Síða 1 af 1

Logitech® Z-5500

Sent: Mán 27. Mar 2006 08:49
af zedro
[url=http://www.logitech.com/index.cfm/products/details/US/EN,CRID=2,CONTENTID=9486]Mynd
Logitech® Z-5500[/url]

Jæja nú hefur mar nokkurnveginn ákveðið að fá sér fyrrgreinda græju en
það er einn sem ég vill hafa á hreinu.

Hef verið að heyra Hátalari + Skjár = BaaaD, ss. vegna segla sem eru í
sumum hátölurum. Mér hefur ekki tekist að finna hvort það séu seglar í
þessum hátölurum (ef einhver veit það endilega láta mig vita) og ef svo
er hvað væri þa "Safe" distance frá skjánum? Miða við Review sem ég las
á netinu þá var sagt að "center" hátalarann væri hægt að setja ofaná
skjáinn.

Einnig þá fylgir með þessum pakka RISA subwoofer og logitech vara við
að hafa hann ekki nær en 60cm frá skjáum og tölvukössum, mar var að
pæla hvort það væru einhverjir aðrir hlutir sem mar ætti að geyma í góðri
fjarlægð.

Auk þess ef einhver hefur einhverja reynslu af þessum græjum endilega deila þeim :D

Sent: Mán 27. Mar 2006 12:24
af MezzUp
Það eru seglar í (nánast) öllum hátölurum. Ef að hátalarnir eru hinsvegar gefnir út sem tölvuhátalarar eiga þeir að vera segulvarðir, nema annað sé tekið fram(eins og með bassaboxið)

Sent: Mán 27. Mar 2006 23:34
af Rusty
Kostar þetta ekki einhvern 50.000 kall. Og eru ekki betri hljómgæði í Creative?

elska þó auglýsinguna undir þessa hátalara.

Sent: Þri 28. Mar 2006 00:33
af zedro
Já þær kosta að vísu 48.990kr hjá BT en ég fæ þær á 36.990kr :8)
Miða við Logitech Z-2300 sem ég hef prufað er geðveikur hljómur
þá get ég rétt ímyndað hvað mun koma útúr þessum :D

Sent: Þri 28. Mar 2006 00:39
af urban
Miðjan hjá mér er ofaná tölvuskjánum hjá mér

hef ekki tekið eftir því hingað til að þetta hafi truflað skjáinn, enda einsog Mezzup sagði þá eiga tölvuhátalarar að vera segulvarðir nema annað sé tekið fram.

En gerðu mér greiða úr því að þú ert að fá þér svona kerfi, stiltu því rétt upp

og annað
þetta er alveg peninganna virði (reyndar fékk ég mitt erlendis frá en ég mundi alveg kaupa þetta hér heima)

Sent: Þri 28. Mar 2006 08:17
af gnarr
ok.... 10" sub með 3" sattelite :? Ég get ekki ímyndað mér að þetta hljómi mjög vel. Ég myndi allavega ekki vera með meira en 6" 'sub' með þessu :lol:

Ég myndi halda að 4" sattelite með 8" sub væri alveg málið fyrir þennann pening. Annars hef ég reyndar ekki heyrt í þessu tiltekna kerfi, svo að ég get ekki fullyrt mikið.

Sent: Þri 28. Mar 2006 12:11
af Gestir
Gnarr treystu mér.

Þetta hljómar betur en öll heimabíókerfi sem BT var að selja um jólin 2004.

Þetta soundar alveg fáránlega vel !!

Sent: Þri 28. Mar 2006 13:53
af zedro
ÓmarSmith skrifaði:Gnarr treystu mér.

Þetta hljómar betur en öll heimabíókerfi sem BT var að selja um jólin 2004.

Þetta soundar alveg fáránlega vel !!

Þakka þér fyrir, allur vafi virðist horfinn.
That bad boy's gonna be mine :twisted:

Sent: Þri 28. Mar 2006 14:45
af Guðni Massi
bleh

Sent: Þri 28. Mar 2006 16:16
af °°gummi°°
Hvernig gangið þið frá bassaboxinu?
Ég er með z-680 kerfi og mér finnst ég ekki geta lækkað nógu mikið í bassaboxinu, ég hef mitt bara beint á parketinu og það er alltaf farið að drynja of mikið í bassanum þannig að hann virðist óma um stofuna og distortast (held að kjallarinn fyrir neðan dobbli sem bassabox :twisted: )

Sent: Þri 28. Mar 2006 16:52
af gnarr
akkúrat það sem mér datt í hug. Það er ábyggilega svakalega ólínulegur hljómur í þessum græjum og mikið boost kringum 120hz og á móti er ábyggilega mikið cut á 500hz-1.5khz

Sent: Þri 28. Mar 2006 16:56
af urban
°°gummi°° skrifaði:Hvernig gangið þið frá bassaboxinu?
Ég er með z-680 kerfi og mér finnst ég ekki geta lækkað nógu mikið í bassaboxinu, ég hef mitt bara beint á parketinu og það er alltaf farið að drynja of mikið í bassanum þannig að hann virðist óma um stofuna og distortast (held að kjallarinn fyrir neðan dobbli sem bassabox :twisted: )


mitt er beint á parketið en það er enginn kjallari eða neitt undir

og hljómurinn er mjög góður

var með 5.1 logitech kerfi áur (man bara ekki týpu númerið á því) en ég lenti einmitt í því að þar kom bassinn óvenju hár og mikill en bassaboxið er á sama stað samt sem áður

Sent: Þri 28. Mar 2006 18:44
af hahallur
Ég prófaði þetta og fannst ekki mikið koma til :?

Sent: Þri 28. Mar 2006 23:47
af Pandemic
Ég er með logitech Z kerfi og bassinn er stundum á eftir(eða það finnst mér) og hreint út sagt pirrandi stundum og það tekur stuttan tíma að fá sér vænan hausverk ef maður er að spila of hátt. Hef séð það í erlendum review-um að þeir eru að kvarta yfir svipuðum vandamálum með bassan. Annars hljóma hátararnir fínt.

Hljómurinn í Cambridge soundworks sem ég hef heyrt í er unaðslegur.

Sent: Mán 03. Apr 2006 14:22
af zedro
Jæja kappinn er buinn að fá sér svona og vá mar sér ekki eftir því.
Eini gallinn er bassinn, hann er svo f*king KRAFTMIKILL það nötrar allt :D

Verð að prufa botna allt einhverntíma :twisted:

Sent: Mán 03. Apr 2006 19:19
af Guðni Massi
bleh

Sent: Mán 03. Apr 2006 21:00
af Rusty
Benny Benassi - Satisfaction og/eða Kanye West - Gold Digg í botn. Ég mana þig! :twisted:

Sent: Mán 03. Apr 2006 21:42
af CraZy
Rusty skrifaði:Benny Benassi - Satisfaction og/eða Kanye West - Gold Digg í botn. Ég mana þig! :twisted:

þessum lögum hefur bara verið nauðgað svo mikið og því seriusly uncool að blasta það ;) :-#

Sent: Mán 03. Apr 2006 22:06
af Rusty
nei sko, [b]hækka í botn[b]. Best þó að taka allt niður af hillum, og taka allt brothætt út úr húsinu áður en þú ferð að gera það.