Uppfærsla á gamalli tölvu


Höfundur
Kruder
Fiktari
Póstar: 66
Skráði sig: Mán 05. Feb 2007 00:42
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Uppfærsla á gamalli tölvu

Pósturaf Kruder » Þri 11. Ágú 2026 18:47

Góðan dag, ég er með gamla tölvu sem styður ekki Windows 11, þar sem stuðningur við það stýrikerfi er hætt þá langar mig að uppfæra gripinn.

Device Name Tyr
Processor Intel(R) Core(TM) i7-6700 CPU @ 3.40GHz 3.40 GHz
Installed RAM 16,0 GB
Storage 894 GB SSD PH6-CE960, 932 GB HDD ST1000DM003-1SB102, 238 GB SSD PLEXTOR PX-256M8PeG
Graphics Card NVIDIA GeForce GTX 1070 (8 GB)

Ég geri ráð fyrir að ég þurfi nýtt móðurborð, powersupply, cpu og ram

Endurnýti skjákortið (spila bara gamla tölvuleiki þarf ég ekki nýtt í bráð)

Getiði hjálpað mér að setja saman nokkra valkosti, mig langar að tölvan sé nokkuð future proof en á sama tíma ekki mjög dýr.



Skjámynd

Fennimar002
spjallið.is
Póstar: 457
Skráði sig: Sun 24. Feb 2019 17:32
Reputation: 26
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á gamalli tölvu

Pósturaf Fennimar002 » Þri 11. Ágú 2026 19:15

Ættir að geta sett upp W11 á eldri vélum. Er að keyra W11 á svipaðri vél í vinnuni.
Notaði Rufus aðferðina.


Main:
Ryzen 5 5600x | Asus ROG Strix B550-f | Vengeance RGB Pro 4x8gb | Asus ROG Strix RTX 3070 ti | Phanteks Evolv X| RM850x | Samsung 980 pro | ROG Swift 27" 144hz | ROG Strix 27" 144hz


Viggi
vélbúnaðarpervert
Póstar: 910
Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
Reputation: 144
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Uppfærsla á gamalli tölvu

Pósturaf Viggi » Þri 11. Ágú 2026 19:28

En að henda linux á hana. Mint eða zorin os og þar sem þú ert að spila eldri leiki þá gæti það verið góð lausn. Mun léttara í keyrslu en windows líka. Leikjastuðningurinn á linux er orðinn mjög góður.

Getur tékkað á þeim hér

https://www.protondb.com/
Síðast breytt af Viggi á Þri 11. Ágú 2026 19:34, breytt samtals 1 sinni.


B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.


agust1337
Gúrú
Póstar: 581
Skráði sig: Mán 20. Sep 2010 22:31
Reputation: 63
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á gamalli tölvu

Pósturaf agust1337 » Þri 11. Ágú 2026 19:35

Hægt að nota rufus til að w11 virki á eldri cpu


https://tolvulab.is/


Gemini
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 305
Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
Reputation: 66
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á gamalli tölvu

Pósturaf Gemini » Mið 12. Ágú 2026 12:54

Kruder skrifaði:Góðan dag, ég er með gamla tölvu sem styður ekki Windows 11, þar sem stuðningur við það stýrikerfi er hætt þá langar mig að uppfæra gripinn.

Device Name Tyr
Processor Intel(R) Core(TM) i7-6700 CPU @ 3.40GHz 3.40 GHz
Installed RAM 16,0 GB
Storage 894 GB SSD PH6-CE960, 932 GB HDD ST1000DM003-1SB102, 238 GB SSD PLEXTOR PX-256M8PeG
Graphics Card NVIDIA GeForce GTX 1070 (8 GB)

Ég geri ráð fyrir að ég þurfi nýtt móðurborð, powersupply, cpu og ram

Endurnýti skjákortið (spila bara gamla tölvuleiki þarf ég ekki nýtt í bráð)

Getiði hjálpað mér að setja saman nokkra valkosti, mig langar að tölvan sé nokkuð future proof en á sama tíma ekki mjög dýr.


Þú ert basically að segja að þú þarft nýja tölvu. Það eru auðvitað fullt af slíkum til í búðunum. Það er engin leið að hjálpa þér að raða saman tölvu án þess að vita hvaða budget þú ert með heldur. Future proof og ekki mjög dýrt ertu líka í raun að biðja um svart og hvítt á sama tíma. Persónulega ef þú ert að hugsa um gaming myndi ég reyna að hafa x3d á örgjörvanum í dag, það setur mun minni pressu á þig að þurfa að kaupa rándýrt hratt minni t.d. Ég myndi svona ekki fara undir 32 gb total og í raun ekki yfir heldur (16 eða 24 er tæknilega nóg ennþá í flest en þegar næstu consoles koma mun það líklega breyast hratt í gaming á pc líka). Skjákort fer auðvitað svo eftir bara hvað þú ert til í að borga, þú færð oftast það sem þú setur í það.