bara pen. vs. gæði (amd vs. intel)[/quote]

úúú, skítkastið bara strax byrjað :P

Sent: Mán 21. Júl 2003 23:38
af gumol
Pentium frekar, annars fer það eftir móðurborðinu líka :)

Sent: Mán 21. Júl 2003 23:47
af Voffinn
halanegri skrifaði:úúú, skítkastið bara strax byrjað :P


ég varð, þú þekkir mig ;)

Sent: Mið 23. Júl 2003 19:21
af Damien
Þetta er eiginlega orðið allt sama dótið í dag.
Ég er með Intel P4 2.8 533FSB og ég er mjög ánægður með hann.
Ég tók Intel því ég hef heyrt að AMD séu að bila eitthvað pínu meira, en ég veit nú eiginlega ekki um neinn sem hefur lent í vandræðum með AMD... En annars hef ég litla reynslu af AMD ég hef alltaf átt Intel...
En eins og ég segi þá er þetta allt orðið næstum sama dótið... + það að AMD eru ódýrari :lol:

Sent: Mið 23. Júl 2003 21:43
af Hlynzi
Jæja drengir, þið eruð aðeins komnir í eina blaðsíðu.

Ég er fylgjandi AMD

Og enn og aftur, þetta snýst allt um trúarbrögð.

Sent: Mið 23. Júl 2003 22:41
af gumol
amm, þú ert viilitrúar

Sent: Mið 23. Júl 2003 23:07
af GuðjónR
Intel
(kemur það einhverjum á óvart?)

Sent: Mið 23. Júl 2003 23:09
af Hlynzi
Strákar, við ksulum ekki fara að hengja mann og annan, eða hefja krossferðir eins og var gert með style hér áður fyrr.

Bylting væri flott. Fá sér bara G5 örgjörva úr Makka.

Sent: Fim 24. Júl 2003 10:59
af gumol
LOL, bylting.
Þetta er rándýrt borðskraut.

Sent: Fim 24. Júl 2003 21:13
af Negrowitch
AMD hiklaust! (fá smá hita í þessa umræðu :wink: ) Samkvæmt THG 3DMark 2001se testinu (af því að þú varst að tala um tölvuleiki) er P4 aðeins betri en það munar engu, skoðaðu testið. Samkvæmt http://www.vaktin.is er AMD miklu ódýrari í Retail eða réttara sagt 7.500kr. Verðmunurinn er samt enn meiri ef þú tekur bestu platformin inn í! Plís, ekki fara að bera saman einhver cheap Intel móðurborð og dýr AMD eins og í fyrri þráðum. Þið verðið bara að gleypa þetta því þetta er staðreynd! :wink: Vaktin lýgur aldrei :wink:

Sent: Fim 24. Júl 2003 21:41
af GuðjónR
Það getur vel verið að amd sé hraðari en intel...en hraði er ekk allt.

Sent: Fim 24. Júl 2003 22:19
af Voffinn
það er krafturinn sem skiptir máli ;)

Sent: Fim 24. Júl 2003 22:25
af MezzUp
Negrowitch: díses, þú sérð þarna að P4 2.60Ghz er örlítið betri en AMD3200XP EN 28.005 KRÓNUM ÓDÝRARI! ! !
-----
ef að ég er að fara með fleipur, endilega leiðréttu mig........

Sent: Fös 25. Júl 2003 18:23
af Tesli
Margir sem hafa átt AMD skiptu yfir í INTEL (þ.á.m ég)

ALLIR sem hafa átt INTEL halda sig við þá


GO INTEL!!! :P

Sent: Fös 25. Júl 2003 19:53
af kiddi
Hehe.. varðandi þetta hraðatest frá THG, þá eru AMD búnir að tapa hraðaforystunni, ég held að þeir hafi maxað út getu AMD XP kjarnans í kringum XP2400-2500, en á þeim tíma voru þeir örgjörvar betri en sambærilegir P4, þ.e. AMD XP2500 stóð alveg jafnfætis P4 2.4, en fram að því hafði AMD meira kick-per-mhz, en ekki lengur =) Og AMD XP2500 er 40-50% ódýrari en P4 2.4ghz. En það var þá.

Sent: Sun 27. Júl 2003 02:14
af Fletch
GuðjónR skrifaði:Það getur vel verið að amd sé hraðari en intel...en hraði er ekk allt.


vá, intel fan number 1 að gefa eftir ??? ;)

þetta fer í ramma uppá vegg!!!

Fletch

Sent: Sun 27. Júl 2003 12:42
af GuðjónR
Fletch skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Það getur vel verið að amd sé hraðari en intel...en hraði er ekk allt.


vá, intel fan number 1 að gefa eftir ??? ;)

þetta fer í ramma uppá vegg!!!

Fletch


Góður :D

Nei málið er að í gegnum tíðina hef ég tvisvar keypt AMD vegna verðs og hraðamunar, en í bæði skiptin var ég með óstöðug system sem tóku upp á því að restarta sér í tíma og ótíma.
Ég veit ekkert leiðinlegra en að vera með fullt af óvistuðum gögnum eða með gott score í counter og allt í einu án nokkurrar skýringa restartar druslan sér og allt tapað....böggandi!!!

Sent: Sun 27. Júl 2003 13:13
af Castrate
GuðjónR skrifaði:en í bæði skiptin var ég með óstöðug system sem tóku upp á því að restarta sér í tíma og ótíma.


hmm hefur aldrei gerst hjá mér...og ég er núna með fimmta amdin minn hérna (AMD 2500xp) svo er ég með AMD K6 450mhz sem server hérna í hinu herberginu hún bara gengur og gengur alveg án vandræða hefur verið í gangi í nokkra mánuði aldrei restartað sér aldrei krassað eða neitt.

Sent: Sun 27. Júl 2003 13:33
af Fletch
óstöðugt system = bilað hardware, wrong drivers, hitavandamál, etc...

hefur svo ekkert með amd eða intel að gera, getur alltaf gerst... Það vita allir, bara óheppni hjá þér guðjón að vera með 2 tölvur í röð sem hegða sér svona... Þú hefðir bara átt að finna út hvað það var en ekki gefast upp og afskrifa allar amd tölvur :roll:

Fletch

Sent: Sun 27. Júl 2003 19:03
af kemiztry
Eða ofurlélegt chipset eins og VIA :evil:

Sent: Sun 27. Júl 2003 21:24
af Voffinn
ég held þessir adminar hérna á vaktinni séu gengir af göflunum, einn bölvar AMD, annar VIA og loks einn WD.

:shock:

Sent: Sun 27. Júl 2003 21:30
af gumol
lol