Síða 1 af 1

Sparkle 7900 GT

Sent: Mið 19. Apr 2006 00:38
af bachim
Er að spá í að fá mér 7900 GT skjákort... eina sem virðist vera til á klakanum eru þessi sparkle kort sem eru seld í tölvuvirkni... eru þau betri/verri en eitthvað annað ?

Sent: Mið 19. Apr 2006 08:34
af Skoop
nei fín kort, þessi kort eru í grunnatriðum alveg eins frá öllum nema þau dýrarustu koma stundum með hærri klukkuhraða frá framleiðanda það er að minnsta kost ekki neitt sem réttlætir verðmun að mínu mati nema kannski betri ábyrgð ?

ég næ mínu 7900gt amk töluvert yfir stock klukkuhraðann

er á þriðja sparkle kortinu mínu núna
byrjaði á mx440 - svo 6600gt og núna 7900gt þannig að sparkle fær meðmæli frá mér.

Sent: Mið 19. Apr 2006 09:22
af Killah
Skoop skrifaði:nei fín kort, þessi kort eru í grunnatriðum alveg eins frá öllum nema þau dýrarustu koma stundum með hærri klukkuhraða frá framleiðanda það er að minnsta kost ekki neitt sem réttlætir verðmun að mínu mati nema kannski betri ábyrgð ?

ég næ mínu 7900gt amk töluvert yfir stock klukkuhraðann

er á þriðja sparkle kortinu mínu núna
byrjaði á mx440 - svo 6600gt og núna 7900gt þannig að sparkle fær meðmæli frá mér.


Hvernig ertu að yfirklukka kortið? Ertu að nota földu stillingarnar með coolbits eða eitthvað annað forrit? Hvað ertu að ná því uppí?

Sent: Mið 19. Apr 2006 17:32
af audiophile
Sparkle kortið er ekki til. Talaði við Tölvuvirkni fyrir páska og þeir áttu það ekki til þó svo að síðan þeirra segði annað. Þeir sögðust ekkert vita hvenær það kæmi aftur.

Sent: Mið 19. Apr 2006 18:01
af Mazi!
með þessi 7900 kort borgar sig að hafa orginal kælinguna á eða er betra á fá sér einhverja aðra kælingu :?:

Sent: Mið 19. Apr 2006 20:03
af Skoop
Mazi! skrifaði:með þessi 7900 kort borgar sig að hafa orginal kælinguna á eða er betra á fá sér einhverja aðra kælingu :?:


stock kælingin er ágæt, mitt kort var að fara uppí 65 gráður í vinnslu og 45 idle.

ég setti aftur á móti gömlu vf-cu700 kælinguna á kortið og ég mæli eindregið með henni hún er mun hljóðlátari og kælir betur.
svo er fólk að láta vel af vf-cu900 kælingunni á erlendum korkum, en flestir eru á því að það sé ekki þess virði að borga mismuninn því hún er ekkert að kæla mikið betur en cu700 sem fólk getur fengið í flestum tölvuverslunum og ég rakst meira að segja á hana í BT á 2900.
:shock:

Killah skrifaði:Hvernig ertu að yfirklukka kortið? Ertu að nota földu stillingarnar með coolbits eða eitthvað annað forrit? Hvað ertu að ná því uppí?


ég næ að yfirklukka kortið í 598/878 en þá koma artifacts í ati tool, hæsta sem ég kemst og þá 100% stable er 550/840
hitinn undir load er 46 gráður.
er reyndar að skoða að voltmodda kortið, þar sem hitinn á því er mjög lágur.




Mynd

Sent: Mið 19. Apr 2006 20:08
af Fletch
Skoop skrifaði:ég næ að yfirklukka kortið í 598/878 en þá koma artifacts í ati tool, hæsta sem ég kemst og þá 100% stable er 550/840
hitinn undir load er 46 gráður.


Nice, með bara 46°C load hita ættiru að kíkja á voltmod :twisted:

Fletch

Sent: Fim 20. Apr 2006 03:55
af <=BaD=>RaGnaR
Skoop skrifaði:nei fín kort, þessi kort eru í grunnatriðum alveg eins frá öllum nema þau dýrarustu koma stundum með hærri klukkuhraða frá framleiðanda það er að minnsta kost ekki neitt sem réttlætir verðmun að mínu mati nema kannski betri ábyrgð ?

ég næ mínu 7900gt amk töluvert yfir stock klukkuhraðann

er á þriðja sparkle kortinu mínu núna
byrjaði á mx440 - svo 6600gt og núna 7900gt þannig að sparkle fær meðmæli frá mér.


allaveganna er koma Sparkle Gforce 7900GTX með með nokkuð háan klukkuhraða orginal

Core Clock : 650 MHz
Memory Clock : 1600MHz

Sent: Fim 20. Apr 2006 13:38
af audiophile
Öll 7900 línan, GT og GTX, hvort sem það er frá BFG, XFX, eVGA, Gigabyte, MSI eða Sparkle er frá sama framleiðanda og þar af leiðandi sama kortið. Eini munurinn á milli korta (þá er ég ekki meina milli GT eða GTX heldur milli fyritækja) er kælingin, ábyrgðin og hvernig kassinn lítur og hvað er inn í honum.

Eftir því sem ég best veit, fá allir þessir framleiðendur sama kortið í hendurnar frá Nvidia þannig að í raun ættu öll kortin að vera eins. En mismunandi kælilausnir geta haft áhrif á hversu vel kortin geta yfirklukkast.

Þannig að það held ég sé óhætt að velja þér bara tegund af 7900GT eftir verði eða hvaða leikur fylgir með.

Sent: Fim 20. Apr 2006 15:47
af gnarr
nVidia selur ekki skjákort. Þeir selja myndgjörva (GPU), sem að kortaframleiðendur kaupa svo af þeim og búa til kort með.

nVidia hannar viðmiðunarútgáfu af kortum sem eru aldrei seld, heldur aðeins fyrir framleiðendurnar til að hafa eitthvað viðmið. Svo er það algjörlega í höndum framleiðendanna hvort þeir vilja fylgja hönnunni á viðmiðunar kortinu, hvort þeir nota eins þétta eða ódýrari eða dýrari, hvort þeir selja kortið á "réttum" klukkuhraða eða hvort þeir hafa það pre overclockað og hvernig kælingar þeir hafa kortinu.

Svo að framleiðandinn skiptir frekar miklu máli.

Sent: Fim 20. Apr 2006 17:20
af kristjanm
Framleiðandinn getur skipt mjög miklu máli.

T.d. er kannski einn framleiðandi sem skellir viftulausri kælingu á kortið á meðan annar er með kælingu sem heyrist í um allt húsið.

Sent: Fim 20. Apr 2006 17:52
af Fletch
Það virðast hinsvegar allir framleiðendur vera að nota reference kælinguna á þessum 7900GT kortum ennþá allavega, þannig að þetta eru sömu kortin... Sumir senda þau hinsvegar frá sér yfirklukkuð ef þið viljið borga fyrir það :roll:

Þessi reference kæling er frekar slöpp, kortin hitna í ca 60-70°C og viftan er alltof lítil og frekar hávær

Sent: Fim 20. Apr 2006 19:59
af audiophile
Já gnarr ég veit að kortaframleiðendur gera allskonar breytingar og svoleiðis á kortum frá reference kortum, en það er hinsvegar ekki tilfellið með 7900GT kortin. Þau eru víst öll nákvæmlega eftir reference borðinu frá Nvidia þ.m.t. kælingin.

Sent: Fös 21. Apr 2006 08:47
af Gestir
Heyriru það Gunnar ... :8)

Sent: Fös 21. Apr 2006 18:44
af Rusty
kristjanm skrifaði:Framleiðandinn getur skipt mjög miklu máli.

T.d. er kannski einn framleiðandi sem skellir viftulausri kælingu á kortið á meðan annar er með kælingu sem heyrist í um allt húsið.

Þarna ertu eiginlega að styðja mál audiophile.. Og sami framleiðandinn kemur oft með sama kortið, eitt viftulaust, en hitt með viftu.