Síða 1 af 1
Uppfærsla á medion druslu
Sent: Sun 26. Mar 2006 18:13
af Mazi!
sælir
nú er frændi minn búinn að fá nóg að medion draslinu sínu og setti mig í það verk að skipta þessu eitthvað út. og það sem ég er að spá er að kaupa þá nýtt móðurborð og kassa en nota samt sama örgjörfan sem var í medioninum svo núna þurfið þið að finna fyrir mig móðurborð fyrir pentium4 sem er með AGP! rauf og IDE contoler og það þarf að stiðja DDR400
ps: er eiginlega alveg með það á hreinu hvernig kassa ég kaupi fyrir hann
og það væri ekki vera ef þið gætuð mælt með einhveju sem fæst í kísildal
Sent: Sun 26. Mar 2006 18:21
af Pandemic
MSI 848P NEO-V
Hið fínasta borð. Mæli samt með allsherjar uppfærslu.
Sent: Sun 26. Mar 2006 18:31
af Mazi!
humm takk pandemic
en er að spá hvort það þurfi nokkuð að uppfæra skjákortið? nafnið á því er:
ps þessi tölva er bara notuð í msn---bíómyndagláp---ritgerðir og svo eitthvað notuð í að vafra
Sent: Sun 26. Mar 2006 18:43
af Veit Ekki
9800xt alveg nógu gott í allt þetta og meira en það. Það þarf ekkert svaka skjákort í að horfa á bíómyndir og vera á msn.
Sent: Sun 26. Mar 2006 18:56
af Mazi!
Veit Ekki skrifaði:9800xt alveg nógu gott í allt þetta og meira en það. Það þarf ekkert svaka skjákort í að horfa á bíómyndir og vera á msn.
okey held að þá sé ég búinn að slá þessu föstu
þá er það móðurborðið sem pandemic kom með og aspire kassi í kísildal
Sent: Mán 27. Mar 2006 23:29
af Rusty
hví að uppfæra fyrir svona vinnslu?
Sent: Þri 28. Mar 2006 03:05
af CendenZ
Taktu tölvuna hans og formattaðu kvikindið bara.
bættu svo 1 x 512 mb ddr kubb og gaurinn heldur að þú hafir gert kraftaverk.
móðurborðið er óþarfi, gaurinn þarf að losna við allt spyware og óþarfa forrit sem eru í stöðugri vinnslu á tölvunni.
ég skal LOFA þér að þessi 5 þús króna minniskubbur og 3 tímar í windows setup gera kraftaverk.
Sent: Þri 28. Mar 2006 11:41
af Mazi!
samt ætla ég að skipta um kassa
og þessi vél er mep 2 gíg í vinnsluminni
Sent: Lau 01. Apr 2006 08:30
af kristjanm
Formatta drusluna bara ef það á ekki að uppfæra allan pakkann.
Sent: Lau 01. Apr 2006 11:32
af zedro
kristjanm skrifaði:Formatta drusluna bara ef það á ekki að uppfæra allan pakkann.
Hann lendir hvort eð er í því að formatta ef hann skiptir um mobo
Sent: Lau 01. Apr 2006 20:12
af @Arinn@
Ég skil ekki af hverju að skipta um móðurborð það skiptir engu máli eiginlega í svona vélum bara að það styðji það sem það þarf að styðja.
Sent: Lau 01. Apr 2006 20:20
af gnarr
Zedro skrifaði:kristjanm skrifaði:Formatta drusluna bara ef það á ekki að uppfæra allan pakkann.
Hann lendir hvort eð er í því að formatta ef hann skiptir um mobo
Nú? afhverju segiru það? Alveg nóg að setja stýrikerfið upp aftur.
Sent: Lau 01. Apr 2006 21:51
af zedro
gnarr skrifaði:Zedro skrifaði:kristjanm skrifaði:Formatta drusluna bara ef það á ekki að uppfæra allan pakkann.
Hann lendir hvort eð er í því að formatta ef hann skiptir um mobo
Nú? afhverju segiru það? Alveg nóg að setja stýrikerfið upp aftur.
Og stýrikerfið formattar partitionið sem stýrikerfið var á.
Auk þess þegar mar skiptir um mobo þarf mar að setja stýrikerfið upp aftur og oftast formattar mar í leiðinni
right?
Sent: Lau 01. Apr 2006 23:17
af gnarr
Zedro skrifaði:Og stýrikerfið formattar partitionið sem stýrikerfið var á.
neibb
Zedro skrifaði:Auk þess þegar mar skiptir um mobo þarf mar að setja stýrikerfið upp aftur
í flestum tilfellum já, en ekki í öllum.
Zedro skrifaði:og oftast formattar mar í leiðinni
right?
þá er ég ekki maður.. allavega formata ég sjaldnast þegar ég set stýrikerfi upp, nema þá að það sé nýr diskur sem ég er að setja stýrikerfið upp á.
Sent: Mán 03. Apr 2006 15:53
af Rusty
Líður einhvernvegin betur við að formata. Hræddur um að eitthvað feili þegar maður ætlar að fara að nota suma hluti.
Sent: Mán 03. Apr 2006 21:40
af zinelf
gnarr skrifaði:Zedro skrifaði:og oftast formattar mar í leiðinni
right?
þá er ég ekki maður.. allavega formata ég sjaldnast þegar ég set stýrikerfi upp, nema þá að það sé nýr diskur sem ég er að setja stýrikerfið upp á.
Alltaf þegar ég hef sett upp Win geri ég "Setup fresh copy of Windows" svo vel ég part svo kemur bara "Formatting..."
Sent: Þri 04. Apr 2006 09:21
af gnarr
Windows 3.1?
Sent: Þri 04. Apr 2006 10:38
af Daz
Format æðið nær sífellt sterkari tökum á fólki. Þegar maður setur upp nýt Windows og vill vera viss um að það sé "hreint" er nóg að eyða Windows möppunni og "My doccuments and settings" möppunni og líklega "Program files" líka. Reyndar er þá oft lítið orðið eftir á diskinum, en það þýðir samt ekki að það þurfi að formata í hvert sinn sem maður setur upp Windows.
Sent: Þri 04. Apr 2006 10:47
af Rusty
Hvað með registry?
Sent: Þri 04. Apr 2006 11:19
af zedro
gnarr skrifaði:Windows 3.1?
Nei XP gnarri minn, windowsið formattar ALLTAF, allavega útgáfan sem ég er með